Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.02.2003, Qupperneq 8

Víkurfréttir - 20.02.2003, Qupperneq 8
B jörgunarsveitin Þorbjörnhefur sent frá sér saman-tekt vegna björgunar á flutningaskipinu Trinket í inn- siglingunni til Grindavíkur í gær. Mikill sjógangur var við Grindavík þegar atvikið átti sér stað og fékk Oddur V. Gíslason m.a. á sig hnút á leið- inni á slysstaðinn. Eftirfarandi er samantekt björgunarmanna frá því á mánudag en hún birt- ist á vefsvæði Slysavarnafélags- ins. Klukkan 12:47 á mánudag fékk Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík útkall F-1 rauður vegna vélarvana skips í innsigl- ingunni við Grindavík. Útkall F- 1 rauður er hæsta viðbragðsstig í útkalli björgunarsveita - neyðar- útkall. Björgunarsveitin Þorbjörn sendi strax björgunarskipið Odd V. Gíslason af stað auk þess sem björgunarmenn fóru einnig af stað landleiðina með fluglínu- tækin en líkur voru á að skipið ræki á land. Að beiðni Björgun- arsveitarinnar Þorbjarnar voru bjsv. Skyggnir í Vogum og bjsv. Suðurnes í Reykjanesbæ settar í viðbragðsstöðu ef þörf væri á meiri mannskap auk þess sem svæðisstjórn björgunarsveita á Suðurnesjum kom saman. Þá fór línuskipið Skarfur GK einnig út til aðstoðar auk þess sem hafn- sögubáturinn Villi var á vett- vangi. Ms. Trinket sem er leiguskip Eimskips hf., óskaði aðstoðar er það var á útleið frá Grindavík eft- ir að hafa lestað um 1300 tonn af loðnumjöli hjá loðnuverksmiðju Samherja hf. Ms. Trinket er 82 metra langt og um 8 metra breitt. Veður í Grindavík: SA 10-12 m/s og rigning, ölduhæð 5 metrar og brim við innsiglingu. Um sjö mínútum frá útkalli, kl. 12:54 var björgunarskipið Oddur V. Gíslason kominn að Trinket. Mikill sjógangur var við Grinda- vík og fékk Oddur V. Gíslason á sig hnút á útleiðinni. Ms. Trinket hafði snúist í innsigl- ingunni og sneri stefninu til norð- vesturs og rak skipið vestur úr innsiglingarrennunni. Skipið var þá úti á djúpsundinu svokallaða sem er utan við Sundboðann. Þegar bs. Oddur V. Gíslason kom að skipinu tilkynnti skipstjóri þess að leki væri kominn að skipinu og að olía læki út og stýri væri óvirkt. Voru skipverjar á Trinket tilbúnir með dráttartaug og tók skamma stund að koma henni yfir í björgunarskipið þrátt fyrir mikinn sjógang. Oddur V. Gíslason byrjaði á að draga skip- ið til austurs inn í innsiglingar- rennuna þar sem skipið átti stutt eftir upp í brimið. Þegar það hafði tekist var stefnan tekin til hafnar. Þar sem aldan kom undir skipið að aftan lét það mjög illa í drætti. Bs. Oddur V. Gíslason var kominn með skipið að bryggju í Grindavík kl. 13:15. Þyrla Land- helgisgæslunnar var komin á vettvang um svipað leyti. Slökkvilið Grindavíkur var kall- að út til að dæla sjó úr skipinu auk þess sem kafari vinnur að því að þétta göt á skipinu. Björg- unarsveitin Þorbjörn er með tvo slöngubáta og mannskap við þær aðgerðir. 8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Dönsk bluegrass hljómsveit ásamt söngkonunni Sine Bach Rüttel mun spila á „Dönskum dögum“. Í þessari hljómsveit eru afburða hljóðfæra- leikarar auk Sine Bach Ruttel – en hún er jafnframt aðallagasmiður og textahöfundur sveitarinnar. Sine er aðalsöngvari hljómsveit- arinnar og leikur jafnframt á banjó og gítar og hefur hvarvetna vakið mikla athygli og hrifningu áhorfenda fyrir frábæra túlkun og sjarma. Auk þess að leika fyrir matargesti á „Dönskum dögum” þá mun hljómsveitin leika fyrir dansi á Fjörugarðinum föstudags- og laugardags- kvöldin 21. – 22. febrúar og 28. febrúar og 1. mars. Fjörugarðurinn: Hljómsveit hinnar stór- skemmtilegu Sine Bach Rüttel spilar fyrir dansi föstudag 21. og laugardag 22. febrúar og svo föstu- daginn 1. mars og laugar- dag 2. mars. Fjaran: Spennandi matseðill að dönskum hætti ásamt við eigandi drykkjarföngum með lifandi danskri tónlist í Fjörukránni 20. febrúar til 2.mars. Danskir dagar St afr æn a h ug m yn da sm ið jan /2 88 3 Björgunarskipið fékk á sig hnút við björgunina í Grindavík VF-ljósm ynd: Eyþór R eynisson 8. tbl. 2003 - 24 hbb 2 19.2.2003 16:14 Page 8

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.