Víkurfréttir - 20.02.2003, Side 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Umfjöllun um þessi mál erviðkvæm og vildu fáiraðilar sem Víkurfréttir
ræddi við tjá sig um málið
undir nafni og sögðu ástæðuna
vera að þeir vildu ekki tengja
umræðuna við ákveðna skóla á
Suðurnesjum, því vandamálið
væri til staðar um allt Ísland.
Samfélagsfræðikennari sem
Víkurfréttir ræddi við sagði að
töluvert væri um kynþáttafor-
dóma unglinga í garð innflytj-
enda og ekki bara á Suðurnesj-
um, heldur um allt land: „Von-
andi er þetta hávær minnihluti
sem er mikið áberandi, en
krakkarnir eru ófeimnir við að
viðra sínar skoðanir og menn
skammast sín ekkert fyrir að
viðra fordóma sína.“
Samfélagsfræðikennarar verða
meira varir við skoðanir ungling-
anna þar sem á námskránni er
þjóðfélagsfræði og ýmis umræða
um hugtök eins minnihlutahópa,
þjóð og þjóðerni og spurningun-
um „hvað er Íslendingur?“ og
„hvað er þjóð?“ er velt upp.
Hann segist sérstaklega sjá for-
dóma í garð ákveðinna hópa inn-
flytjenda: „Sérstaklega hef ég
fundið fyrir fordómum í garð
innflytjenda frá Tælandi en
minna gagnvart öðrum hópum,
einhverra hluta vegna. Ég verð
minna var við slíka fordóma
gagnvart blökkumönnum.“
Kennaranum finnast fordómarnir
hafa aukist á síðustu árum: „Þetta
er vandamál sem íslendingar
þurfa að fara að horfast í augu
við og taka á umfjöllun um inn-
flytjendamál og aukna fjölbreytni
í íslensku samfélagi. Það verður
að taka þessa umræðu á vitrænan
hátt en það hefur ekki verið gert
hingað til. Þess vegna fara for-
dómar af stað og það er ofboðs-
lega hættulegt ef kynslóð elst hér
upp með slíka fordóma, því eins
og ég sagði getur minnihlutinn
verið hávær.“
Þegar atvinnuleysi eykst segist
kennarinn merkja aukna nei-
kvæða umræðu í samfélaginu
um innflytjendur: „Ísland er
mjög einleitt samfélag og þetta er
mjög nýtt fyrir okkur. Og núna
þrengir mjög að vegna atvinnuá-
standsins. Umræður fara að
spretta upp varðandi það að inn-
flytjendur séu að taka vinnu frá
íslendingunum þegar atvinnu-
leysið eykst.“
Þegar kennarinn er spurður að
því hvað hægt sé að gera svarar
hann: „Fyrst og fremst er að við-
urkenna það að kynþáttafordóm-
ar eru vandamál og þora að ræða
um það. Þetta er
ekki eitthvað sem
er bara í Reykja-
nesbæ eða á Suður-
nesjum, heldur er
þetta allsstaðar á
landinu. Stjórnvöld
þurfa að átta sig á
því að það þarf að
setja ákveðna
stefnu varðandi
þennan málaflokk.
Það þarf að ákveða
hvernig tekið sé á
móti innflytjend-
um, hvernig hægt
sé að fræða íslend-
inga um mismun-
andi menningar-
heima og hvernig
hægt sé að koma í
veg fyrir að þeir
sem flytji til okkar lokist í sínum
menningarkima. Þetta eru grund-
vallaratriði sem þarf að taka á.“
Annar samfélagskennari sem
Víkurfréttir ræddi við og vildi
ekki láta nafns síns getið sagði að
því miður væru fordómar í garð
innflytjenda töluvert útbreiddir,
ekki bara meðal unglinga heldur
líka fullorðinna: „Þessir fordóm-
ar fara kannski ekkert hátt, en um
leið og þessi mál eru tekin til um-
ræðu og krakkarnir fara að tjá sig
þá finnur maður að fáfræðin er
mikil í sambandi við þessi mál.
En ástæðan fyrir því að þessar
skoðanir fara ekki hátt er vegna
þess að krakkarnir vita að það er
ákveðið „taboo“ að hafa þessar
skoðanir.“
Kennarinn segir að þessir for-
dómar séu vegna fáfræði eins og
allir aðrir fordómar: „Lykillinn
að því að eyða þessum fordóm-
um er að upplýsa fólk, en það
þarf að leyfa þessum einstakling-
um að koma fram með sínar
skoðanir þó þær séu neikvæðar
og síðan þarf að ræða hlutina.
