Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.02.2003, Qupperneq 4

Víkurfréttir - 06.02.2003, Qupperneq 4
MIKIÐ VAR Kallinn glaður að lesa um það að bæjar- stjórn Sandgerðisbæjar hafi ákveðið að leggja 5 millj- ónir til atvinnumála í bænum - þeir hafa greinilega svarað kalli Kallsins. Það sem er hins vegar skrýtið er sú „tilviljun“ að tillaga meirihlutans er nákvæm- lega eins og tillaga sem minnihlut- ans ætlaði að leggja fram á fundin- um. Tillaga meirihlutans var nefni- lega ekki inn í þeim fundargögnum sem bæjarfulltrúar fengu send heim. Þeir hafa semsagt frétt af því að minnihlutinn ætlaði að leggja fram tillögu um að veita 5 milljónum út í atvinnulífið í Sandgerði og grip- ið tækifærið og gert tillögu minnihlutans að sinni til- lögu. Frumlegt - nei, en svona er víst pólitíkin í dag. En gott mál samt! ÞÓRUNN Friðriksdóttir sem á sæti á lista Vinstri Grænna í Suðurkjördæmi sendi Kallinum bréf þar sem hún sagðist ekki hafa getað svara Kallinum varðandi fátæktarumræðuna vegna veikinda. Þórunn hefur verið veik og það er full- gild ástæða fyrir því að senda ekki svar. Hún vill svara og Kallinn vill fá svar. Hinsvegar hefur ekkert heyrst frá Árna Ragnari - honum er víst sama um fátækt í Reykjanesbæ! SLYS COLUMBIA geimskutlunnar var hörmulegt og fylgdist heims- byggðin með slysinu í beinni út- sendingu. Slysið sýnir hve hættulegt starf geimfarar NASA vinna í þágu vísind- anna. Kallinum barst þó ábending frá glöggum les- anda Víkurfrétta varðandi merki áhafnar- innar. Í merkinu er nefni- lega blossi sem líkist mjög sprengingu. Spurning hvort þarna hafi verið um fyrir- boða að ræða. En Kallinn vottar að- standendum áhafnar- innar samúð sína. ÞAÐ ER EKKI oft sem kvikmynd af Suðurnesjum er frumsýnd en á næstu dögum verður kvikmyndin „Didda og dauði kötturinn“ frumsýnd. Kallinum hlakk- ar mjög til að sjá myndina og efast ekki um að hún sé skemmtilega, enda er söguþráðurinn mjög spennandi. Kallinn óskar Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur höfundi myndarinnar innilega til hamingju með myndina og óskar þess að hún haldi áfram að skrifa. Fyrir frumsýn- ingu í leikhúsunum er sagt „break a leg“ og segir Kall- inn það sama við Kristlaugu. KALLINN fékk bréf um daginn frá lesanda sem full- yrti að Kallinn væri framsóknarmaður. Lesandinn sagði að hann teldi að Kallinn stæði á grænum kassa. Sjálfsagt hefur þessi einstaklingur myndað sér ákveðna skoðun út frá skrifum Kallsins og ályktað sem svo að Kallinn væri framsóknarmaður. Til að fyrirbyggja allan misskilning þá er Kallinn óflokksbundinn og hefur skynsemina að leiðarljósi, en ekki handónýta pólitík. Reyndar er mjög gaman að fylgjast með ungum mönn- um mynda sér skoðun eftir flokkslínum og sjá hvað þeir eru hugmyndasnauðir þegar kemur að því að ræða ákveðin mál. Oftar en ekki er heilaþvottur stjórnmála- flokkanna svo mikill að hið einfaldasta mál í hugum margra getur orðið að flóknu máli í meðförum stjórn- málaskörunganna og liðsmanna þeirra. Í huga Kallsins skiptir mestu máli að skynsemin ráði för, en ekki það sem pólitíkusarnir segja vera rétt eða ekki rétt. REYNDAR er komin ólykt af pólitíkinni á Íslandi í dag. Samfylkingin er orðin að pólitísku miðju- moði og stendur á sama stalli og Framsóknar- flokkurinn og vinstri vængur Sjálfstæðis- flokksins. Vinstri Grænir eru töluvert langt til vinstri og eins og góðum kommúnista- flokki sæmir er flokkurinn á móti nær öllum framförum. Frjálslyndi flokkurinn berst gegn kvóta- kerfinu og Kallinn hefur ekki enn áttað sig á öðrum stefnumálum flokksins. Eins og gamall maður sagði eitt sinn þegar Kallinn vann upp á Keflavíkurflugvelli: „Þetta helv... er allt saman handónýtt, ég vil fá að kjósa menn með hugsjónir á þing.