Víkurfréttir - 20.02.2003, Blaðsíða 12
*
*
*
*
17VF *
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Hvaða bækur ertu að lesa núna?
Ýmsar námsbækur, og svo bókaflokk um
seinni heimsstyrjöldina og einhvern upp-
flettiatlas í sögu fyrir keppnina.
Hvernig ertu í hausnum eftir allan
þennan lestur?
Nokkuð góður bara.
Hvað ætlaðirðu að verða þegar þú varst
lítill?
Tannréttingatannlæknir, þeir eiga svo mik-
inn pening.
Hvert ferðu þegar þú skemmtir þér?
Misjafnt.
Hver er fallegasta stúlkan í FS að þínu
mati?
Jovana L. Stefánsdóttir.
Áttu bíl?
Enginn bíll.
Hvaða eru reikistjörnurnar margar?
Þær eru 9
Hver er fjærst sólu?
Plútó er lengst frá jörðu .
Hvað hefur Davíð Oddsson verið lengi
forsætisráðherra?
12 ár þann 30. apríl næstkomandi.
Í hvaða fögum í skólanum ertu bestur?
Ætli það sé ekki í líffræði, sögu og stærð-
fræði.
Stundarðu íþróttir? Hvaða?
Já, ég æfi fótbolta með Grindavík
Er eitthvað leynivopn sem þið búið yfir
fyrir keppnina?
Ef svo væri, þá myndi ég ekki segja frá
því.
Ertu hjátrúafullur fyrir keppnina?
Nei.
Eruð þið með eitthvað kerfi á því hver á
að svara spurningum?
Bara sá sem veit svarið hverju sinni
Eruð þið samrýmdir?
Mjög svo
Hvaða spurningar eru þín sérgrein?
Ég sé um sögu, íþróttir og landafræði
Þegar hundrakallinum verður kastað
upp, hvora hliðina myndir þú velja?
Alltaf skjaldarmerkið.
Ertu stressaður fyrir keppnina?
Ekki eins og er, en verð það líklega daginn
sem hún er.
Hvernig ætlið þið að slaka á fyrir
keppnina?
Of langt í hana til að spá í það.
Eruð þið bjartsýnir á að vinna og kom-
ast áfram?
Við eigum jafna möguleika og hver annar.
Eitthvað að lokum?
Áfram FS og vonandi koma sem flestir í
íþróttahúsið 6. mars kl 3.
Hvaða bækur ertu að lesa núna?
Ég er að glugga í allskonar bækur um
menningu og listir.
Hvernig ertu í hausnum eftir allan
þennan lestur?
Ég er fínn, maður finnur ekkert meira álag
á kerfinu en vanalega.
Hvað ætlaðirðu að verða þegar þú varst
lítill?
Ég man það ekki ég hef ætlað mér að
verða svo margt.
Hvert ferðu þegar þú skemmtir þér?
Bara þangað sem stuðið er.
Hver er fallegasta stúlkan í FS að þínu
mati?
Þær eru svo margar að maður getur ekki
ákveðið sig.
Áttu bíl?
Nei.
Hvaða eru reikistjörnurnar margar?
9
Hver er fjærst sólu?
Plútó.
Hvað hefur Davíð Oddsson verið lengi
forsætisráðherra?
Síðan 1991.
Í hvaða fögum í skólanum ertu bestur?
Öllum sem það þarf ekkert að reikna í.
Stundarðu íþróttir?
Nei.
Er eitthvað leynivopn sem þið búið yfir
fyrir keppnina?
Nei.
Gerirðu eitthvað sérstakt?
Ég er nú búinn að segja að ég ætla ekki að
raka mig fyrr en við dettum út.
Eruð þið með eitthvað kerfi á því hver á
að svara spurningum?
Nei.
Eruð þið samrýmdir?
Já.
Hvaða spurningar eru þín sérgrein?
Menning og listir
Þegar hundrakallinum verður kastað
upp, hvora hliðina myndir þú velja?
Skjaldamerkið.
Ertu stressaður fyrir keppnina?
Það er ekki komið ennþá en ætli maður fái
ekki smá sting í magann þegar líður að
leikdegi.
Hvernig ætlið þið að slaka á fyrir
keppnina?
Ætli það verði nokkuð slakað á ætli við
æfum okkur ekki fram að keppni.
Eruð þið bjartsýnir á að vinna og kom-
ast áfram?
Já já, er ekki alltaf möguleiki ef maður
tekur þátt?
Eitthvað að lokum?
Ég ætla að deyja ungur eins og Iggy Pop
(Johnny Rotten Sex Pistols)
NAFN: ÁRNI JÓHANNSSON
Aldur:19 ára Maki: Enginn Uppáhaldstala: 3
NAFN: DANÍEL PÁLMASON
Aldur: 18 ára Maki: Jovana L. Stefánsdóttir Uppáhaldstala: 7
Erfitt að velja sætus
tu
stelpuna í Fjölbraut
Árni:
Vildi verða tannrétt
inga-
tannlæknir því þeir
eiga
svo mikið af peningu
m!
Daníel:
Ge
8. tbl. 2003 - 24 hbb 2 19.2.2003 16:16 Page 12