Víkurfréttir - 07.04.2004, Blaðsíða 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
VÍKURFRÉTTIR//Vinabæjasamband Reykjanesbæjar og Keravastuttar
f r é t t i r ➤ F I N N S K I R G E S T I R Í R E Y K J A N E S B Æ
M enningar-, íþrótta- ogt ó m s t u n d a s v i ðR e y k j a n e s b æ j a r
(MÍT) fékk á dögunum til sín
góða gesti frá vinabænum
Kerava í Finnlandi sem hingað
komu m.a. til þess að kynna sér
starfsemi Reykjanesbæjar á
sviði íþrótta-tómstunda- og
menningarmála sem og stjórn-
sýslu- ferða- og markaðsmála.
Markmið heimsóknarinnar var
auk þess að gera samanburð á
starfsemi bæjarfélaganna og var
þemað „learning by doing“.
Fulltrúar Kerava voru Jarmo
Leskinen fulltrúi íþróttasviðs
Kerava og Petri Harkonen fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs og
staðgengill bæjarstjóra.
Jarmo er ekki ókunnugur íþrótta-
og tómstundastarfsemi í Reykja-
nesbæ þar sem hann hefur tekið
þátt í fjölmörgum vinabæjarmót-
um bæjarfélaganna og heimsótti
hann m.a. Ísland árið 1986 í
þeim tilgangi. Allt frá árinu 1973
hafa vinabæirnir Hjörring í Dan-
mörku, Kristiansand í Noregi,
Trollhattan í Svíþjóð, Kerava og
Reykjanesbær haft með sér sam-
skipti á sviði íþrótta þar sem 7
drengir og 7 stúlkur á aldrinum
14-16 ára keppa í mismunandi
íþróttagreinum ár hvert.
Þess má geta að í sumar fer
keppnin fram í vinabænum Troll-
hattan og er keppnisgreinin
körfubolti.
Þeir félagar fengu að kynnast því
helsta sem var á döfinni á meðan
á heimsókninni stóð og sóttu þeir
m.a. körfuboltaleiki í úr-
slitarimmu karla og kvenna á Ís-
landsmótinu og sáu stelpurnar í
Keflavík hampa titlinum. Eins
skoðuðu þeir íþróttamannvirki
bæjarins, söfn, félagsmiðstöðvar
og skóla auk þess sem þeir fengu
kynningar á verkefnum hjá um-
hverfis- og skipulagssviði og
fjármálasviði. Þeir sóttu vikuleg-
an fund með framkvæmdastjóra
og forstöðumönnum MÍT sviðs
þar sem allir forstöðumenn
kynntu sig og starf sitt fyrir gest-
unum og svöruðu fjölmörgum
spurningum.
Hver er tilgangur heimsóknar-
innar?
Petri: Tilgangur heimsóknarinnar
er að gera samanburð á rekstri
bæjarfélaganna en bæði taka þau
þátt í svokölluðu Bertelsmanns
prófi sem felur í sér samanburð á
mörgum þáttum í rekstri og þjón-
ustu bæjarfélaga. Við vildum sjá
hvernig Reykjanesbær er að gera
hlutina og skoða samvinnu milli
deilda. Eins vildum við segja frá
því hvernig við stöndum að okk-
ar þjónustu og markaðssetningu
bæjarins.
Hvað var það helsta sem vakti
athygli ykkar?
Petri: Krafturinn sem virðist svo
auðsjáanlegu alls staðar í bæjar-
félaginu. Svo fannst mér athygl-
isvert að heyra hversu fljótt hægt
er að koma góðum hugmyndum í
framkvæmd. Ferlið er auðveldara
hér en hjá okkur, þar sem margir
flokkar eru í stjórn (alls 7) og
eins eru okkur sett ýmis takmörk
með lögum og reglugerðum.
Á hvaða sviðum teljið þið ykk-
ur skara fram úr?
Petri: Ég myndi segja að það
væri í markaðssetningu atvinnu-
tækifæra en þau eru að mínu
mati vel skipulögð í Kerava. Við
höfum sérstakan starfsmann í því
verkefni og auk þess marga
tengiliði frá atvinnulífinu, sem
skipta með sér verkum tíma-
bundið eftir því um hvers konar
atvinnustarfsemi er að ræða.
Nýleg óháð könnun í Finnlandi
sýndi að fyrirtækjum þótti
Kerava fýsilegasti kosturinn til
atvinnurekstrar á Helsinkisvæð-
inu. En við erum mjög spenntir
að sjá hvernig gengur hjá ykkur
með víkingaskipið Íslending og
víkingaþorpið sem þar verður
sett upp. Þetta er hugmynd sem
virðist vera mikið atvinnutæki-
færi fyrir allt svæðið.
