Víkurfréttir - 20.02.2003, Qupperneq 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Danska í Heiðarskóla hef-ur verið með talsvertöðru sniði nú í janúar.
Ástæðan er heimsókn 34 ára
dansks kennara John Skaan-
berg að nafni frá Skaagen í
Danmörku sem kom hingað
vegna samstarfsverkefnis milli
menntamálaráðuneyta Dan-
merkur og Íslands. Við báðum
John um að segja okkur örlítið
frá sjálfum sér og því sem
hann er að fást við hér.
„Já, það skal ég gera. Ég var einn
af 40 umsækjendum í þetta verk-
efni og var sem betur fer valinn,“
segir John. „Það komast færri að
en vilja, þetta þykir spennandi og
eftirsóknarvert, en starf mitt er
fyrst og fremst fólgið í því að
kynna hina töluðu dönsku tungu
og fá börnin til að tjá sig munn-
lega í dönskutímunum. Hér á Ís-
landi hefur meira tíðkast að
kenna börnunum að skrifa og
lesa dönskuna, en það er bara
ekki nóg, því með því að láta þau
tjá sig munnlega, þá fyrst byrja
þau að læra að tala dönsku. Próf-
in hér eru líka sniðin eftir kennsl-
unni þ.e. krakkarnir taka skrifleg
próf á meðan við í Danmörku
leggjum mun meiri áhersla á að
tala viðkomandi tungumál sem
verið er að kenna, enda eru
munnlegu prófin mjög algeng og
reyndar í flestum öðrum grein-
um, því markvisst er lögð áhersla
á að láta nemendur tjá skilning
sinn á viðkomandi verkefni.
Þannig teljum við að betri árang-
ur náist nú á tímum mannlegra
samskipta“.
Hvernig hefur þér svo gengið
að láta krakkana tala dönsku
við þig?
„Furðu vel. Krakkarnir hér í
Heiðarskóla eru mjög opin og
skemmtileg. Og kannski finnst
þeim þetta meira spennandi en
það sem þau hafa verið að gera
fram til þessa án þess að ég sé á
nokkurn hátt að kasta rýrð á þær
kennsluaðferðir sem tíðkast hafa
í skólum landsins fram til þessa.
Mér skilst hinsvegar að danska
hafi ekki beint verið vinsælasta
fagið í skólunum og því er verið
að gera þessa tilraun hér þ.e. að
láta krakkana tjá sig meira munn-
lega og gera það þannig að þeim
finnist þetta áhugavert. Ég vona
allavega að mér takist að glæða
áhuga nemenda á dönskunni og
að kennararnir læri eitthvað af
því sem ég er að gera. Sjálfur hef
ég lært heilmikið með veru
minni hér og skynjað hvað betur
mætti fara í mínum skóla. Þannig
er maður sífellt að læra meira og
meira og þess vegna tel ég svo
mikilvægt að kennarar víðsvegar
um heiminn skiptist á hugmynd-
um með því að heimsækja hvort
annað. Einnig vil ég bæta því við
hér að við danir megum vera
stolt af ykkur fyrir að vilja kenna
börnunum ykkar dönsku, það er
ekki sjálfsagður hlutur sem ber
að meta.“
Er mikill munur á dönskum og
íslenskum nemendum?
„Því get ég engan veginn svarað.
Krakkar eru krakkar sama hvar
þau búa og auðvitað er dagamun-
ur á þeim. Stundum finnst þeim
gaman í skólanum og stundum
hundleiðinlegt. Þannig er þetta í
Danmörku líka og þannig er
þetta líka með okkur fullorðna
fólkið. Stundum finnst mér starf-
ið hundleiðinlegt. Þannig er þetta
í lífinu, hvort sem þú ert læknir,
bifvélavirki eða kennari, það
koma alltaf tímabil þegar manni
langar helst til að ganga í burtu
frá þessu öllu saman. En oftast
nær er starf ið spennandi og
skemmtilegt og á meðan svo er
ætla ég að vera kennari áfram.
En hvað krakkana varðar, þá sýn-
ist mér þetta vera í nokkuð góðu
lagi hvað agann varðar. Hann er
að mínu mati mjög góður hér í
Heiðarskóla, því hann þarf að
vera skynsamur og réttlátur og í
takt við raunveruleikann.“
Hvað með aðstöðuna. Er mikill
munur þar á?
„Þið eruð mjög vel stödd og það
er margt sem ég sé að mætti
betrumbæta hjá okkur í Dan-
mörku. Öll aðstaða er til fyrir-
myndar hjá ykkur, stofur vel bún-
ar kennslutækjum að maður tali
ekki mötuneytisaðstöðuna. Við,
bæði nemendur og kennarar,
þurfum að koma með nesti í
skólann ef við ætlum ekki að
svelta yfir daginn. Þegar maður
hefur upplifað svona fyrirkomu-
lag, tel ég þetta vera eitt af því
sem við ættum að innleiða í Dan-
mörku, því auðvitað tryggir þetta
krökkunum og kennurunum þá
næringu sem þeir þurfa til að
geta skilað árangri. “
En hvernig lætur þú svo tím-
ann líða á milli þess sem þú ert
ekki að kenna?
