Víkurfréttir - 06.05.2004, Blaðsíða 18
G ert hefur verið tilboð ídraugaskipið Krist-björgu VE sem legið
hefur í Njarðvíkurhöfn um
árabil. Einnig hefur verið gert
tilboð í prammann sem legið
hefur við höfnina síðustu þrjú
ár. Fyrirtækið sem gert hefur
tilboð í draugaskipin er danskt
og ætlar sér að nota skipin til
niðurrifs í brotajárn.
Kristbjörgin VE hefur legið við
höfn í Njarðvík um árabil mörg-
um til mikils ama. Að sögn Pét-
urs Jóhannssonar hafnarstjóra í
Reykjanesbæ eru menn þar á bæ
fegnir að loks sjái fyrir endann á
því að skipin liggi þarna við fest-
ar.
Pramminn sem Danirnir hafa
gert tilboð í var notaður við
grjótflutninga í grjótvarnargarð
við Keflavíkurhöfn. Pramminn
hefur reynst dauðagildra fyrir
æðarfugl, en tilkynnt hefur verið
um nokkra fugla sem drepist
hafa með því að kafa undir
prammann og festast þar undir.
Gert er ráð fyrir að skipin fari úr
höfninni í sumar.
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Nýja Klippótek er flutt
Höfum opnað á nýjum stað að
Hafnargötu 52 (við hlið R.Ó.)
15% opnunartilboð á Joico og Matrix
hársnyrtivörum til 15. maí n.k.
Verið velkomin
Feðgarnir Heimir Haf-steinsson og faðir hansHafsteinn Sæmundsson
eru saman á bátnum Trylli
GK-600 og að sögn beggja
gengur samstarfið ágætlega.
Þegar Víkurfréttir voru á ferð í
Grindavík á dögunum voru
þeir í óða önn að ganga frá afla
dagsins.
„Fiskiríið hefur versnað síðustu
dagana. Við vorum með 700 til
800 kíló eftir þennan róður,“
sagði Hafsteinn en hann hefur
verið á sjónum frá 14 ára aldri.
Hafsteinn er 67 ára gamall og
menntaður skipstjóri og vélfræð-
ingur. Heimir sonur hans sagði
að það styttist í vertíðinni og að
báturinn yrði tekinn á þurrt í
sumar. „Við róum á bátnum yfir
vertíðina en tökum hann svo
upp.“ Aðspurður hvernig sam-
starfið við föður sinn gengi sagði
Heimir að það væri bara mjög
gott. Hafsteinn sagði að lítill sem
enginn ágreiningu væri milli
þeirra feðga. „Bara merkilegt
nokk,“ sagði Hafsteinn brosandi
en í sumar mun hann leysa af á
Sunnuberginu.
➤ Gömul skip í Njarðvíkurhöfn heyra brátt sögunni til:
Feðgar á sjó í Grindavík
Feðgarnir Hafsteinn og Heimir stilltu sér upp fyrir myndatöku á bryggj-
unni í Grindavík þar sem þeir voru að ganga frá afla dagsins, sem var
heldur rýr að sögn beggja.
Tilboð gerð í drauga-
skip í Njarðvíkurhöfn
VÍKURFRÉTTIR//1. maí • baráttudagur verkalýðsins
Tónleikar fyrir eldri
borgara á Suðurnesjum
Karlakór Keflavíkur lýkur starfsári sínu með
því að bjóða öllum eldri borgurum á Suð-
urnesjum til tónleika í listasal Duus-húsa í
Keflavík föstudaginn 7. maí kl. 20.00.
Verkalýðsfélag Grindavíkur bauð félagsmönnum sínum til kaff-
isamsætis á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí. Kaffisamsætið var
vel sótt og voru meðfylgjandi teknar við þetta tækifæri.
19. tbl. 2004 umbrot 5.5.2004 14:40 Page 18