Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.02.2003, Qupperneq 17

Víkurfréttir - 06.02.2003, Qupperneq 17
VÍKURFRÉTTIR I 6. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 I 17 H jónin Þorsteinn Jak-obsson og Anna Guð-munsdóttir hafa rekið saman fyrirtækið Saumur og merking í Hafnarfirði síðast- liðin tvö ár en sjálf koma þau af Suðurnesjunum, en þau eru úr Sandgerði. Fyrst um sinn var fyrirtækið rekið í bílskúrnum heima hjá þeim, voru síðan um tíma með fyr- irtækið við Strandgötuna en fluttu síðan í verslunarmið- stöðina Fjörð í haust. Fyrir- tækið er fyrst og fremst í merkingum á fatnaði, sæng- urfötum, handklæðum o.þ.h. Þorsteinn segir að fyrirtækið sæki fyrst og fremst viðskipti frá fólkinu af götunni en sæki lítið í fyrirtæki. „Við leggjum fyrst og fremst áherslu á að maðurinn af götunni fái þjón- ustu við sitt hæfi. Við kapp- kostum að skila alltaf frá okkur vandaðri vinnu og vönduðum vörum.“ Merkingarþjónustan sem veitt er er margvísleg. Mikið er merkt af bæði sængurverasett- um, handklæðum og baðslopp- um sem nýtist þá fyrst og fremst til gjafa, m.a. brúðar- og skírnargjafa. Einnig er töluvert um að merktur sé almennur fatnaður, m.a. húfur, úlpur, íþróttagallar og margt fleira. „Bródering í föt hefur verið í boði lengi en nú er að eiga sér stað mikil vakning fyrir henni, bæði fyrir börn í skóla og leik- skóla. Það er líka orðið mjög vinsælt að gefa merkt hand- klæði.“ Og fullorðið fólk er einnig far- ið að merkja föt sín í auknum mæli. „Stundum fjárfestir fólk í dýrum íþróttafatnaði sem það vill merkja. Svo er það í alls kyns félagasamtökum sem þarf að merkja og kórar hafa mikið skipt við okkur. Við merkjum einnig töluvert af töskum og derhúfum.“ Viðskiptavinir fyrirtækisins koma alls staðar að. „Það kem- ur töluvert inn frá Suðurnesjun- um enda þekkjum við vel til þar og við höfum verið með sölufólk þar. Þessi þjónusta hefur líka spurst mikið út.“ Yfirleitt eru vörur sem komið er með til merkingar tilbúnar samdægurs eða daginn eftir. Þó getur biðtíminn lengst ef mikið er að gera og um jólin var hann t.d. ein vika. Þó er hraðþjón- usta veitt þegar sérstaklega stendur á. „Einu sinni var skírn í gangi og einn viðskiptavinur vildi gefa merkt sængurverasett og þá var hringt beint úr kirkj- unni þegar nafnið var komið í ljós og þetta var svo tilbúið fyr- ir skírnarveisluna. Líklega hafa einhverjir orðið hissa á að fá gjöf merkta barninu svona strax eftir skírn,“ segir Anna að lokum. [ viðskipti & atvinnulíf ] Sandgerðingar sauma merki í föt Hafnfirðinga Saumur og merking flutti í Fjörðinn í Hafnarfirði í haust: - og Suðurnesjamenn að sjálfsögðu velkomnir í Fjörðinn Þorsteinn Jakobsson og Anna Guðmundsdóttir í verslun sinni í Firðinum. 6. tbl. 2003 - NOTA!!! 5.2.2003 17:36 Page 17

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.