Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.02.2003, Qupperneq 14

Víkurfréttir - 20.02.2003, Qupperneq 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! 17VF ungt fólk á Suðurnesjum * * * * ** HVETJUM UNGT FÓLK TIL AÐ SENDA OKKUR EFNI OG MYNDIR! Við segjum að sautján sé á miðri leið! VF17 er sérefni fyrir ungt fólk á aldrinum 10-24 ára. Þetta er breiður hópur en þættinum er hér með ýtt úr vör. Efnishugmyndir berist til pc@vf.is Á döfinni hjá Fjörheimum: Billiardmót Fjörheima verður haldið laugardaginn 22. febrúar, þess má til gamans geta að Fjörheimar eru þrefaldir SamSuð meistarar og núverandi Íslandsmeistarar félagsmiðstöðva í billiard. S telpunótt var haldin ífélagsmiðstöðinni Fjör-heimum sl. föstudag. Eins og nafnið gefur til kynna var um stelpukvöld að ræða þar sem stelpur úr öllum grunnskólum Reykjanesbæjar mættu. Færri komust að en vildu enda var um einstakt kvöld að ræða þar sem stúlk- urnar gerðu ýmislegt sér til gamans. Haldinn var fyrirlestur um átröskun, stúlkurnar komu með heimatilbúin skemmtiatriði, borðaðar voru pizzur og margt fleira. Hápunktur kvöldsins var þó án efa þegar Auddi og Sveppi í 70 mínútum á Popptíví mættu á svæðið því þá ætlaði allt um koll að keyra. Stelpurnar fengu að spyrja kappana spjörunum úr, drukkinn var ógeðisdrykkur og að lokum tóku drengirnir nokkur dansspor, stelpunum til mikillar ánægju. N emendur Fjölbrauta-skóla Suðurnesja hafanú fengið aðgang að upplýsingakerfi framhalds- skóla, INNU. Hver nemandi hefur fengið aðgangsorð og getur þannig komist inn í kerf- ið á netinu og skoðað allar upplýsingar sem skráðar eru um hann í kerfið, t.d. stunda- töflu, einkunnir, fjarvistir o.fl. Framhaldsskólarnir eru um þessar mundir að veita nem- endum sínum þennan aðgang en Fjölbrautaskóli Suðurnesja reið á vaðið og hafa viðbrögð verið jákvæð og nemendur verið duglegir að kanna mögu- leikana sem þetta gefur. Þess má geta að foreldrar nemenda yngri en 18 ára geta fengið að- gangsorðið og fylgst þannig með ástundun og árangri barna sinna. Fjölbrautaskóli Suðurnesja er fyrsti skólinn sem fær þessa tengingu fyrir nemendur og erum við því að prufa þetta kerf i. Nemendur geta einnig komist inn á kerfið úr hvaða tölvu sem er svo framarlega að hún sé Internet tengd. Nemendur hafa í dag sagt að þetta sé bylting og nú geti þau fylgst með t.d. fjarvist- um sínum beint og þegar þeim hentar. Einnig má geta þess að skólinn er kominn inn á háhraðanet framhaldsskóla og símenntunar- miðstöðva og er nettenging skól- ans komin í 100 mbs. Með þeirri tengingu geta framhaldsskólar landsins keyrt þjónustur hjá hvor öðrum og engin munur er á því að opna skjá í Keflavík eða Sel- fossi svo dæmi sé tekið, segir í frétt á vef Fjölbrautaskóla Suður- nesja. Á miðvikudaginn ínæstu viku eða 26.febrúar, verður hin ár- lega stærðfræðikeppni grunn- skólanemenda haldin í Fjöl- brautaskóla Suðurnesja. Þetta verður í sjötta sinn sem þessi keppni er haldin í FS en hún er haldin í samvinnu við Flens- borgarskólann í Hafnafirði og þaðan koma dæmin. Keppnin sem hefst kl. 14:15 er ætluð nemendum 8., 9. og 10. bekkjar en nemendur geta komið á bil- inu frá kl.14:05 til 14:30. Íslandsbanki í Keflavík mun sem áður veita peningaverðlaun þeim þremur keppendum sem ná best- um árangri í hverjum árgangi. Einnig ætlar Verkfræðistofa Suð- urnesja að gefa þeim keppendum sem lenda í þrem efstu sætunum í 10. bekk grafískan vasareikni. Undanfarin ár hefur verið vax- andi áhugi fyrir þessari keppni og síðast tóku 120 nemendur þátt í henni. Það er gott að hafa í huga að þetta er ekki próf heldur þrautir og skemmtileg dæmi sem nemendur þurfa að glíma við og ættu að höfða til allra. Það er von okkar í FS að nú verði met þátt- taka og allir haf i gaman að þessu. Við munum síðan bjóða til smá veislu og veita viðurkenn- ingu þeim keppendum, ásamt forráðamönnum, sem lenda í 10 efstu sætunum í hverjum árgangi um leið og verðlaunaafhendingin fer fram. Tanhatu Marimba á tónleikum S lagverks- ,dans- ogsönghópurinn Tan-hatu Marimba sem sló rækilega í gegn á Íslandi í fyrra er staddur á Húsavík um þessar mundir við kennslustörf. Stúlkurnar í hópnum koma frá Fred- rikstad og er ein af stúlkun- um íslensk, Jóhanna Ósk Herjólfsdóttir. Hafrarlækja- skóli hefur fest kaup á nokkrum Marimbum og er tónlistaskólinn fyrir norðan að hefja kennslu á þessi skemmtilegu hljóðfæri. Það sem gerir kennsluna sér- staka er að tónlistarnámið byggist á hlustun og athygli, engar nótur eru notaðar, þannig að tónlistin berst frá manni til manns. Söngur, dans, klapp og trommuspil er allt jafn nauð- synlegt í tónlistarflutningnum og skapar eina heild. Þetta er í annað sinn sem hópurinn heim- sækir Ísland, en hann hélt fjölda tónleika í grunnskólum lands- ins í febrúar í fyrra. Hópurinn heldur tvenna tónleika í Saln- um, Tónlistarhúsi Kópavogs, fimmtudaginn 20. febrúar og föstudaginn 21. febrúar og hefj- ast tónleikarnir bæði kvöldin kl. 20. Miðaverð er kr. 1500 fyrir fullorðna og kr. 1000 fyrir börn 15 ára og yngri. Betri aðgangur að skólakerfinu með nýrri tækni Stærðfræðikeppni grunnskólanemenda haldin í sjötta sinn Ógeðisdrykkurinn drukkinn á stelpunótt 8. tbl. 2003 - 24 hbb 2 19.2.2003 16:19 Page 14

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.