Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.01.2003, Síða 15

Víkurfréttir - 03.01.2003, Síða 15
VÍKURFRÉTTIR I 1. TÖLUBLAÐ I FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003 I 15 Þann 13. des. sl. sendinýráðinn forstjóri Heil-brigðisstofnunar Suð- urnesja (HSS) frá sér til- kynningu um ástandið á HSS. Í henni er m.a. að finna eftirfar- andi klásúlu” Stjórnendur Heilbrigðisstofnunarinnar vilja þakka fórnfúst starf allra þeirra sem leggja sig fram um að greiða götu sjúk- linga sem leita til HSS og mæta þannig tímabundinni röskun í þjónustu heilsugæsl- unnar. Sömuleiðis vilja stjórnendur HSS þakka þann skilning og biðlund sem sjúk- lingar hafa sýnt við erfiðar aðstæður.” Þó það nú væri að þakka þeim sem hafa unnið sig upp að hnjám til þess að koma í veg fyrir neyðarástand í heilbrigðis- málum hér á Suðurnesjum. Ég vænti þess að þeir verði jafn- framt varir við það í launa- umslaginu sínu. Ég vil gera at- hugasemdir við seinni hluta þessarar klásúlu, þar sem okkur Suðurnesjamönnum er þakkað fyrir skilning og biðlund. Mér þykir þetta æði hráslagaleg kveðja til okkar, þessu ástandi var einfaldlega troðið ofan í kokið á okkur, frú forstjóri, hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Við erum hins vegar nokkuð siðmenntuð hér á Suð- urnesjum og reynum að leysa málin á þeim nótum. En við vorum aldrei spurð. Okkur var einfaldlega stillt upp við vegg. Hverjir eru svo að deila í þessu máli? Jú, læknar sem búa í Reykjavík, forstjóri sem býr í Reykjavík og ráðherra sem býr í Reykjavík. Við sem búum hérna komum hvergi nærri, nema sem þolendur. Væri þetta ástand látið viðgangast í Reykjavík? Ég bara spyr. Vissulega er það þægilegt fyrir stjórnendur HS að við skulum ekki vera með neitt uppsteyt. Einn öryrki hefur verið að liggja á göngum og hefur ekki skapað neitt sérstakt ónæði. En við sýnum ekki endalausa bið- lund og við verðum ekki skiln- ingsrík ef að eitthvað gerist hér sem rekja má til þessarar deilu aðila sem hafa engra sérstakra hagsmuna að gæta í okkar samfélagi. Guðbrandur Einarsson Jólakveðja forstjóra HSS M ig langar að koma meðfáeinar spurningar ogkannski fá svör við þeim, því þau hafa ekki legið á lausu fyrir al- menning á Suðurnesjum. En fyrstu spurningu minni vil ég beina til fram- kvæmdastjóra HSS. 1. Á að loka Heilbrigðisstofnun Suðurnesja ? 2. Hvað er í gangi hér suður frá sem réttlætir það að það er kom- ið verr fram við okkur sjúklinga sem þurfum á læknum að halda reglulega en dýr. 3. Hér eru aðeins tveir læknar á 17.000 þúsund íbúa og er ég ekki viss um að báðir hafi full réttindi eða hvað ? 4. Má hjúkrunarfræðingur skrifa út lyfseðil og láta það fara í apó- tek án þess að læknir skrifi und- ir? 5. Hvers vegna þarf fólk að bíða eftir lyfseðli frá heilbrigðisstofn- un í einn til þrjá sólarhringa þó lyfin séu bráðnauðsynleg alla daga, er það vanhæfni hjá hjúkr- unarfræðingi sem er milligöngu maður milli læknis og lyfseðils. Hér er fátt eitt upptalið sem eng- inn virðist bera ábyrgð á, en ef vel er skoðað held ég nú þrátt fyrir allt að Suðurnesjabúar séu ekki svo heimskir að þeir sjái ekki hvar hundurinn liggur graf- inn. Ég sat á heilsugæslustöðinni í nokkra daga ásamt örfáum öðr- um, hvar