Víkurfréttir - 06.02.2003, Blaðsíða 20
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
[ Maður ársins 2002 á Suðurnesjum ]
Bíll á hvolfi í ánni
Guðmundur Jens var á leiðinni
austur fyrir fjall í lok nóvember á
síðasta ári með fjölskyldu sinni,
eiginkonunni Önnu Marý Péturs-
dóttur og börnunum Sveinlaugu
Ósk, Hafdísi Ástu og syninum
Knúti þegar þau óku fram á um-
ferðarslys á Suðurlandsvegi. Bif-
reið hafði farið útaf brúnni á
Hólmsá rétt ofan Reykjavíkur.
Bifreiðin hafnaði á hvolfi í ánni
en inni í bílnum voru kona með
þrjú börn.
„Þegar ég kom að slysstaðnum
voru komnir þar tveir aðrir. Þeir
voru hlaupandi á brúnni og það
var ljóst að eitthvað hafði gerst.
Bifreiðin sást hins vegar ekki þar
sem hún lá svo nálægt brúnni.
Annar þeirra var að hringja á
Neyðarlínuna þegar ég kom á
staðinn. Við óðum allir strax nið-
ur að bílnum“.
Heyrðum börnin gráta
inni í bílnum í ánni
Guðmundur Jens segir tilfinning-
una sem fór um sig á leiðinni að
bílnum hafa verið ægilega. Á
leiðinni að bílnum heyrðu þeir
börnin gráta inni í bílnum.
„Við óðum út að bílnum og ég
opnaði hann. Tvö börn höfðu
losað sig úr beltum, en stúlka á
Guðmundur Jens Knútsson
kom að alvarlegu umferðarslysi seint á síðasta ári.
Skjót viðbrögð skiptu
sköpum við björgun mannslífa
Víkurfréttir hafa á annan áratug staðið fyrir vali á manni
ársins á Suðurnesjum. Að valinu hefur verið staðið með
ýmsum hætti. Sérstök dómnefnd hefur verið kölluð til
fundar í ársbyrjun sem borið hefur saman bækur sínar.
Að þessu sinni var viðhöfð kosning á Netinu, þ.e. les-
endur Víkurfrétta á Netinu áttu þess kost að velja mann
ársins á Suðurnesjum 2002. Fjölmargar tilnefningar
bárust, ótrúlegasta fólk var tilnefnt og dæmi um að
heilu fótboltaklúbbarnir hafi verið tilnefndir sem menn
ársins. Pólitíkusar í bæjar- og landsmálum fengu fjöl-
margar tilnefningar en ein er sú tilnefning sem stendur
uppúr kjörinu. Guðmundur Jens Knútsson, rafvirkja-
meistari úr Garðinum, er maður ársins 2002 á Suður-
nesjum. Skjót viðbrögð hans á vettvangi umferðarslyss
við Hólmsá skiptu sköpum í björgun mannslífa.
Guðmundur Jens Knútsson með viðurkenningu Víkurfrétta. Í bakgrunn er mynd af slysinu við Hólmsá.
Frá slysstað á Hólmsá í vetur.
Sa
m
se
tt
m
yn
d
af
V
ík
ur
fré
ttu
m
. M
yn
d
frá
s
ly
ss
ta
ð
te
ki
n
af
lj
ós
m
yn
da
ra
D
V.
6. tbl. 2003 - NOTA!!! 5.2.2003 17:38 Page 20