Víkurfréttir - 06.02.2003, Qupperneq 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
SÉR B L AÐ VÍK U R F RÉT TA U M B I K A RÚR S LI TA LE I K I N A Í K Ö R F U K N AT T LE I K
BIKARblaðið
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindavíkur:
Í kvennaleiknum þar sem Keflavík og ÍS mætast munu Keflavíkur-
stúlkur vinna öruggan sigur enda með sterkasta liðið í boltanum í dag.
Keflvíkingar vinna stóran sigur í karlaleiknum gegn Snæfell. Snæfell
er með baráttulið en því miður fyrir þá, enga reynslu í slíkum leikjum
sem Keflvíkingar hafa hins vegar.
Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarðvíkinga:
Keflavík mun bera sigur úr bítum í báðum leikjunum. Stelpurnar
vinna með um 15-20 stigum og sigur strákanna verður svipaður. Þetta
mun því verða þægilegt fyrir Keflavík að mínu mati enda hafa
mótherjarnir, bæði ÍS og Snæfell, ekki þann sálfræðiþátt sem þarf í
slíka leiki.
Logi Gunnarsson, leikmaður Ulm í Þýskalandi:
Þetta verða tveir skemmtilegir leikir. Keflavík vinnur leikinn gegn
Snæfell í karlaflokki enda með sterkara lið. Snæfell hefur komið nokk-
uð á óvart í vetur og mun halda í við Keflavík í fyrri hálfleik en í þeim
síðari munu Keflvíkingar taka þetta. Þetta verður 15 stiga sigur hjá
Keflavík. Kvennaleikurinn verður spennandi en ég held að þar verði
óvænt úrslit þar sem ÍS vinnur með einu stigi.
Guðjón Guðjónsson, stuðningsmaður nr. 1 hjá Keflavík:
Það verður mikil taugaspenna í kvennaleiknum enda hafa stelpurnar
verið að tapa undanfarið. Keflavík vinnur þetta 71:68 eftir mikla
spennu. Karlaleikurinn verður frekar auðveldur fyrir Keflvíkinga enda
eiga Snæfellingar eftir að brotna saman í göngunum. Þeir hafa sýnt
það að þeir geta spilað ágætlega á heimavelli en brotna hins vegar nið-
ur á útivelli. Keflavík vinnur 101:82!
Svava Ósk Stefánsdóttirhefur þrátt fyrir að veraaðeins 19 ára gömul ver-
ið fastamaður í liði Keflavíkur-
stúlkna undanfarin ár. Hún
hefur sjaldan leikið eins vel og í
vetur og hefur verið með tæp-
lega 8 stig að meðaltali í leik.
Svava hefur þurft að glíma við
erfið meiðsli, m.a. í baki en
ekki látið það á sig fá og með
harðfylgni hefur hún komist í
gegnum þau meiðsli. Svava
sagðist í samtali við Víkurfrétt-
ir vera farin að hlakka mikið
til að mæta ÍS í bikarnum. „Ég
er farin að hlakka mikið til að
spila þennan leik og mér lýst
rosalega vel á þetta.Við í Kefla-
víkurliðinu erum allar tilbúnar
að takast á við þetta verkefni“.
Hvernig undirbýrðu þig fyrir
svona stórleiki?
„Ég undirbý mig fyrir þennan
leik eins og alla aðra leiki. Auð-
vitað er mikið búið að hugsa um
þennan leik upp á síðkastið enda
titill í húfi. Við ættum því að vera
tilbúnar í leikinn“.
Hvernig finnst þér þú hafa ver-
ið að standa þig í vetur?
„Bara svona ágætlega en það er
alltaf hægt að gera betur“.
Ertu sátt við spilamennsku og
liðsins?
Já, ég er mjög ángæð með spila-
mennsku liðsins enda ekki mikið
annað hægt þar sem við erum
langefstar í deildinni og aðeins
tapað tveimur leikjum í allan vet-
ur“.
Aðeins að andstæðingi ykkar á
laugardaginn, hvað þurfið þið
að passa í liði ÍS?
Við megum alls ekki gefa þeim
frí skot enda eru þær góðir skot-
menn. Við þurfum svo að hafa
sérstakar gætur á Öldu Leif og
Overstreet en þær eru burðarásar
liðsins.
Hvað verður lagt upp með fyr-
ir leikinn?
Við munum leggja upp með að
spila saman sem lið bæði í vörn
og sókn. Ef það gengur upp er
ekki auðvelt að stoppa okkur.
Verður þetta tvöfalt hjá Kefla-
vík í ár?
Já engin spurning.
TVÖFALT Í ÁR
Hvernig heldur þú að
bikarleikirnir fari um helgina?
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf. – Grundarvegi 23 – 260 Reykjanesbæ
Ritstjóri:
Páll Ketilsson – pket@vf.is
Umsjón með efni:
Sævar Sævarsson – saevar@vf.is
Sjáið einnig www.vf.is
Karlar
Falur Harðarson er með 17,4 stig að meðal-
tali í úrslitaleik bikarsins.
Jón Norðdal Hafsteinsson er að leika annan
bikarúrslitaleik sinn en hann var í liðinu þegar
Keflavík tapaði fyrir Njarðvík 1999.
Guðjón Skúlason hefur leikið flesta úrslita-
leiki fyrir Keflavíkurliðið eða samtals 6 tals-
ins.
Gunnar Einarsson hefur leikið tvo bikarúr-
slitaleiki fyrir Keflavík.
Edmund Saunders er sjöundi erlendi leik-
maðurinn sem Keflavík notar í úrslitaleik bik-
arsins.
Sverrir Þór Sverrisson, Davíð Þór Jónsson,
Gunnar Stefánsson og Magnús Gunnarsson
eru allir nýliðar í úrslitaleik.
Konur
Birna Valgarðsdóttir hefur skoraði 9,6 stig að
meðaltali í úrslitaleik bikarsins
Marín Rós hefur leikið fjóra bikarúrslitaleiki
fyrir Keflavík
Erla Þorsteinsdóttir hefur skorað samtals 45
stig í úrslitaleik
Anna María Sveinsdóttir hefur leikið flesta
bikarúrslitaleiki fyrir Keflavík, eða samtals 11
leiki. Kristín Blöndal hefur leikið 8.
Rannveig Randversdóttir, Ingibjörg Lára
Gunnarsdóttir og Sonia Ortega eru allar að
leika sinn fyrsta bikarúrslitaleik fyrir Keflavík.
Theadóra Káradóttir og Svava Ósk Stefáns-
dóttir hafa báðar leikið einn úrslitaleik fyrir
Keflavík.
6. tbl. 2003 - NOTA NR. 2 5.2.2003 17:58 Page 12