Víkurfréttir - 07.04.2004, Blaðsíða 25
VÍKURFRÉTTIR I 15. TÖLUBLAÐ 2004 I MIÐVIKUDAGURINN 7. APRÍL 2004 I 25
sportið Umsjón: Þorgils Jónsson • sími 868 7712sport@vf.is
Grindvíkinginn Pál Axel Vilbergssoner óþarfi að kynna fyrirkörfuknattleiksáhugamönnum,
enda hefur kappinn verið í fremstu röð
hérlendis í mörg ár og reyndi m.a. fyrir sér
sem atvinnumaður í Belgíu fyrir nokkrum
árum. Á yfirstandandi tímabili hefur hann
þó farið á kostum og aldrei verið betri en
nú. Hann lauk deildarkeppninni stigahæst-
ur allra íslenskra leikmanna og var líka
valinn íþróttamaður Grindavíkur fyrir
skömmu.Víkurfréttir gripu Pál glóðvolgan
og spurðu hann spjörunum úr.
Hvenær fórstu að æfa körfu?
Ég var nú ekki svo snemma. Ætli ég hafi ekki
verið svona 11 ára. Ég var hjá Grindavík alla
yngri flokkana, en síðan hef ég farið í víking
til Belgíu og Bandaríkjanna, þar sem ég var í
skóla, og svo var ég í Borgarnesi í einn vetur.
Hverjir eru þínir helstu styrkleikar/veik-
leikar sem leikmaður?
Mínir styrkleikar eru, þó að ég segi sjálfur frá,
að ég skil leikinn mjög vel, og er nokkuð
lunkinn í að hlaupa á réttum tíma á rétta staði
og þess háttar. Svo er ég líka nokkuð góður í
að „grípa og skjóta“.
Helstu veikleikar... Maður myndi náttúrulega
alltaf vilja vera sneggri og hoppa hærra og
vera sterkari.
Hvað gerirðu þegar þú ert ekki í boltan-
um?
Ég geri nú sitt lítið af hvoru. Ég vinn í ung-
lingavinnu á sumrin og svo er ég að vinna í
Íþróttamiðstöð Grindavíkur eins og er.
Þér hefur gengið flest í haginn á þessu
tímabili, geturðu enn bætt þig?
Ég er enn að bæta mig. Ég tel mig vera betri í
dag en í gær þannig að maður getur alltaf
bætt sig og stefnir að því.
Ætlarðu að reyna aftur fyrir þér í atvinnu-
mennskunni?
Já, það er vissulega spennandi kostur að
skoða málin eftir tímabilið. Það á ekki að vera
erfitt ef maður er nógu duglegur að koma sér
á framfæri. Það er bara spurning með heppni
eins og hvar maður lendir og annað.
Hefurðu hjátrú fyrir leiki?
Nei, það held ég ekki. Ég er að vísu alltaf á
sama snaga, en ég er viss um að ég gæti
breytt um snaga án þess að það hefði mikil
áhrif á mig andlega. Það er bara vani.
Margt Smátt...
Hæð: 197
Skónúmer: 13
Áttu bíl? Já, Nissan Almera.
Hvaða bók lastu síðast? Hún heitir Taxi. Það eru svona stuttar reynslusögur
leigubílstjóra, ansi skemmtileg bók.
Hvaða diskur er í græjunum? Tónleikadiskurinn með Symfóníuhljómsveitinni
og Metallica, S&M.
Uppáhalds:
Hljómsveit? Engin ein sérstök
Bíómynd? Shawshank Redemption og Green Mile standa svona uppúr.
Leikari? Morgan Freeman, myndirnar sem hann er í eru fínar. Svo er Bill
Murray fyndinn.
Lið í enska? Liverpool, en það er leiðinlegt að segja frá því.
Körfuknattleiksmaður? Enginn sérstakur. Það eru ýmsir sem maður hrífst af,
Tim Duncan, Kevin Garnett og fleiri.
Matur/Drykkur? Ég ét bara allt sem að kjafti kemur... nema kjötsúpu.
Ef þú værir forsætisráðherra í einn dag hvað yrði þitt fyrsta embættisverk?
Ætli ég myndi ekki hækka launin hjá sjálfum mér. Ég er svo gráðugur.
S P O R T S P J A L L - P á l l A x e l V i l b e r g s s o n
Bestur í Grindavík
15. tbl. 2004 umbrot 6.4.2004 15:23 Page 25