Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.02.2003, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 20.02.2003, Blaðsíða 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Umfjöllun um þessi mál erviðkvæm og vildu fáiraðilar sem Víkurfréttir ræddi við tjá sig um málið undir nafni og sögðu ástæðuna vera að þeir vildu ekki tengja umræðuna við ákveðna skóla á Suðurnesjum, því vandamálið væri til staðar um allt Ísland. Samfélagsfræðikennari sem Víkurfréttir ræddi við sagði að töluvert væri um kynþáttafor- dóma unglinga í garð innflytj- enda og ekki bara á Suðurnesj- um, heldur um allt land: „Von- andi er þetta hávær minnihluti sem er mikið áberandi, en krakkarnir eru ófeimnir við að viðra sínar skoðanir og menn skammast sín ekkert fyrir að viðra fordóma sína.“ Samfélagsfræðikennarar verða meira varir við skoðanir ungling- anna þar sem á námskránni er þjóðfélagsfræði og ýmis umræða um hugtök eins minnihlutahópa, þjóð og þjóðerni og spurningun- um „hvað er Íslendingur?“ og „hvað er þjóð?“ er velt upp. Hann segist sérstaklega sjá for- dóma í garð ákveðinna hópa inn- flytjenda: „Sérstaklega hef ég fundið fyrir fordómum í garð innflytjenda frá Tælandi en minna gagnvart öðrum hópum, einhverra hluta vegna. Ég verð minna var við slíka fordóma gagnvart blökkumönnum.“ Kennaranum finnast fordómarnir hafa aukist á síðustu árum: „Þetta er vandamál sem íslendingar þurfa að fara að horfast í augu við og taka á umfjöllun um inn- flytjendamál og aukna fjölbreytni í íslensku samfélagi. Það verður að taka þessa umræðu á vitrænan hátt en það hefur ekki verið gert hingað til. Þess vegna fara for- dómar af stað og það er ofboðs- lega hættulegt ef kynslóð elst hér upp með slíka fordóma, því eins og ég sagði getur minnihlutinn verið hávær.“ Þegar atvinnuleysi eykst segist kennarinn merkja aukna nei- kvæða umræðu í samfélaginu um innflytjendur: „Ísland er mjög einleitt samfélag og þetta er mjög nýtt fyrir okkur. Og núna þrengir mjög að vegna atvinnuá- standsins. Umræður fara að spretta upp varðandi það að inn- flytjendur séu að taka vinnu frá íslendingunum þegar atvinnu- leysið eykst.“ Þegar kennarinn er spurður að því hvað hægt sé að gera svarar hann: „Fyrst og fremst er að við- urkenna það að kynþáttafordóm- ar eru vandamál og þora að ræða um það. Þetta er ekki eitthvað sem er bara í Reykja- nesbæ eða á Suður- nesjum, heldur er þetta allsstaðar á landinu. Stjórnvöld þurfa að átta sig á því að það þarf að setja ákveðna stefnu varðandi þennan málaflokk. Það þarf að ákveða hvernig tekið sé á móti innflytjend- um, hvernig hægt sé að fræða íslend- inga um mismun- andi menningar- heima og hvernig hægt sé að koma í veg fyrir að þeir sem flytji til okkar lokist í sínum menningarkima. Þetta eru grund- vallaratriði sem þarf að taka á.“ Annar samfélagskennari sem Víkurfréttir ræddi við og vildi ekki láta nafns síns getið sagði að því miður væru fordómar í garð innflytjenda töluvert útbreiddir, ekki bara meðal unglinga heldur líka fullorðinna: „Þessir fordóm- ar fara kannski ekkert hátt, en um leið og þessi mál eru tekin til um- ræðu og krakkarnir fara að tjá sig þá finnur maður að fáfræðin er mikil í sambandi við þessi mál. En ástæðan fyrir því að þessar skoðanir fara ekki hátt er vegna þess að krakkarnir vita að það er ákveðið „taboo“ að hafa þessar skoðanir.