Víkurfréttir - 06.02.2003, Side 22
Markmið uppeldis er aðná fram því besta sem íbarninu býr og búa
það undir fullorðinsárin. Til að
barnið fullnýti hæfileika sína
þarf að laða fram hæfileika
þess bæði heima og í skólanum.
Einn af þeim þáttum sem auka
líkurnar á því að barnið sé vel
undirbúið fyrir fullorðinsárin
er gott samstarf milli heimilis
og skóla. En hvað felst í því?
Af hálfu foreldra má m.a. nefna.
- Að vel sé fylgst með heima-
námi barnsins og því fylgt eftir
að það sé unnið.
- Að gæta þess námskröfur séu í
samræmi við getu barnsins.
Nemendur eru fljótir að laga sig
að þeim kröfum sem gerðar eru.
Ef gerðar eru of litlar kröfur er
verið að kenna barni að það þurfi
ekki að leggja sig fram til að ná
góðum árangri. Ef gerðar eru of
miklar kröfur er barnið ætíð að
vinna upp fyrir sig og hætta á að
námið verði barninu kvöl. Það
eykur hættuna á því að barnið
hætti skólagöngu sinni of
snemma.
- Að miðla mikilvægum upplýs-
ingum til kennarans. Flestir ef
ekki allir kennarar eru með net-
fang. Allir umsjónarkennarar á
grunnskólastigi eru með fasta
viðtalstíma þar sem hægt er að
hafa samband við þá á vinnutí-
ma.Mikilvægar upplýsingar eru
til til dæmis hvort vinnuálag sé
hæfilegt á barninu, hvernig því
líður í skólanum og hvort eitt-
hvað hefur gerst í lífi barnsins
sem hefur áhrif á hegðan þess í
skólanum.
- Að taka þátt í því starfi sem
skólinn óskar eftir að foreldrar
taki þátt. Dæmi um það gætu
verið námsefniskynningar eða
fræðslufundir af ýmsu tagi.
- Að taka þátt í starfi foreldrafé-
laga. Oft er hægt að hafa tölu-
verð áhrif á það sem fram fer
innan veggja skólans í gegnum
foreldrafélagið.
- Ef leikskólinn er talinn með átt
þú eftir að vera í samstarfi í við
skóla vegna barnsins í 14 ár.
Stundum gerist eitthvað í skólan-
um sem þér finnst orka tvímælis,
barnið kemur kannski heim með
sögu sem þér f innst skrítin.
Hafðu í huga að alltaf eru að
minnsta kosti tvær hliðar á
hverju máli. Það er sjálfsagt og
eðlilegt að hafa samband við
kennara barnsins og heyra frá-
sögn skólans af því sem gerðist
áður en þú tekur afstöðu. Ef þú
ert óánægð/ur með eitthvað sem
gerist í skólanum er æskilegt að
hinir fullorðnu reyni að leysa úr
ágreiningnum sín á milli. Barnið
verður óöruggt ef það heyrir þig
gagnrýna kennara eða annað
starfsfólk skólans fyrir framan
barnið. Það er hins vegar mikil-
vægt að koma gagnrýni á fram-
færi þegar það á við. Æskilegt er
að úr ágreining sé leyst jafnóðum
og hann kemur upp. Gagnrýni
þarf að koma á framfæri þannig
að hægt sé að taka við henni.
Mundu að skólinn og þú eruð
samherjar sem starf ið saman
með hagsmuni barnsins í huga.
- Á sama hátt og það er mikil-
vægt að koma á framfæri gagn-
rýni, er jafnmikilvægt að koma
ánægju sinni á framfæri. Láttu
skólann vita ef þú ert ánægð/ur.
Hrósaðu skólanum ef þú getur.
Setningar eins og: Honum líður
vel í skólanum, hún hefur tekið
miklum framförum, hafa góð á-
hrif á samstarfið og eru barninu
þínu til framdráttar.
- Að sjálfsögðu þarf skólinn líkt
og foreldrarnir að sinna ýmsum
skyldum í samstarfi við foreldra,
en það er efni í aðra grein.
Gott samstarf milli heimilis og
skóla hefur alltaf verið mikil-
vægt. Sennilega hefur það aldrei
verið mikilvægara en nú að vera í
góðu samstarfi við skólann, þar
sem samfélagið virðist í auknum
mæli gera kröfu um að skólinn
sinni ekki bara fræðslu heldur sé
einnig uppeldisstofnun.
Gangi þér vel.
Gylfi Jón Gylfason
yfirsálfræðingur á
Skólaskrifstofu
Reykjanesbæjar.
Ert þú í góðu samstarfi við skólann
sem barnið þitt gengur í?
Gylfi Jón
Gylfason
yfirsál-
fræðingur
á Skóla-
skrifstofu
Reykjanes-
bæjar.
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Nónvarða 1, Keflavík.
165m2 einbýli með 4 svefnh.
60m2 bílskúr og 25m2 sól-
húsi. Glæsileg eign, vel
viðhaldið. Góður staður.
Laus strax. Opið hús milli 2
og 5 sunnudaginn 9. feb.
18.500.000.-
Drangavellir 1, Keflavík.
142m2 einbýli með 4 svefnh.
og 35m2 bílskúr. Eign í góðu
ástandi og góðum stað. Nýtt
þakjárn og miðst.lögn úr eir.
16.800.000.-
Hólagata 1, Sandgerði.
Gott 125m2 einbýli með 3 til
4 svefnh. og 50m2 bílskúr.
Eign á góðum stað í góðu
ástandi. 12.500.000.-
Fífumói 5b, Njarðvík.
Góð 3ja herbergja íbúð á 3.
hæð í fjölbýli. Eign í góðu
ástandi. Hagstætt lán
áhvílıandi.
7.400.000.-
Lyngholt 18, Keflavík.
115m2 miðhæð í þríbýlishúsi
með 3 svefnh. þó nokkuð
endurnýjað. Hagstæð lán
áhvílandi. Laust fljótlega.
11.300.000.-
Suðurgata 23, Keflavík.
130m2 Parhús á 3. hæðum.
Lítil íbúð í kjallara með
sérinngangi sem hægt er að
leigja út. Mikið endurnýjað
að innan. Bílskúr 32m2
Hagstæð lán. 10.700.000.-
Háaleiti 1, Keflavík.
Mjög góð 86m2 3ja herb.
íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli,
stór sameign. Húsið var tekið
í gegn að utan árið 2002.
8.900.000.-
Vallargata 14, Sandgerði.
Mjög góð 89m2 íbúð á efri
hæð í tvíbýli með sér inngan-
gi. 4 svefnherbergi. Eign í
góðu ástandi.
8.200.000.-
Hlíðargata 44, Sandgerði.
Einbýlishús 131m2 með 4
svefnherb. Snyrtileg og góð
eign. Upplýsingar um verð
á skrifstofu.
Heiðarholt 22, Keflavík.
Einstaklingsíbúð á 1. hæð á
góðum stað. Hagstæð lán
áhvílandi. Laus strax.
6.100.000.
Sjafnarvellir 19, Keflavík.
149m2 parhús með 3 svefn-
herbergjum ásamt 32m2 bíl-
skúr. Vandaðar innréttingar.
Hagstæð lán áhvílandi.
Laust fljótlega.
18.800.000
Suðurgata 48, Keflavík.
125m2 parhús á 2 hæðum
með 4 svefnh. Hús sem
mikið er tekið í gegn að
innan. Laust strax.
11.700.000.-
6. tbl. 2003 - NOTA NR. 2 5.2.2003 18:31 Page 22