Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.02.2003, Síða 6

Víkurfréttir - 20.02.2003, Síða 6
6 Logi Gunnarsson átti skín- andi leik þegar lið hans Ulm sigraði Tus Jena, 94:79, í þýsku 2. deildinni í körfuknatt- leik. Logi skoraði 27 stig í leiknum. Ulm er sem stendur í 2. sæti í riðlinum og á liðið enn raunhæfa möguleika á að kom- ast upp um deild. Teitur Örlygsson lék á dögunum sinn 400. leik í úrvalsdeild fyrir UMFN. Hann er að leika sitt 19. tímabil með Njarðvík. Kristín Blöndal skoraði 23 stig fyrir Keflavíkurstúlkur sem burstuðu bikarmeistara ÍS 96:39, í 1. deild kvenna í körfuknattleik um helgina. Keflavíkurstúlkur réðu lögum og lofum í leiknum og áttu ÍS aldrei möguleika gegn sterkum heimastúlkum. Jóhann B. Guðmundsson var í fremstu víglínu þegar Lyn tapaði gegn LA Galaxy á æf- ingamóti á La Manga á Spáni. Gunnar Stefánsson spilaði á dögunum sinn 200. leik fyrir Keflavík. Hann á því aðeins rúmlega 500 leiki í Guðjón Skúlason, félaga sinn í Keflavík ::Fyrst og fremst Dreymir um að komast í NBA Edmund Saunders leik-maður Keflavíkur íkörfuknattleik hefur fall- ið vel inn í liðið eftir að hann gekk til liðs við það í byrjun ársins. Edmund varð NCAA meistari á öðru ári sínu með UCONN og segir hann að það sé draumur hvers háskóla- krakka að vinna þennan titil. Hjá UCONN var hann þekkt- ur fyrir mikla baráttu og harð- fylgni þar sem hann var með 10 stig og 7 fráköst að meðal- tali í leik. Áður en hann kom til Íslands til að leika körfu var hann kennari. „Einn dag varð ég þreyttur á því að kenna og hugsaði með mér að ég væri of ungur til að vera í slíkri vinnu þegar guð hafði blessað mig með körfuboltahæfi- leikum“ sagði Edmund í samtali við Víkurfréttir. Hvernig líkar þér körfuboltinn hér á Íslandi? Mér líkar ágætlega við körfubolt- ann hér á Íslandi en hann er allt öðruvísi en í Bandaríkjunum, allt við leikinn. Þegar þú varst ungur dreymdi þig um að fara í NBA? Já mig dreymdi um að fara í NBA. Ég held að allir sem spili körfubolta dreymi um að spila í NBA. Hvernig var að vinna fyrsta tit- ilinn sinn á Íslandi? Titill er titill, sama hvar það er. Að vinna er það sem skiptir máli en það er gott að halda áfram að vinna meistaratitla eftir að maður er kominn annað. Hvernig líkar þér að spila með Keflavík? Mér finnst fínt að spila með Keflavík og líkar mjög vel við samherja mína í liðinu. Þetta eru góðir strákar sem ég ber mikla virðingu fyrir. Heldur þú að einhverjir þeirra gætu leikið í Bandaríkjunum? Já, það er ekki spurning að sumir þeirra ungu gætu staðið sig vel í USA. Þeir þurfa bara að læra að spila eins og Bandaríkjamenn og einnig að þróa aðra hluta leiks síns. Hvar sér Edmund Saunders sig í framtíðinni? Að loknu tímabili mun ég fara heim og slappa af með móður minni og fjölskyldu og vinum mínum. Ég myndi vilja spila hér aftur ef það kæmi upp, en pen- ingarnir tala. Annars hugsa ég ekki um framtíðina. Hvað sem gerist mun gerast, er það undir guði komið. Að lokum, vinnur Keflavík allt í ár? Ég ætla að vona það, við erum með liðið til þess. N jarðvíkingar sögðu uppsamning við Gary Hunt-er sl. þriðjudag eftir fund stjórnar félagsins. Friðrik Ragnarsson þjálfari Njarðvík- inga sagði í samtali við Víkur- fréttir að ástæða uppsagnar- innar væri sú að menn þar á bæ væru einfaldlega ekki sáttir við spilamennsku Hunters og hlutirnir hefðu einfaldlega