“ Kennarinn segir að þessir for- dómar séu vegna fáfræði eins og allir aðrir fordómar: „Lykillinn að því að eyða þessum fordóm- um er að upplýsa fólk, en það þarf að leyfa þessum einstakling- um að koma fram með sínar skoðanir þó þær séu neikvæðar og síðan þarf að ræða hlutina. Skólarnir þurfa allir að taka á þessum málum.“ Í þeim samtölum sem Víkurfrétt- ir hafa átt við ýmsa aðila var ít- rekað bent á hve stórt hlutfall væri af nemendum af erlendu bergi brotnu í Myllubakkaskóla og voru margir á þeirri skoðun að fordómarnir eyddust þegar hóp- arnir kynntust og væru saman í skólanum. Í Myllubakkaskóla eru um 10% nemenda af erlendu bergi brotnir. Vilhjálmur Ketilsson skólastjóri Myllubakkaskóla sagði í samtali við Víkurfréttir að hann hefði alls ekki orðið mikið var við fordóma í skólanum: „Það eru eitt og eitt dæmi sem koma upp, en það eru alls ekki alvarleg dæmi. Í skólan- um eru margir nemendur af er- lendu bergi brotnir og nemend- um finnst það eðlilegt og þessir krakkar falla vel inn í hópinn. En auðvitað koma upp vandamál öðru hverju sem við tökum á af mikilli festu. Ég get alls ekki sagt að um vandamál sé að ræða.“ Víkurfréttir ræddu við skóla- stjórnendur af öllum Suðurnesj- um um kynþáttafordóma og í langflestum tilfellum töldu þeir að skólarnir þyrftu að auka fræðslu um þessi mál og eyða þannig fordómum. Þeir voru sammála um að umræða um þessi mál væri þörf, ef hún færi fram á faglegum nótum. Þegar á heildina er litið virðist vera nokkuð um kynþáttafor- dóma á Suðurnesjum og er alls ekki hægt að segja að sé verri hér en annarsstaðar á Íslandi, enda hefur umræða um þessi mál ver- ið í öllu samfélaginu um nokk- urra ára skeið. Skólarnir virðast vera að taka á þessum málum og er fræðsla þar lykilatriði, enda er hún besta vopnið gegn fáfræði og fordómum. Eru unglingar á Suðurnesjum með kynþáttafordóma í garð innflytjenda? Hefur neikvæð umræða meðal unglinga á Suður- nesjum um innflytjendur aukist á síðustu árum? Samkvæmt þeim samtölum sem Víkurfréttir hafa átt við fjölda aðila varðandi þessi mál kemur í ljós að áhyggjur manna byggjast á því að neikvæðar umræður unglinga um innflytjendur hafi aukist á síðustu árum. Einn aðili benti á að fyrir 10-15 árum hafi örfáir innflytjendur á unglingsaldri búið á Suðurnesjum, en á síðustu árum hefur fjölgað töluvert í þeim hópi. Annar aðili sagði að hann hefði áhyggjur af því ef þessi neikvæða umræða myndi aukast og að heimilin og skólinn þyrftu að taka höndum saman við að kveða niður fordóma og auka fræðslu. Hafþór Barði Birgisson forstöðumaður hjá félagsmiðstöðinni Fjör- heimum segir að hann hafi ekki orðið var við kynþáttafordóma hjá unglingum sem sækja félagsmiðstöðina. Hann segir að frá því hann hóf störf hjá Fjörheimum fyrir um fjórum árum síðan hafi hann aldrei fundið fyrir kynþáttafordómum í garð litaðra íslendinga: „Ég hef aldrei orðið var við þannig umræðu hjá krökkunum og ég er bara að heyra þetta í fyrsta skipti.“ Hafþór segir að það geti verið önnur umræða inni í skólunum, held- ur en í Fjörheimum: „Það getur vel verið að það sé meira um þetta inn í skólunum þar sem allir eru í vörn, ég veit það ekki. Í Fjörheima eru að koma krakkar sem eru mjög opin og félagslynd og þau eru alls ekki með neina fordóma. Við erum líka sem betur fer að fá hör- undsdökka krakka í félagsmiðstöðina og það hafa engin vandamál verið að koma upp,“ segir Hafþór. Fræðsla gegn fordómum lykilatriði Án fordóma í Fjörheimum 8. tbl. 2003 - bls.10-11 19.2.2003 17:11 Page 10

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.