Víkurfréttir - 06.02.2003, Side 16
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
:: Fyrst og fremst
Óðinn Ásgeirsson er
loksins genginn til liðs við
knattspynulið Grindavíkur
frá Þór en samræður milli
félaganna hafa verið í gangi
frá því í október. Óðinn er
23 ára varnarmaður.
Stefán Gíslason sem æft
hefur með Keflvíkingum að
undanförnu hefur samið við
liðið til tveggja ára. Hann er
24 ára varnar- og miðju-
maður sem kemur til með
að styrkja liðið mikið í
baráttunni í 1. deildinni í
sumar.
Brenton Birmingham er að
ná sér aftur eftir erfið bak-
meiðsli og skoraði hann 22
stig með liði sínu í frönsku
bikarkeppninni. Liðið tapaði
þó leiknum og er úr leik.
Sævar Garðarsson skoraði
22 stig fyrir Reyni þegar
liðið sigraði Stjörnuna 80:70
á útivelli í 1. deild karla í
körfuknattleik um sl. helgi.
Reynir er í 2. sæti í deildinni
með 20 stig en liðið á tvo
leiki til góða.
16. umferðin í Intersport-
deildinni í körfuknattleik
fór á þessa leið:
Logi Gunnarsson, leik-maður Ulm í þýsku 2.deildinni í körfubolta
hefur verið að leika mjög vel
með liðinu í vetur og komið
nokkuð á óvart. Hann hélt
utan á síðasta ári eftir að hafa
unnið allt sem í boði var í ísl-
enskum körfuknattleik með
Njarðvík. Logi hefur aðlagast
mjög vel þýskri menningu. Til
að byrja með bjó hann einn en
nú býr Birna kærasta hans hjá
honum en hún er í þýskunámi í
Ulm.
Hvernig hefur gengið hjá þér í
vetur?
„Mér hefur persónulega gengið
mjög vel í vetur og er ég stiga-
hæstur í liðinu með rúmlega 17
stig að meðaltali í leik. Ég er sátt-
ur við spilamennsku mína það
sem af er en það er alltaf eitthvað
sem maður getur bætt og þá þarf
maður að vinna í því. Það sem
skiptir þó mestu máli er að liðinu
gengur vel en við erum sem
stendur í efsta sæti riðilsins“.
Hvernig er hið daglega líf í
Þýskalandi?
„Ég vakna um kl. 10 og fer í lyft-
ingasalinn og svo beint á skotæf-
ingu en við æfum alltaf tvisvar á
dag og lyftum þrisvar í viku. Að
skotæfingu lokinni fer ég aftur
heim og borða hádegismat. Ég
fer ekki aftur á æfingu fyrr en
um kl. 19 þannig að ég nota dag-
inn í að gera það sem ég vil.
Þann tíma nota ég m.a. í að kíkja
í búðir, versla í matinn og fl.
Einnig fer ég stundum í nudd en
það er regla hjá liðinu að fara
allavega einu sinni í viku í nudd
og er það alveg nauðsynlegt. Eft-
ir að ég fór að æfa svona oft þarf
ég að hvíla mig aðeins yfir dag-
inn. Ég legg mig því í svona
klukkutíma til að safna kröftum
fyrir kvöldæfingarnar, það er
orðinn hálfgerður vani“.
Hvernig var þér tekið í fyrstu?
„Mér var strax tekið mjög vel af
bæði leikmönnunum og þjálfara.
Ég get ekki sagt annað en að mér
hafi líkað mjög vel við allt hérna
frá því ég kom. Strákarnir í liðinu
eru allir mjög fínir. Íbúðin sem
ég er í er í sama húsi og íbúðir
fjögurra annarra leikmanna
þannig að við erum oft saman
fyrir utan æfingatíma. Ég um-
gengst leikmennina og kærustur
þeirra því talsvert enda er það
nauðsynlegt. Mórallinn í liðinu
er mjög góður og er það mjög
mikilvægt, sérstaklega þar sem
við stefnum á titil”.
Aðeins út í peningalegu hliðina,
ertu að hafa gott upp úr því að
spila körfubolta?
„Já, ég hef það mjög gott. Liðið
útvegar mér íbúð og nýjan bíl og
svo er mjög ódýrt að lifa hérna í
Þýskalandi. Ég get því lagt mikið
af peningum fyrir, sérstaklega
þegar við vinnum marga leiki því
þá fær maður meira úr bónusn-
um”. (Logi hlær)
Nú er liðið í efsta sæti, er
markmiðið sett á úrvalsdeild?
„Ekki spurning og ég held að það
sé raunhæfur möguleiki. Það
verður þó mjög erfitt enda aðeins
eitt lið af 17 sem fer upp um
deild. Ef við höldum rétt á spil-
unum ættum við að geta það”.
Munt þú leika með liðinu á
næsta ári?
„Það er allt óvíst í þeim efnum
eins og er, en ef liðið fer upp um
deild er möguleiki á því. Annars
er ekkert ákveðið hvar ég spila
að ári”.
Njarðvík-ÍR:
95:97 (47:58)
Njarðvíkingar töpuðu á móti
ÍR í ljónagryfjunni í fyrsta
skipti í 20 ár en þetta var annar
tapleikur liðsins í röð. Teitur
Örlygsson var bestur hjá
heimamönnum með 21 stig, 7
fráköst og 8 stoðir en GJ.
Hunter var stigahæstur með 24
stig. Liðið getur gert betur og
mun án efa gera það.
Keflavík-Hamar:
113:74 (54:33)
Keflvíkingar áttu ekki í vand-
ræðum með dapurt Hamarslið.
Í raun hefði verið nær fyrir
Keflvíkinga að hafa liðsæf-
ingu því þar hefðu án efa verið
meiri átök. Damon Johnson
var stigahæstur með 21 stig, 7
fráköst og 7 stoðir. Guðjón
Skúlason setti 20 stig og Ed-
mund Saunders 19.
Grindavík-Skallagrímur:
97:80 (53:36)
Darrell Lewis fór fyrir Grind-
víkingum í öruggum sigri á
Borgnesingum en hann skor-
aði 34 stig. Guðmundur
Bragason átti einnig góðan
leik með 19 stig og hirti 13
fráköst. Skallagrímsmenn
tefldu fram JoVann Johnson
sem er bróðir Damon Johnson.
Grindvíkingar eru á toppnum
með 28 stig, Keflavík er í 3.
sæti með 24 stig og Njarðvík í
5. sæti með 18 stig.
Loginn hefur það gott í Þýskalandi
Logi einbeittur í vörninni í leik með Ulm fyrr í vetur. Logi
leikur í kepnistreyju númer 6 en hann lék í treyju númer
14 þegar hann lék með UMFN.
Logi í baráttunni um
frákast í leik með Ulm.
Damon Johnson sækir hér að körfu Hamarsmanna í leik
liðanna á mánudag. Á innfelldu myndinni má sjá Davíð Þór
Jónsson drippla fyrir utan vítateig gestanna.
Það var fjör á æfingu hjá þessum ungu fótboltapjökkum
þegar ljósmyndari Víkurfrétta smellti af þeim mynd.
Strákarnir fylgjast greinilega með enska boltanum enda
allir klædddir keppnistreyju uppáhalds liða sinna.
www.vf.is
Víkurfréttir á netinuí f tti ti
Nætursöltum
ekki sportið!
6. tbl. 2003 - NOTA!!! 5.2.2003 17:22 Page 16