Hvað erum við hjá Reykjanes-
bæ að gera vel að ykkar áliti?
Petri: Þið getið verið ánægð með
þá frábæru íþróttaaðstöðu sem
þið bjóðið upp á, en til saman-
burðar má nefna að við höfum
eina sundlaug fyrir 31 þúsund
íbúa í Kerava en þið hafið fjórar
laugar fyrir 11 þúsund íbúa. Eins
eruð þið að gera vel í stuðningi
við íþrótta- og tómstundafélög,
bæði í styrkjum og eins með
gjaldfrjálsum afnotum af hús-
næði. Í Kerava þurfa t.d. íþrótta-
félög að greiða fyrir alla notkun í
mannvirkjunum og þetta er að
sliga mörg þeirra fjárhagslega.
Svo fannst mér athyglisvert
hvernig þið samtvinnið íþróttir,
menningu og tómstundamál allra
aldurshópa. Frístundaskólinn og
Tómstundabandalagið er líka
eitthvað sem við viljum skoða
hjá okkur.
Jarmo: Við vildum einmitt skoða
og bera saman það sem þið eruð
að gera fyrir íþróttafélög því það
er miklu betra en hjá okkur.
Rekstur íþróttamála hjá Kerava
er aðeins 0,95% af heildarfjár-
hagsáætlun og því höfum við
ekki úr eins miklu að moða.
Jarmo og Petri eru sammála um
það að vandamálin eru mjög
svipuð í rekstri bæjarfélaganna
og mikilvægt sé að skoða styrk-
leika hvors annars og yfirfæra þá
til gagns. Heimsókn þeirra er lið-
ur í auknum samskiptum milli
vinabæja sem hafa mikið verið
rædd á sameiginlegum fundum í
tengslum við íþróttakeppnirnar,
en enginn hafði tekið frumkvæði,
þar til nú að bæjarstjóri Reykja-
nesbæjar bauð þeim í heimsókn
að tillögu Stefáns Bjarkasonar
framkvæmdastjóri MÍT. Fyrir
það vildu þeir Jarmo og Petri
þakka kærlega fyrir.
Jarmo: Við höfum átt í samskipt-
um vegna vinabæjarmóta í íþrótt-
um og því tímabært að auka
samvinnuna enn frekar. Við bjóð-
um nú fulltrúum Reykjanesbæjar
velkomna til okkar og vonum að
þeir geti nýtt sér eitthvað af því
sem við erum að gera í Kerava.
Petri: Við viljum koma á fram-
færi þakklæti til allra starfs-
manna bæjarins fyrir að taka á
móti okkur og funda með okkur.
Vonandi getum við endurgoldið
gestrisni ykkar þó síðar verði.
Kannski gott fyrir hvítlauksunn-
endur að vita að við höldum okk-
ar árlegu hvítlaukshátíð í lok
ágúst. Kerava er orðið heims-
frægt fyrir þennan viðburð þar
sem m.a er hægt að fá að smakka
á hvítlauks-ís og hvítlauks-bjór
!!!
Krafturinn í bæjarfélaginu vekur athygliÓskað eftir
þátttöku í Frí-
stundahelgi í
Reykjansbæ
Frístundahelgi verðurhaldin í annað sinn íReykjanesbæ dagana
14. - 16. maí 2004. Þátttaka
félaga, klúbba og fyrirtækja
var mjög góð fyrir árið og
gaf helgin þeim kærkomið
tækifæri til að kynna starf-
semina fyrir almenningi.
Því hefur verið ákveðið að
endurtaka Frístundahelg-
ina og hefur Gísli H. Jó-
hannsson verið ráðinn
tímabundið verkefnastjóri
Frístundahelgar, en hann
mun einnig taka virkan þátt
í undirbúningi og fram-
kvæmd Ljósanætur 2004.
Þessa sömu helgi verður
handverkssýning í íþróttahús-
inu við Sunnubraut og hand-
verkssýning eldri borgara í
Selinu við Vallarbraut.
Áhugasamir geta skráð þátt-
töku í 894 2281 eða sent póst
á netfangið: fristunda-
helgi@reykjanesbaer.is fyrir
4. maí 2004.
Ótrúlegar
ljósmyndir
af tvíburum
sem voru
teknir með
keisaraskurði
í Keflavík
Komið á næsta
blaðsölustað!
Tryggðu þér eintak
á aðeins kr. 499,-
Jarmo Leskinen fulltrúi íþróttasviðs Kerava og Petri Harkonen framkvæmdastjóri
þróunarsviðs og staðgengill bæjarstjóra.
15. tbl. 2004 umbrot 6.4.2004 13:02 Page 10