Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.02.2003, Qupperneq 13

Víkurfréttir - 06.02.2003, Qupperneq 13
VÍKURFRÉTTIR I 6. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 I 13 SÉR B L AÐ VÍK U R F RÉT TA U M B I K A RÚR S LI TA LE I K I N A Í K Ö R F U K N AT T LE I K Anna María Sveinsdóttir, þjálfari kvennaliðsins: Undirbúningur liðsins hófst strax inn í klefa eftir leikinn gegn KR. Þá ræddum við um það sem betur mátti fara í þeim leik. Æfingaprógrammið er svipað og fyrir alla aðra leiki en við reynum að gera eitthvað skemmtilegt saman þessa vikuna til að peppa mannskapinn upp fyrir þennan stærsta leik ársins. Það þarf náttúrulega gríðarlega einbeitingu hjá öllum leikmönnum því að pressan er okkar megin eins og svo oft áður. Við erum svo sem vanar því en staða okkar í deildinni hjálpar okkur ekkert á laugardaginn því þar er það bara dagsformið sem skiptir máli. Við förum svo á æfingu í Höllinni á föstudaginn til að ná mesta stressinu úr mannskapnum. Ég er ekki búin að semja ræðu fyrir leikinn en ég og Kjartan Kárason aðstoðarmaður minn förum yfir leikskipulagið okkar og hvernig við munum bregðast við þeirra leik. Aðalatriðið í þessu öllu er að við verðum tilbúnar þegar í leikinn er komið því það er ekkert eins gaman og að verða bikarmeistari. Sigurður Ingimundarson, þjálfari karlaliðsins: Við munum reyna að fínpússa leik okkar á æfingum í vikunni. Farið verður yfir sóknar- og varnarleik sem við komum til með að beita í leiknum. Einnig förum við yfir leik Snæ- fells, hvaða veikleika og styrkleika þeir hafa. Við munum ekki setja neina nýja hluti inn fyrir leikinn heldur treystum við því að við séum klárir í slaginn. Liðið æfir í Laugardals- höllinni á föstudag þannig að við verðum tilbúnir á laugardaginn. Á laugardeginum munum við hafa undirbúninginn svipaðan og fyrir aðra leiki. Við hitt- umst í íþróttahúsinu í Keflavík og förum allir saman í Höllina. Þar förum við yfir leikáætl- anir okkar og komum okkur í rétta gírinn fyrir leikinn. Sverrir Þór Sverrissonhefur verið að spila gríð-arlega vel í vetur með Keflavíkurliðinu. Sverrir Þór er mikill baráttuhundur sem leggur sig alltaf 100% fram og gefst aldrei upp. Sverrir Þór hefur leikið 20 mínútur að meðaltali í leik í vetur og á þeim mínútum hefur hann ver- ið að skila 8,5 stigum og 4,5 fráköstum. Hann segist vera orðinn mjög spenntur fyrir leikinn enda sé þetta stærsti leikurinn í körfunni. „Þetta er fyrsti úrslitaleikurinn hjá mér og fleirum í liðinu og því er þetta enn skemmtilegra. Mér líst vel á leikinn og við gerum okkur fulla grein fyrir því að við verðum að spila góðan leik til þess að ná bikarnum til Keflavíkur því Snæfell er með sterkt lið“, segir Sverrir Þór. Hvernig undirbýrðu þig fyrir svona leiki? Undirbúningurinn hjá mér fyrir þennan leik er eins og fyrir alla aðra leiki. Maður hugsar vel um sitt hlutverk í leiknum og að gefa allt sem maður á í leikinn. Ertu sáttur við spilamennsku þína í vetur? Ég er nokkuð sáttur við mína spilamennsku og liðsins það sem af er. Mér finnst við þó allir eiga mikið inni en við eigum enn möguleika á að ná öllum okkar markmiðum sem við settum okk- ur fyrir mót. Nú varst þú valinn í landsliðið milli jóla og nýárs, kom valið þér á óvart? Já, ég get ekki neitað því að landsliðssætið kom mér aðeins á óvart þar sem ég hafði ekkert velt því fyrir mér hvort ég yrði val- inn. Hvað verður lagt upp með fyr- ir leikinn? Við þurfum að ná upp góðri stemningu innan liðsins fyrir leikinn og spila af krafti því lið eins Snæfell láta okkur örugg- lega hafa fyrir öllu og munu berj- ast til síðasta blóðdropa. Eftir leikinn verðum við að vera vissir um að hafa barist betur og fórnað okkur meira en þeir. Viltu segja eitthvað að lokum? Já, ég vil hvetja alla Keflvíkinga til þess að mæta Höllina og hvetja okkur til sigurs því kefl- vískir stuðningsmenn eru aldrei betri en á svona stórleikjum. Áfram Keflavík! HVERNIG UNDIRBÚA ÞJÁLFARAR KEFLAVÍKURLIÐANNA LEIKMENNINA FYRIR LEIKINA? Til síðasta blóðdropa                         !"#$% Áfram Keflavík! 6. tbl. 2003 - NOTA NR. 2 5.2.2003 18:14 Page 13

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.