Skólarnir þurfa allir að taka á
þessum málum.“
Í þeim samtölum sem Víkurfrétt-
ir hafa átt við ýmsa aðila var ít-
rekað bent á hve stórt hlutfall
væri af nemendum af erlendu
bergi brotnu í Myllubakkaskóla
og voru margir á þeirri skoðun að
fordómarnir eyddust þegar hóp-
arnir kynntust og væru saman í
skólanum.
Í Myllubakkaskóla eru um 10%
nemenda af erlendu bergi brotnir.
Vilhjálmur Ketilsson skólastjóri
Myllubakkaskóla sagði í samtali
við Víkurfréttir að hann hefði alls
ekki orðið mikið var við fordóma
í skólanum: „Það eru eitt og eitt
dæmi sem koma upp, en það eru
alls ekki alvarleg dæmi. Í skólan-
um eru margir nemendur af er-
lendu bergi brotnir og nemend-
um finnst það eðlilegt og þessir
krakkar falla vel inn í hópinn. En
auðvitað koma upp vandamál
öðru hverju sem við tökum á af
mikilli festu. Ég get alls ekki sagt
að um vandamál sé að ræða.“
Víkurfréttir ræddu við skóla-
stjórnendur af öllum Suðurnesj-
um um kynþáttafordóma og í
langflestum tilfellum töldu þeir
að skólarnir þyrftu að auka
fræðslu um þessi mál og eyða
þannig fordómum. Þeir voru
sammála um að umræða um
þessi mál væri þörf, ef hún færi
fram á faglegum nótum.
Þegar á heildina er litið virðist
vera nokkuð um kynþáttafor-
dóma á Suðurnesjum og er alls
ekki hægt að segja að sé verri hér
en annarsstaðar á Íslandi, enda
hefur umræða um þessi mál ver-
ið í öllu samfélaginu um nokk-
urra ára skeið. Skólarnir virðast
vera að taka á þessum málum og
er fræðsla þar lykilatriði, enda er
hún besta vopnið gegn fáfræði og
fordómum.
Eru unglingar á Suðurnesjum með kynþáttafordóma í garð innflytjenda? Hefur neikvæð umræða meðal unglinga á Suður-
nesjum um innflytjendur aukist á síðustu árum? Samkvæmt þeim samtölum sem Víkurfréttir hafa átt við fjölda aðila varðandi þessi mál kemur í ljós að
áhyggjur manna byggjast á því að neikvæðar umræður unglinga um innflytjendur hafi aukist á síðustu árum. Einn aðili benti á að fyrir 10-15 árum hafi
örfáir innflytjendur á unglingsaldri búið á Suðurnesjum, en á síðustu árum hefur fjölgað töluvert í þeim hópi. Annar aðili sagði að hann hefði áhyggjur af
því ef þessi neikvæða umræða myndi aukast og að heimilin og skólinn þyrftu að taka höndum saman við að kveða niður fordóma og auka fræðslu.
Hafþór Barði Birgisson forstöðumaður hjá félagsmiðstöðinni Fjör-
heimum segir að hann hafi ekki orðið var við kynþáttafordóma hjá
unglingum sem sækja félagsmiðstöðina. Hann segir að frá því hann
hóf störf hjá Fjörheimum fyrir um fjórum árum síðan hafi hann
aldrei fundið fyrir kynþáttafordómum í garð litaðra íslendinga: „Ég
hef aldrei orðið var við þannig umræðu hjá krökkunum og ég er bara
að heyra þetta í fyrsta skipti.“
Hafþór segir að það geti verið önnur umræða inni í skólunum, held-
ur en í Fjörheimum: „Það getur vel verið að það sé meira um þetta
inn í skólunum þar sem allir eru í vörn, ég veit það ekki. Í Fjörheima
eru að koma krakkar sem eru mjög opin og félagslynd og þau eru
alls ekki með neina fordóma. Við erum líka sem betur fer að fá hör-
undsdökka krakka í félagsmiðstöðina og það hafa engin vandamál
verið að koma upp,“ segir Hafþór.
Fræðsla gegn fordómum lykilatriði
Án fordóma í Fjörheimum
8. tbl. 2003 - bls.10-11 19.2.2003 17:11 Page 10