Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.02.2003, Síða 6

Víkurfréttir - 06.02.2003, Síða 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! V ið guðþjónustu í Ytri-Njarðvíkurkirkju þann2. febrúar afhenti Jón Benedikt Georgsson og börn hans formlega kross þann sem stendur efst á turnspíru kirkjunnar. Ingólfur Bárðar- son formaður sóknarnefndar tók við gjöfinni og þakkaði gefendum. Sr. Baldur Rafn Sigurðsson sóknarprestur helgaði síðan krossinn, en hann er gefinn í minningu um foreldra Jóns, Georg E. P. Pétursson og Guðrúnu Magnúsdóttur frá Brekku Ytri-Njarðvík, systur hans Guðríði Elínu Georgsdóttur og konu hans Sigríði Jóns- dóttur frá Ólafsfirði. Krossinn teiknaði arkitekt kirkjunnar Ormar Þór Guð- mundsson og smíði hans ann- aðist Vélaverkstæði Sverre Stengrímsen. Hönnun lýsingar var í höndum G.H. ljósa á Garðatorgi í Garðabæ. Gestum var síðan boðið að þiggja veit- ingar. Gáfu kross efst á turnspíru kirkjunnar Á laugardag var formlegopnun á Púlsinum íSandgerði en það eru hjónin Marta Eiríksdóttir og Friðrik Þór Friðriksson sem ákváðu að láta gamlan draum rætast með því að opna nokkurs konar ævin- týrahús þar sem boðið verð- ur upp á margt skemmti- legt. Margt var um mann- inn en gestum var boðið upp á nýlagað kaffi og svo gengu leikarar klæddir mjög svo skrautlegum klæðnaði um staðinn og buðu fólki sæl- gæti, konfekt og smákökur. Í samtali við Víkurfréttir segja hjónin að þau muni koma til með bjóða upp á leiklist, söng, afródans, afró-trommu- námskeið, dansspuna, orku- dans og margt fleira á nám- skeiðum í Púlsinum en ná- kvæmar upplýsingar eru á www.pulsinn.is! Suðurnesjamenn eru hvattir til að líta við í Púlsinum enda frábært framtak í gangi hjá frábæru fólki. [ Púlsinn opnar með glæsibrag í Sandgerði ] FRÁBÆRT FRAMTAK www.vf.is 6. tbl. 2003 - NOTA!!! 5.2.2003 17:13 Page 6

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.