Víkurfréttir - 06.05.2004, Blaðsíða 21
VÍKURFRÉTTIR I 19. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 6. MAÍ 2004 I 21
Börn í 2. bekk Njarðvíkurskóla fengu íslenska fánann að gjöf frá skátahreyfingunni á Íslandi. Frá 1998 hefur Bandalag ís-
lenskra skáta gefið öllum börnum í 2. bekk í grunnskólum landsins fallega fánaveifu ásamt fánabæklingi sem fræðir
börnin og fjölskyldur þeirra um sögu fánans og fánareglur. Skátar á Íslandi hafa ávallt staðið vörð um íslenska fánann. Á
50 ára lýðveldisafmæli Íslands 1994 fór skátahreyfingin af stað með fánaverkefni undir heitinu „Íslenska fánann í önd-
vegi“. Á því ári gaf skátahreyfingin öllum grunnskólabörnum íslenska fánaveifu, íslenska fánann á lítilli handstöng til
notkunar við sem flest tækifæri. Megin tilgangur verkefnisins var að upplýsa almenning um sögu íslenska fánans, með-
ferð hans og síðast en ekki síst að hvetja til almennar notkunar fánans með slagorðinu „flöggum á fögrum degi“. Frá
þessu er greint á vef Njarðvíkurskóla.
Kosningum til nýrrarstjórnar NemendafélagsFjölbrautaskóla Suður-
nesja lauk síðastliðinn föstudag
en kjósa þurfti tvisvar vegna
þess að hnífjafnt var í nokkrar
stöður. Rakel Lárusdóttir var
kosin gjaldkeri N.F.S. en hún
er ein af fjórum stelpum sem
kosnar voru og er skemmtilegt
að sjá svona margar stelpur í
stjórn. Þetta er í eitt af þeim
fáu skiptum sem meirihluti
stjórnar er skipaður stelpum.
VF tók stutt spjall við Rakel
um félagslífið.
Hvernig finnst þér árið hafa gengið hjá
fráfarandi stjórn N.F.S.?
Þetta er búið að ganga ágætlega,
stjórnin reyndi að rífa þetta upp
með ágætum árangri en stór hluti
af stjórninni tók þátt í leikritinu
Bláu augun þín sem skólinn setti
upp þannig að lítill tími gafst til
þess að rífa þetta upp almenni-
lega. Böllin hafa verið fín og að
sjálfsögðu leikritið frábært en
það tel ég vera toppinn á þessu
námsári.
Er á dagskrá að setja á svið nýtt leikrit?
Já, ég ætla svo sannarlega að
berjast fyrir því að annað leikrit
verði sett á svið á vorönn árið
2005.
Hverju munt þú beita þér fyrir
sem gjaldkeri N.F.S.?
Ég ætla mér að koma reglu á
fjármál félagsins en lítill tími
virðist hafa farið í það á síðast-
liðnu ári. Mikilvægt er fyrir
N.F.S. að hafa fjármál sín á
hreinu svo hægt sé að tryggja að
peningum sé ekki eytt í vitleysu.
Hvað mun stjórnin leggja áherslu á
þegar nýtt skólaár byrjar?
Félagsgjöld og mórall er númer
eitt, tvö og þrjú. Til að tryggja
traust félagslíf þarf virka þáttöku
nemandans en N.F.S. leggur
mjög mikið upp úr því að sem
flestir nemendur borgi félags-
gjöldin því það fjármagn er not-
að í skemmtanir og uppákomur
fyrir nemendur. Félagsgjöldin
eru ekki há en þau tryggja nem-
andanum ýmis fríðindi þar á
meðal lægra verð á skemmtanir.
Eru einhverjar nýjungar sem líta dags-
ins ljós?
Það eru ýmsar hugmyndir sem
verið er að vinna að og verður
skemmtilegt að sjá hvernig þetta
mun koma út þegar haustið nálg-
ast.
Viltu segja eitthvað að lokum til nem-
enda í FS?
Endilega, hvort sem þið eruð ný-
nemar eða eldri nemar, borgið
þessa litlu fjárhæð sem félags-
gjöldin eru og þannig stuðla að
uppbyggingu nemendafélagsins
en þessi fjölbrautaskólaár eiga að
vera þau skemmtilegustu í lífi
ykkar.
Stelpustjórn í nemendafélagi FS
Rakel Lárusdóttir
var kosin gjaldkeri N.F.S.
Fengu íslenska fánann að gjöf
VÍKURFRÉTTIR//skólamál
Ví
ku
rfr
ét
ta
m
yn
d:
A
tli
M
ár
G
ylf
as
on
FRÉTTAVAKT 898 2222
O P I Ð A L L A N S Ó L A R H R I N G I N N - A L L A D A G A V I K U N N A R
19. tbl. 2004 umbrot 5.5.2004 13:54 Page 21