“ KRISTJÁN Pálsson á þing - þar fer maður með hug- sjónir! Kveðja, Kallinn@vf.is 4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! VÍKUR FRÉTTIR Útgefandi: Víkurfréttir ehf. kt. 710183-0319, Grundarvegi 23, 260 Njarðvík Sími 421 0000 (15 línur) Fax 421 0020 Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hbb@vf.is Sölu- og markaðsstjóri: Jónas Franz Sigurjónsson, sími 421 0001, franz@vf.is Auglýsingar: Kristín Njálsdóttir, kristin@vf.is, Jófríður Leifsdóttir, jofridur@vf.is Blaðamenn: Jóhannes Kr. Kristjánsson sími 421 0004 johannes@vf.is Sævar Sævarsson, sími 421 0003 saevar@vf.is Hönnunarstjóri: Kolbrún Pétursdóttir, kolla@vf.is Hönnun/umbrot: Kolbrún Pétursdóttir, kolla@vf.is, Stefan Swales, stefan@vf.is Skrifstofa: Stefanía Jónsdóttir, Aldís Jónsdóttir Útlit, umbrot og prentvistun: Víkurfréttir ehf. Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf. Dreifing: Íslandspóstur Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og vikurfrettir.is Aðrir fjölmiðlar Víkurfrétta ehf. eru: VF - Vikulega í Firðinum Tímarit Víkurfrétta, The White Falcon, Kapalsjónvarp Víkurfrétta. MUNDI Ef Kallinn er grænn, hvernig er ég þá á litinn? Hingað til hef ég verið sagður svart/hvítur :) Kallinn á kassanum Af gefnu tilefni skal tekið fram að Kallinn á kassanum er ekki starfsmaður Víkurfrétta, heldur sjálfstæður pistlahöfundur. Þær skoðanir sem koma fram í pistli Kallsins þurfa því ekki að endurspegla skoðanir rit- stjórnar Víkurfrétta. Þar sem Kallinn skrifar undir dulnefni er hann á ábyrgð blaðsins. Þórunn Guðmunds- dóttir listamaður mánaðarins Ný mynd mánaðarins hefur verið sett upp í Kjarna, Hafnargötu 57, í Reykjanes- bæ. Eins og áður hefur kom- ið fram er hér á ferðinni kynning á myndlistarmönn- um í Félagi myndlistar- manna í Reykjanesbæ á vegum menningar- íþrótta- og tómstundasviðs bæjarins. Listamaður febrúarmánaðar er Þórunn Guðmundsdóttir. Þórunn hefur haldið nokkrar einkasýningar, síðast í Gall- erí List í Reykjavík í októ- ber sl. og einnig hefur hún tekið þátt í mörgum sam- sýningum. Hún sýnir nú með hópnum Akvarell-Ís- land 2003 í Hafnarborg í Hafnarfirði og mun sú sýn- ing standa til 17. febrúar. Þórunn er félagi í upphafs- hópi Baðstofunnar sem hlaut menningarverðlaun Reykjanesbæjar árið 2002. Myndlistarnámskeið fyrir börn í Svarta pakkhúsinu Vegna mikillar eftirspurnar hefur Félag myndlistar- manna í Reykjanesbæ ákveðið að bjóða uppá þriggja vikna myndlista- námskeið fyrir börn á aldr- inum 12 - 15 ára. Áhersla verður lögð á olíumálun á pappír sem er beint fram- hald af því starfi sem var á námskeiðunum fyrir áramót. Námskeiðin hefjast 18. febr- úar og standa til 7. mars. Kennsla verður 2x í viku í 90 mínútur í senn frá kl. 16 - 17:30. Námskeiðsgjald er kr. 5.000.- Leiðbeinandi verður Rúnar Jóhannesson, myndlistar- maður og fer skráning fram hjá honum í síma 698 3389. Félag myndlistarmanna í Reykjanesbæ. [ myndlist ] 6. tbl. 2003 - NOTA!!! 5.2.2003 17:12 Page 4

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.