Víkurfréttir - 06.05.2004, Side 24
24 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Sýslumaðurinn í Keflavík
Vatnsnesvegi 33, 230 Keflavík,
s: 4202400
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjál-
fum, sem hér segir
Akurhús 1, fnr. 209-5827,
Garður, þingl. eig. Kristinn Ingi
Valsson, gerðarbeiðendur
Gerðahreppur og Íbúðalána-
sjóður, miðvikudaginn 12. maí
2004 kl. 10:15.
Greniteigur 49, Keflavík, þingl.
eig. Birgir Stefánsson og Katrín
Karen Þorbjörnsdóttir, gerðar-
beiðandi Íbúðalánasjóður,
miðvikudaginn 12. maí 2004
kl. 10:00.
Hólagata 1b, fnr. 226-1684,
Vogum, þingl. eig. Pétur Geir
Óskarsson, gerðarbeiðandi
Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn
12. maí 2004 kl. 14:15.
Lóð úr landi Innri Njarðvíkur,
fnr. 209-4288, þingl. eig. Anton
Hjaltason, gerðarbeiðandi
Reykjanesbær, miðvikudaginn
12. maí 2004 kl. 11:30.
Minni Vatnsleysa, fnr. 209-6183,
Vogar, þingl. eig. Þb. Ali ehf,
gerðarbeiðandi Vatnsleysu-
strandarhreppur, miðvikudaginn
12. maí 2004 kl. 15:00.
Stafnesvegur 12, fnr. 225-7107,
Sandgerði, þingl. eig. Jóhanna B
Kristjánsdóttir, gerðarbeiðandi
Íslandsbanki hf,útibú 542,
miðvikudaginn 12. maí 2004
kl. 11:00.
Suðurgata 1, fnr.209-5005,
Sandgerði, þingl. eig. Jóhanna B
Kristjánsdóttir, gerðarbeiðandi
Íslandsbanki hf,útibú 542,
miðvikudaginn 12. maí 2004
kl. 10:30.
Suðurgata 24, fnr. 209-5107,
eignarhluti Gunnars Inga
Ingimundarsonar, Sandgerði,
þingl. eig. Linda Gústafsdóttir og
Gunnar Ingi Ingimundarson,
gerðarbeiðendur Kaupþing
Búnaðarbanki hf og T.M.Mosfell
ehf, miðvikudaginn 12. maí 2004
kl. 10:45.
Tjarnargata 24, fnr. 209-6544,
Vogar, þingl. eig. Anna Sigríður
Hólmsteinsdóttir, gerðarbeiðandi
Vatnsleysustrandarhreppur,
miðvikudaginn 12. maí 2004
kl. 14:30.
Túngata 12, 0101, fnr. 209-2428,
Grindavík, þingl. eig. Friðþjófur
Bergmann, gerðarbeiðendur
Íbúðalánasjóður og Lífeyrissjóðir
Bankastræti 7, miðvikudaginn
12. maí 2004 kl. 13:45.
Vesturbraut 16, fnr. 209-2473,
Grindavík, þingl. eig. Óskar
Meldal Gíslason, gerðarbeiðandi
Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn
12. maí 2004 kl. 13:30.
Sýslumaðurinn í Keflavík,
4. maí 2004.
Jón Eysteinsson
Borðaðu þig granna(n)
P úlsinn ævintýrahús býður upp á fræðslukvöld með íslenskuvigtarráðgjöfunum úr Garðabæ næstkomandi mánudags-kvöld 10. maí klukkan 21. Það er Kristín V. Óladóttir,
hjúkrunarfræðingur sem leiðir þennan hóp á Íslandi en hug-
myndin kemur frá Danmörku. Hún náði af sér 28 kg. á aðeins 7
mánuðum með því að borða rétt samansett fæði. Ef þig langar til
að breyta matarvenjum þínum og léttast um leið, þá er Kristín
með ráð sem dugað hafa mjög vel. Hún mun kynna íslenska
klúbbinn og fræða gesti um leið. Skráning er nauðsynleg á
www.pulsinn.is eða í S. 848 5366, þetta fræðslukvöld í Púlsinum
og miðaverð er kr. 1.000.
KEFLAVÍKURKIRKJA:
Þriðjudagur 11. maí: Alfahópur
kemur saman í Kirkjulundi kl.
12-15. Léttur málsverður, sam-
félag og fræðsla um kristna trú.
Einnig verður komið inn á stöðu
atvinnulausra. