Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.02.2003, Síða 9

Víkurfréttir - 06.02.2003, Síða 9
VÍKURFRÉTTIR I 6. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 I 9 kolniðamyrkur þarna og ég hljóp af stað til að leita að honum. Ég heyrði að hann var að tala og hélt að hann hefði hitt einhvern og væri að spjalla við hann. En síð- an heyrði ég hann kalla í mig, en sá engan. Þegar ég fór að skima eftir honum þá sá ég hann og hljóp til hans. Ég fékk algjört sjokk þegar ég sá hann liggjandi þarna en mig grunaði aldrei að neitt svona alvarlegt hefði komið fyrir. Ég hljóp strax í bílinn til að ná í símann og hringdi í Neyðar- línuna. Ég hljóp aftur til Arnars á meðan ég talaði við Neyðarlín- una og þegar maðurinn spyr mig hvort Arnar finni fyrir fótunum segi ég : „já já hann finnur fyrir öllu“. En þá segir Arnar að hann finni ekki fyrir fótunum og þá fæ ég annað sjokk. Þetta er eitthvað sem ég átti aldrei von á. Ég fór síðan með sjúkrabílnum til Reykjavíkur,“ segir Sóley. Arnar segir að Sóley hafi verið róleg nær allan tímann: „Ég vildi ekki segja henni að ég finndi ekki fyrir fótunum á mér og ég reyndi að róa hana. Hún stóð sig eins og hetja alveg frá byrjun og hefur staðið þétt við hliðina á mér frá því þetta gerðist,“ segir Arnar og lítur á Sóleyju. Hætt við stóra aðgerð Strax eftir slysið var farið með Arnar í sjúkrabíl til Reykjavíkur þar sem hann var lagður inn á gjörgæsludeild. Þegar hann var kominn á sjúkrahús stóð til að hann færi í aðgerð: „Það var ver- ið að spá í að setja stálplötu við hryggjarliðina til að rétta hrygg- inn af. Ég beið eftir því í sólar- hring og á meðan var ég með mikinn verk í brotinu. Það var erfið bið vitandi það að ég ætti eftir að fara í stóra aðgerð. En það var hætt við að senda mig í þessa aðgerð því ég er brotinn á fjórum hryggjarliðum og það hefði þurft svo stóra plötu í mig að ég hefði getað misst mikla hreyfigetu í efri hluta líkamans en það er eini staðurinn á líkam- anum sem ég get stjórnað í dag. Ég hefði orðið eins og spýtukarl á eftir.“ Þegar einstaklingar sem lamast fara í aðgerð strax eftir slys eru líkur á því að batinn verði hrað- ari. En í tilviki Arnars eru fjórir hryggjarliðir brotnir og ef að- gerðin hefði verið framkvæmd hefði þurft að skera hann upp frá hálsi og niður að maga að aftan og framan og færa hefði þurft hjartað til að komast að brot- staðnum. Arnar segir að læknarn- ir hafi vart treyst honum í þessa aðgerð enda um mjög stóra að- gerð að ræða: „Ég var ánægður fyrst með að þeir hafi ákveðið að hætta við aðgerðina en nú er ég oft hundfúll með að hafa ekki farið því maður veit aldrei hvort það hefði orðið betra. En hins- vegar er mér búið að ganga svo vel og kannski hefðu komið upp sýkingar í kjölfarið. Maður veit aldrei, en kannski á ég eftir að fara í þessa aðgerð. Nýr heimur Maður gerir sér engan veginn grein fyrir því hvernig það er að upplifa lömun af einhverju tagi. Lífið breytist gríðarlega og verk sem heilbrigt fólk sinnir á hverj- um degi er ekki sjálfsagður hlut- ur hjá þeim sem lamast. Arnar segir að áfallið hafi komið eftir á og sá veruleiki sem blasti við honum tók mikið á hann: „Það tók mig smá tíma að kyngja þessu og átta mig á stöðunni. Það eru allir að bíða eftir því að ég brotni niður og að það komi eitt- hvað svakalegt sjokk en það er ekki búið að gerast ennþá.. Ég hef fengið gríðarlega góðan stuðning frá Sóleyju og foreldr- um og fjölskyldum okkar beggja, auk Jóhanns Kristjánssonar og fleirum. Þetta er nýr og allt annar heimur sem maður lifir í og frá- brugðin þeim sem maður lifði í, sérstaklega þegar maður er farinn að fást við daglegar athafnir,“ segir Arnar alvarlegur á svip en það er stutt í brosið hjá honum. Fannst ég heppinn Arnar lá í tvo daga á gjörgæslu- deild og þaðan var hann fluttur á tauga- og heilaskurðdeild þar sem hann lá í átta daga. Eftir það fór hann í endurhæfingu á Grensás: „Þegar ég kom inn á Grensás sá ég strax hvað ég væri heppinn. Ég náttúrulega lamaðist en það hefði getað orðið verra. Það að hafa fullan styrk í hönd- unum og að hafa höfuðið í lagi er mikils virði. Í dag hef ég séð fólk sem er í raun meira fatlað heldur en ég er og ég er í raun mjög þakklátur fyrir að ekki hafi farið verr. Ég er alveg sami maðurinn og persónuleikinn er sá sami.“ Duglegur í endurhæfingu Þegar Arnar var kominn í endur- hæfingu á Grensás sagði hann við læknana að hann ætlaði sér að vera kominn út af Grensás innan þriggja mánaða. Læknarnir hristu hausinn og sögðu að hann yrði að vera þar í 6 mánuði: „Ég var í æfingum í 3 mánuði en þá útskrifaðist ég sem dagsjúkling- ur. Sá sem hafði útskrifast fyrr en ég var í fimm og hálfan mánuð á Grensás en hann var lamaður frá mitti: „Ég er svo þrjóskur og ákveðinn að ég náði takmarkinu og var alltaf viss um að mér tæk- ist það. Þjálfunin felst að veru- legu leyti í því að geta tekist á við daglegar athafnir. Til dæmis það að ná jafnvægi í hjólastóln- um er heilmikið mál og það að geta skriðið upp í stólinn aftur ef maður dettur. Þjálfunin hér á Ís- landi er ekki upp á marga fiska þó þjálfararnir séu yndislegt fólk og allir að vilja gerðir. Það vantar bara fjármagn í þennan mála- flokk. Við erum rúmlega 60 ein- staklingar sem erum lamaðir á Íslandi eftir slys og aðstaðan fyrir okkur er ekki nægjanlega góð. Það er hægt að gera betur og rík- ið ætti að sjá sóma sinn í því að leggja meira fjármagn til þessara mála,“ segir Arnar af ákveðni. Lömun Arnars er kölluð á fræði- málinu T4 en hann er lamaður fyrir neðan brjóstkassa. Hann hefur enga magavöðva og hann finnur ekkert fyrir líkamanum fyrir neðan brjóstkassa. Í dag fer Arnar sjálfur niður á Grensás í þjálfun á hverjum degi. Hann fær 45 mínútna þjálfun en honum finnst það alltof lítið: „Ég á að mæta klukkan eitt en ég er oftast mættur á milli tíu og ellefu. Þangað til tíminn minn byrjar er ég sjálfur að æfa mig. 45 mínútur á dag er alls ekki næg þjálfun fyrir mig,“ segir Arnar. Sóley segir að Arnar sé gríðar- lega ákveðinn og þrjóskur ein- staklingur. Eftir slysið hefur þessi þrjóska heldur betur komið í ljós og Arnar er ánægður með það: „Ég keyri bíl og fer allt sem ég vil fara en að sjálfsögðu er lífið allt erfiðara og maður lítur öðr- um augum á lífið. Venjulegir hlutir taka meiri tíma og allt verður flóknara í kringum mann, [ lífsreynslusaga ] a nokkrum árum a að standa upp“ uvík kvöldið fyrir síðustu Ljósanótt í viðtali við Víkurfréttir SÖFNUN HAFIN! Fjölskyldur Arnars og Sóleyjar með hana í fararbroddi hafa hafið söfnun til þess að Arnar komist út til Frakklands í meðferðina. Víkurfréttir hafa ákveðið að veita þeim styrk með því að gefa þeim eina blaðsíðu í blaðinu þar sem merki þeirra fyrirtækja sem styrkja þau munu koma fram. Stofnaður hefur verið reikningur í Sparisjóðnum í Keflavík, nr. 1109-05-409500 þar sem einstaklingar geta lagt sitt af mörkum til meðferðar Arnars. „Ef það á að tala um einhverja hetju í þessu máli þá er það Sóley. Hún hefur sýnt ótrúlegan styrk og það hefur hjálpað mér rosalega. 6. tbl. 2003 - NOTA!!! 5.2.2003 17:15 Page 9

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.