voru þá Suðurnesjabú- ar? Að pússa fínu jeppana sína eða keppast um jólaskreytingar á híbýlum sínum. Ef fólk vil hafa þetta svona er það allt í lagi , en þarf ekki heilsugæslu líka? Eru allir kannski svo heilsuhraustir að enginn verður veik(ur) nema ég? Ef ekki eru fjárveitingar til að halda opnu sjúkrahúsi, fæðingar- deild og heilsugæslu, finnst mér persónulega að loka ætti sjúkra- húsi og fæðingardeild. Hér er sem betur fer mjög góð upp- bygging á öldrunardeild svo að blessað gamla fólkið geti verið hér í ellinni. Ekki veit ég hver hefur komið því inn í höfðuið á konum að hér sé besta fæðingardeid á landinu. Konur hafa alla tíð þurft í ein- hverjum tilfellum að fara inn á fæðingardeild Landspítalans og verið bara nokkuð sáttar við það. Og lítið þýðir að setja upp skeifu og langt er frá að heimurinn farist því þær hafa oft farið inn á fæðingardeild Landspítalans þó svo að opið sé hér. Skurðstofan hér er að mestu not- uð af sérfræðingum úr Reykja- vík. Svo sem bæklunarlæknum , háls-nef og eyrnalæknum og svo notar yfirlæknir fæðingardeildar í ýmiskonar aðgerðir. En hér á að lifa heilsugæsla með góðum læknum með öll sín rétt- indi í lagi og að sjálfsögðu tal- andi á íslenska tungu, en því miður hefur nú farið svo að ein- hver hefur hrakið þá góðu lækna sem hér voru komnir til starfa og eftir sem mér hefur heyrst voru þeir vinsælir meðal almennings. Ég ætla ekki að una þessu þar sem ég á rétt á læknisþjónustu í minni heimabyggð. Góður lög- fræðingur reyndar úr Reyjavík telur þetta svo skýlaust brot á heilbrigðislögum, að hver veit nema að ég fái hann til að líta yfir stöðu mína. Ég gæti talið upp svo ótal margt fleira sem ég mun síðar gera. Við ykkur Suðurnesjabúa vil ég segja, þar sem þetta ár er á enda runnið ætlið þið þá ekki á nýju ári að gera neitt til þess að fá að hafa heilsugæslustöð í heima- byggð? Við þig góða frú sem tókst við þessari stofnun 1.desember og sem ég hef ekkert heyrt frá nema afsakanir, held ég að heimamað- ur réði betur við þetta erfiða verkefni. Vil ég svo óska ykkur sem áttuð að sjá til þess að sjúklingar fái sína þjónustu á heilsugæslustöð- inni gleðilegs árs og ekki síst að þið megið finna úrræði í heilsu- gæslumálum ekki bara láta síma- stúlkunnar svara einhverri vit- leysu í símann. Suðurnesjamenn standið upp og gerið eitthvað látið ekki fólk úr Reykjavík ráða því hvort þið leit- ið heimilslæknis í ykkar heima- bæ, látið ekki trampa á ykkur. Ósk um gleðilegt ár og gæfuríka framtíð í góðum og framsæknum bæ. Virðingarfyllst Helga Valdimarsdóttir 190847-7999 Opið bréf til heilbrigðisráðuneytis og frú Sigríðar Snæbjörnsdóttur framkvæmdastjóra HSS. Hvar er heilsugæslustöðin á Suðurnesjum ? LESENDUR HAFA ORÐIÐ Jólahúsin í Sandgerði voru valin í fyrsta sinn fyrir þessi jól, og urðu Holtsgata 37, Holtsgata 34, og Klapparstígur 4 fyrir valinu að þessu sinni. Verðlaunin voru rostungur í jólabúningi sagaður út í koparplötu og settur á holtagrjót. Verðlaunin voru svo afhent á Þorláksmessu á Vitanum þar sem verðlaunahöfum var boðið til kaffi. Ferða og menningaráð Sandgerðisbæjar. Jólahúsin í Sandgerði valin 1. tbl. 2003 - 16 sidur 16 2.1.2003 16:41 Page 15

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.