Víkurfréttir - 06.02.2003, Page 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Leikskólar Reykjanesbæj-ar hafa auglýst lokunvegna sumarleyfa og
starfsdaga 2003. Opnunar-
tími leikskóla mun jafnframt
taka nokkrum breytingum
að hausti.
Leikskólarnir Holt og Tjarnar-
sel verða lokaðir frá 10. júní til
15. júlí. Börnin mæta 16. júlí.
Leikskólarnir Gimli, Heiðarsel
og Hjallatún verða lokaðir frá
23. júní til 25. júlí. Börnin
mæta 28. júlí.
Leikskólarnir Garðasel og
Vesturberg verða lokaðir frá
11. júlí til 15. ágúst. Börnin
mæta 18. ágúst.
Starfsdagar á leikskólum í
sumar verða eftirfarandi:
Leikskólarnir Holt og Tjarnar-
sel 15. júlí
Leikskólarnir Gimli, Heiðarsel
og Hjallatún 25. júlí
Leikskólinn Garðasel og Vest-
urberg 15. ágúst.
Breyttur opnunartími
Fræðsluráð Reykjanesbæjar
hefur jafnframt lagt til breyttan
opnunartíma leikskólanna
næsta haust. Lagt er til að opið
verði til kl. 17.15 í öllum leik-
skólum. Boðið verður upp á
lengri opnunartíma, eða til
18.15 í tveimur leikskólum,
Garðaseli og Gimli. Tímagjald
hækkar í kr. 2.900 eftir kl.
17.15 vegna aukins kostnaðar
við starfsmannahald.
Sumarfrí
leikskólanna
í Reykjanesbæ
[ Didda og dauði kötturinn á hvíta tjaldið í Keflavík í kvöld ]
Bílskúrssala laugardaginn 8.
febrúar kl. 13-18 að Kjarrmóa 9
í Njarðvík. Svefnsófi, hillur, föt,
skór og m. fl. Allir að mæta.
Öryggismiðstöð Íslands,Keflavík, íþrótta- og ung-mennafélag, UMFN og
Íþróttafélagið Nes hafa gert
með sér samstarfssamning.
Samningar þessir eru gerðir
með það að markmiði að auka
íþróttastarfsemi á svæðinu og
um leið auka öryggi heimila á
Suðurnesjum. Fulltrúar Ör-
yggismiðastöðvarinnar og
íþróttarfélaganna komu saman
í Reykjaneshöllinni á þriðju-
dag þar sem samningarnir
voru undirritaðir.
Íþróttafélögin munu sjá um dreif-
ingu á heimagæslu tilboðum,
Keflavík í Keflavíkurhverfi,
UMFN í Njarðvíkurhverfi og
NES dreifir í Hafnir, Garð og
Sandgerði. Öryggismiðstöð Ís-
lands greiðir 8000 krónur yfir
hverja tengingu á heimagæslu-
kerfi sem skilar sér inn í fram-
haldi af dreifingu. Þessum fjár-
munum verður varið til uppbygg-
ingar íþróttastarfsemi á Suður-
nesjum og er það val viðskipta-
vinarins hverju sinni til hvaða
deildar styrkurinn.
Öryggismiðstöð Íslands
gerir samstarfssamning við
íþróttafélög í Reykjanesbæ
Kvikmyndin Didda ogdauði kötturinn verðurfrumsýnd í kvöld kl.
18:00 í Sambíóunum Keflavík.
Myndin sem tekin var upp í
gamla bænum í Keflavík fjall-
ar um sögu ungrar stúlku sem
fær kröftuga sjón eftir að hafa
dottið ofaní lýsistunnu. Stúlk-
an kemst á snoðir þorpara
sem leynast í næsta húsi og
lendir í ævintýrum við að
upplýsa glæp. Sagan er spenn-
andi og skemmtileg unglinga-
saga.
Krakkar af Suðurnesjum eru
áberandi hlutverkum í mynd-
inni. Kristín Ósk Gísladóttir 11
ára leikur Diddu sem er aðal-
söguhetja myndarinnar. Þá leika
tveir vinir úr Keflavík, þeir Ein-
ar Orri Einarsson og Davíð Már
Gunnarsson, sem verða 14 ára á
þessu ári, einnig stórt hlutverk í
myndinni en þeir leika félagana
Kára og Pétur. Víkurfréttir
spjölluðu aðeins við krakkana í
tilefni frumsýningar myndarinn-
ar og voru þau öll sammála um
það að það hefði verið mjög
gaman að leika í myndinni og
kynnast nýju fólki. „Þetta var
mjög skemmtilega upplifun og
var mjög gaman að hitta fræga
leikara eins og Stein Ármann og
Helgu Brögu sem leika í mynd-
inni“, sagði Einar Orri sem leik-
ur Kára. Davíð Már sem leikur
Pétur sagði að atriðin hefðu ver-
ið misjafnlega skemmtileg „Mér
fannst skemmtilegast að leika í
atriðinu þar sem ég og Einar átt-
um að brjótas inn í hús, þá kom
villingurinn upp í okkur. Við
höfum verið vinir í mörg ár og
því var gaman að leika saman í
myndinni“. Aðspurður hvort
þeir ættu eitthvað sameiginlegt
með strákunum sem þeir léku
sagði Davíð að svo væri. „Fyrir
utan það að við séum bestu vinir
þá erum við nú líka svolitlir
prakkarar“ og tók Einar undir
það með vini sínum og bætti því
við að þeir væru þó ljúfir inn við
beinið.
Atriðin voru miserfið og reyndi
oft á leikhæfileika krakkana til
dæmis þegar þau þurftu að sýna
tilfinningar og gráta. Kristín
segist hafa fengið það ráð frá
framkvæmdastjóra myndarinnar
að skera lauk og þá hafi tárin
strax byrjað að leka. Davíð
sagðist ekki hafa notið „hið sí-
gilda lauktrikk“ heldur bara
leikið enda hafi þeir bara þurft
að snökta eins og hann orðaði
það. Þau sögðu að það hefði
verið skemmtilegt að vinna með
Steini Ármanni Magnússyni og
Helgu Brögu Jónsdóttur enda
væru þau mjög fyndin. „Þau eru
nú bara venjulegt fólk eins og
við hin en það var gaman að
vinna með þeim. Þau eru alveg
jafn fyndin og skemmtileg og
þau líta út fyrir“, sagði Davíð
sem leikur Pétur og bætti Krist-
ín því við að hún hefði lært hell-
ing af því að leika með þeim.
Krakkarnir sögðust að lokum
vera farin að hlakka mikið til sjá
myndina og ætluðu þau auðvitað
öll á frumsýninguna í kvöld.
KEFLVÍSK BÍÓMYND FRUMSÝND
Blaðauki um bíla
verður í Víkurfréttum í næstu viku.
Auglýsingar og umfjöllun um nýja bíla,
notaða bíla,bílaþjónustu og fleira.
Sértilboð á smáauglýsingum,
texti og mynd (myndataka innifalin) kr. 700.
6. tbl. NY BLS. 2!!!! 5.2.2003 18:23 Page 2