Víkurfréttir - 20.02.2003, Síða 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Ídag eru 472 einstaklingarskráðir atvinnulausir hjáSvæðisvinnumiðlun Suður-
nesja að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá svæðis-
vinnumiðluninni. Í fréttatil-
kynningunni kemur einnig
fram að svæðisvinnumiðlun
hefur að undanförnu verið að
kynna starfsþjálfunarverkefni
meðal fyrirtækja og stofnana,
en fyrirtæki geta í samráði við
svæðisvinnumiðlun ráðið ein-
staklinga af atvinnuleysisskrá
til sérstakra verkefna.
Fréttatilkynning frá Svæðis-
vinnumiðlun Suðurnesja
Eins og flestir sjá og heyra hefur
atvinnuleysi aukist mikið á und-
anförnum mánuðum. Hjá Svæð-
isvinnumiðlun Suðurnesja er
töluverð hreyfing á skránni en
engu að síður fjölgar umsóknum
enn sem komið er. Töluverð
aukning hefur orðið í atvinnu-
leysi karla en þó eru fleiri konur
á skrá. Áður fyrr þótti það frétt-
næmt ef einhver fagmenntaður
var á skrá en nú er það orðið al-
gengara. Þó er það enn svo að
fagmenntað fólk staldrar styttra
við en það ófagmenntaða. Í dag
eru 472 skráðir án vinnu, 219
karlar og 253 konur en töluverð
hreyfing er á skránni. Ýmis úr-
ræði eru í gangi fyrir atvinnu-
lausa. Má þar nefna námskeið
sem haldið er í janúar og febrúar
fyrir ungt fólk á aldrinum 18 - 23
ára undir nafninu Vertu þú sjálf /
ur.... en hver ertu ? Markmiðið
með námskeiðinu er að veita
ungu atvinnulausu fólki stuðning
og hvatningu til að takast á við
atvinnuleysið og líta á það sem
tækifæri til sjálfskoðunar og gerð
framtíðaráætlana. Í mars fara svo
af stað byrjendanámskeið í tölvu
hjá Tölvuskóla Suðurnesja.
Einnig er verið að skoða nám-
skeið frá Vinnueftirliti Ríkisins
sem ganga út á bóklegan hluta í
Litla vinnuvélapróf inu. Þeir
skjólstæðingar sem hafa verið
þrjá mánuði eða lengur á skrá
geta leitað að námskeiði við hæfi
og lagt inn umsókn þar sem farið
er fram á styrk. Í því tilviki greið-
ir Vinnumiðlun 1/4 hluta svo
framarlega sem upphæðin fer
ekki yfir 50.000 kr. Stéttarfélag
viðkomandi greiðir allt frá 25% -
50% en það sem eftir er greiðir
bótaþeginn sjálfur.
Svæðisvinnumiðlun hefur að
undanförnu verið að senda út
bréf til fyrirtækja og stofnana
ásamt bæklingum til kynningar á
ákveðnum þáttum í starfsemi
Svæðisvinnumiðlunar. Svæðis-
vinnumiðlun býður vinnuveit-
endum upp á að ráða fólk í
starfsþjálfun eða til reynslu með
sérstökum samningum. Starfs-
menn eru ráðnir af atvinnuleysis-
skrá í samráði við Svæðisvinnu-
miðlun. Ef vel tekst til getur ver-
ið um framtíðarráðningu að
ræða.
Ásíðustu þremur vikumhafa tvær rörasprengjurverið sprengdar fyrir
utan heimili tveggja kennara í
Reykjanesbæ. Samkvæmt
heimildum Víkurfrétta olli
önnur sprengjan talsverðu
eignartjóni. Tveir 16 ára ung-
lingar eru grunaðir um verkn-
aðinn en að minnsta kosti ann-
ar þeirra hélt úti vefsíðu þar
sem listi yfir skotmörk er birt-
ur og samkvæmt listanum eru
skotmörkin fjögur talsins. Á
vefsíðunni var einnig að finna
nákvæmar upplýsingar um
gerð rörasprengja og upp-
skriftir að sprengiefni.
Á vefsíðunni, sem var vistuð hjá
vinsælum íslenskum vefþjóni
kallar annar hinna grunuðu sig
íslenskan nasista. Síðan var tekin
af vefnum eftir að Víkurfréttir á
Netinu fjölluðu um hana sl.