ekki gengið upp. „Það eru auðvitað gerðar miklar kröfur til erlendu leikmannanna enda fá þeir borgað fyrir að leika körfuknattleik og oft fer mikill peningur í þá. Við viljum auðvit- að fá mikið fyrir peninginn en staðreyndin er sú að það fengum við ekki í þetta skiptið og því var þessi ákvörðun tekin“, sagði Friðrik. Friðrik sagði að ekki væri búið að ákveða hvort nýr kani yrði fenginn til liðsins en það myndi ráðast á næstu dög- um. „Það gæti vel farið svo að við spilum kanalausir út tímabil- ið en það kemur þó allt í ljós. Við munum væntanlega vera án kana í næsta leik en hvað gerist eftir það verður að koma í ljós“. Hunter rekinn frá UMFN Ed Saunders verst hér Guðmundi Bragasyni í leik liðanna í 17. umferð. Grindavík vann leikinn eftir stórskotahríð Helga Jónasar í 4. leikhluta. Um helgina var körfu-boltamót hjá yngri-kynslóðinni í íþrótta- húsinu við Sunnubraut. Bæði Keflavík og Njarðvík áttu full- trúa á mótinu og stóðu liðin sig með stakri prýði. Á myndunum hér að ofan má sjá Keflavíkurpilta í baráttunni gegn liði Þórs frá Þorlákshöfn. Við á Víkurfréttum viljum minna foreldra og forráðamenn að vera í sambandi við okkur þegar mót eiga sér stað svo hægt sé að smella myndum og hafa smá umfjöllun um yngriflokkaíþróttir. Stöndum saman í að gera íþrótta- umfjöllun blaðsins enn betri! Barátta hjá þeim ungu VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! 18. umferð Intersportdeildar í stuttu máli: Njarðvík - Tindastóll: 88:93 (43:38) Njarðvíkingar töpuðu enn ein- um leiknum sínum í ljóna- gryfjunni, eitthvað sem telst til tíðinda. Leikurinn var spenn- andi en Clifton Cook var heimamönnum erf iður og skoraði 44 stig þar af níu þrista. Gary Hunter var stiga- hæstur í liði heimamanna með 26 stig og Friðrik Stefánsson skoraði 21. Keflavík - Valur: 94:87 (43:38) Keflavík lenti í hálfgerðum vandræðum með slakt Valslið en sigurinn var þó kannski aldrei í hættu. Damon Johnson skoraði 41 stig í öðrum leik sínum í röð og virðist fátt geta stoppað kappann um þessar mundir. KR - Grindavík: 98-72 (47-35) Grindvíkingar náðu ekki að fylgja eftir glæstum sigri á Keflavík í 17. umferðinni. Þeir áttu í stökustu vandræðum KR-inga og voru á hælunum allan leikinn. Darrell Lewis var atkvæðamestur hjá gest- unum með 29 stig og 11 frá- köst. Grindavík er á toppi deildar- innar með 30 stig, Keflavík er í 3. sæti með 26 stig og Njarð- vík er í 6. sæti með 20 stig. Ernir styrkir Arnar Bifhjólaklúbburinn Ernir í Reykjanesbæ afhenti Arnari Helga Lárus- syni peningastyrk að upphæð 25 þúsund krónur í gær. Í viðtali sem Víkurfréttir áttu fyrir stuttu við Arnar Helga kom fram að hann hyggst fara til Frakklands í svokallaða leisermeðferð, en Arnar lamaðist fyrir neðan brjóst í mótorhjólaslysi kvöldið fyrir síðustu Ljósanótt. Einar Björnsson formaður Bifhjólaklúbbsins Arna sagði við þetta til- efni að stjórn félagsins hefði ákveðið að styrkja Arnar með þessum hætti og um leið hvetja almenning til að leggja meðferð Arnars lið. Þeir sem vilja leggja Arnari lið er bent á reikning í Sparisjóð Keflavík- ur: 1109-05-409500 Einar Björnsson, Vilhjálmur Nikulásson og Hannes H. Gilbert for- svarsmenn bifhjólaklúbbsins Arna afhenda Arnari Helga peninga- styrk að upphæð 25 þúsund krónur. 8. tbl. 2003 - 24 hbb 2 19.2.2003 16:12 Page 6

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.