„Ég er sko ekki í vandræðum
með það. Ísland hefur upp á allt
að bjóða. Mannlíf, menningu,
náttúru og margt fleira. En dags-
daglega þá skelli ég mér í sund
og ligg í heitu pottunum og fer í
gufu. Ég öfunda ykkur ekkert
smá af þessu. Þá fer ég í bad-
minton með nokkrum kunningj-
um sem ég hef kynnst hér, þeir
eru reyndar franskir. Við náum
vel saman og ætlum að nota
páskafríið í að ganga yfir þvert
og endilangt hálendið frá norðri
til suðurs. Ég verð að viðurkenna
að landið ykkar er hreint frábært
og þrátt fyrir að ég sé alinn upp á
flatlendi þá heilla fjöllin og má
segja að ég noti hverja einustu
stund til að klifra upp um fjöll og
firnindi sérstaklega þegar sól
skín í heiði og útsýni er mikið.
Þá hef ég skotist á gönguskíði
nokkrum sinnum. Allt þetta er
eitthvað sem ég á ekki kost á
heima hjá mér“.
Og þá er kannski ein spurning
eftir í lokin. Hvernig kanntu
við Íslendinga?
„Sko, eftir að maður hefur kynnst
ykkur þá eruð þið ágætir bara
eins og fólk er flest. En það tekur
langan tíma að komast í gegnum
skelina. Ef ég væri ekki jafn op-
inn og ég er, hefði mér sjálfsagt
aldrei tekist að kynnast nokkrum
manni. En nú á ég fullt af vinum
og ég sé svo sannarlega ekki eftir
að hafa eytt þessu ári hér á Ís-
landi, sagði þessi snaggaralegi og
viðkunnanlegi dani sem heillað
hefur bæði nemendur og kennara
í Heiðarskóla með sinni látlausu
og fáguðu framkomu.“
„Munnleg tjáning nauðsynleg
til að læra að tala tungumál“
Dönskukennsla með breyttu sniði í Heiðarskóla:
John lætur nemendurna í 10.SP í Heiðarskóla tjá
sig á dönsku. Ekki er að sjá að þeim leiðist enda John
ákaflega lifandi og skemmtilegur.
-segir John Skaanberg dönskukennari frá Skaagen í Danmörku
Garðavegur 11, Keflavík.
Gott 112m2 einbýli með 3
svefnh. Eign í góðu ástandi,
hagstæð lán. Miklir möguleikar.
12.400.000.-
Kirkjuvegur 43, Keflavík.
101m2 einbýli á 2 hæðum með
4 herb. og 45m2 bílskúr. Mögu-
leiki að skipta í tvær eignir.
10.500.000.-
Hraunholt 5, Garði.
140m2 einbýli með 4 svefnh.
Nýr bílskúr 54m2. Eign í góðu
ástandi að utan sem innan.
14.300.000
Suðurgata 32, Sandgerði.
86m2 eh. með 2 svefnh. og
36m2 bílskúr. Hagstæð lán
áhvílandi. 7.500.000.-
Austurgata 17, Keflavík.
Góð 3ja herb. 84m2 eh. með
sérinngangi og 32m2 bílskúr.
Tölvert búið að endurnýja.
9.600.000.-
Hjallavegur 11, Njarðvík.
Góð 3ja herb. íbúð á 2. hæð í
fjölbýli. Hagstæð lán áhví-
landi. 6.700.000.-
Háseyla 32, I-Njarðvík.
Nýlegt 5 herb. einbýli 104m2
ásamt 40m2 bílskúr. Fullbúið að
innan, bílskúr innréttaður sem
2ja herb. íbúð. 15.500.000.-
Suðurgata 28, Sandgerði.
Einbýli á 2 hæðum 161m2
4. svefnherbergi. Mikið endur-
nýjað að innan og utan. Hag-
stæð lán áhvílandi. 11.200.000.-
Faxabraut 34b, Keflavík.
50m2 íbúð í kjallara. 1. svefn-
herbergi. Íbúð í ágætu standi.
Búið að endurnýja skolplagnir.
4.400.000
Iðngarður 10, Garði.
206m2 iðnðarhúsnæði í mjög
góðu ástandi, stór iðnaðarhurð.
Laust strax.
9.000.000.-
Faxabraut 37a, Keflavík.
132m2 endaraðhús á 2 hæðum 3
svefnh. og 35m2 bílskúr. Mjög
góð staðsetning og eignin í
góðu ástandi.
12.800.000.-
Kirkjuvegur 14, Keflavík.
Góð 3ja herb. íbúð á 3ju hæð í
fjölbýli. Parket og flísar á gólf-
um. Hagstæð lán áhvílandi.
Opið hús á laugardag 22/2.03.
milli 15 og 17. 11.800.000.-
Kirkjuvegur 1, Keflavík.
Mjög góð 3ja herb. 76m2 íbúð
á 1 hæð í fjölbýli fyrir eldri
borgara. Stór og góð sameign.
Laus strax. 9.800.000.-
Heiðarból 6, Keflavík
Glæsileg 3ja herb. íbúð á 3ju
hæð í fjölbýli. Laus fljótlega.
Hagstæð lán áhvílandi.
8.300.000.-
8. tbl. 2003 - 24 hbb 2 19.2.2003 17:08 Page 22