þriðjudag.
Jóhannes Jensson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn hjá Lögreglunni í
Keflavík staðfesti í samtali við
Víkurfréttir að málið væri til
rannsóknar og að það væri litið
mjög alvarlegum augum, en
hann vildi að öðru leyti ekki tjá
sig um málið.
E ittþúsund og eitthundraðmanns kusu í netkönnunvf.is en spurt var hvort
Kristján Pálsson ætti að fá að
bjóða fram undir merkjum
DD á vegum Sjálfstæðisflokks-
ins. Þetta er næst mesta þáttta-
ka sem verið hefur í net-
könnun Víkurfrétta og úrslitin
urðu hnífjöfn. 50% vilja leyfa
Kristjáni að bjóða fram undir
merkjum DD en 50% eru á
móti.
„Menn sem hafa svona mikinn
stuðning eins og fram kemur í
þessari könnun eru allir vegir
færir,“ sagði Kristján Pálsson í
samtali við Víkurfréttir.
472 án atvinnu á Suðurnesjum
Skipulagðar sprengjuárásir á heimili
tveggja kennara í Reykjanesbæ
Það blæs oft hressilega við Leifsstöð og þar fengu menn að finna fyrir vonda veðrinu á
laugardag, þó svo menn og vélar hafi komist hjá tjóni, sem betur fer. Hann var bálhvass um
tíma við flugstöðina og var brugðið á það ráð að snúa flugvélum með nefið upp í vindinn eða
koma þeim fyrir hlémegin við landgöngubrúnna á milli norður- og suðurbyggingar. Meðfylgjandi
mynd sýnir eina af vélum Flugleiða sem hafði verið komið fyrir með nefið upp í vindinn.
Með nefið upp í vindinn!
VF-ljósm
ynd: H
ilm
ar B
ragi B
árðarson
Nú standa fyrir dyrummiklar breytingar á„Glerhúsinu“ sem
stendur að Fitjum í Njarðvík,
en nýlega keypti Ævar Ing-
ólfsson umboðsmaður Toyota
á Suðurnesjum húsið. Ævar
sagði í samtali við Víkurfrétt-
ir að hann væri í samninga-
viðræðum við erlenda versl-
unarkeðju og er hann bjart-
sýnn á að samningar takist:
„Við stefnum á að breytingum
á húsinu verði lokið fyrir sum-
arið, en húsið mun stækka um
220 fermetra og verður í heild-
ina tæpir 1000 fermetrar. Ég er
bjartsýnn á að samningar við
verslunarkeðjuna takist, en get
ekkert fullyrt á þessu stigi.“
Ævar segir að hann sjái mikla
möguleika á þessu svæði varð-
andi uppbyggingu verslunar:
„Ég lít á þetta sem framtíðar-
verslunarsvæði og
hef trú á því að
verslun komi til með
að færast út að Fitj-
um. Ég sé til dæmis
fyrir mér að
Rammahúsið verði
nýtt undir verslanir,“
sagði Ævar í samtali
við Víkurfréttir.
- sjá einnig vf.is
Erlend verslunarkeðja
í Glerhúsið að Fitjum
Þakplötur
losnuðu af gömlu
fiskiðjunni
Björgunarsveitir á Suðurnesj-
um höfðu í nógu að snúast á
laugardaginn. Meðal annars
var tilkynnt um lausar þak-
plötur á gömlu fiskiðjunni á
Hafnargötunni og voru björg-
unarsveitarmenn sendir til að
negla plöturnar niður. Þakjárn
losnaði af húsi við Víkurbraut
í Grindavík. Þá voru björgun-
arsveitarmenn fengnir til að
setja farg á lausa muni víða
um Suðurnes.
Netkönnun vf.is
Helmingur
vill DD fram-
boð Kristjáns
Pálssonar
Hefur þú ábendingu um
skemmtilegan
mannlífsviðburð sem á
heima á síðum Víkurfrétta?
Er góugleði eða árshátíð
framundan? Látið okkur vita
á pc@vf.is eða í símum
898 2222 og 421 0002
8. tbl. 2003 - 24 hbb 2 19.2.2003 16:08 Page 2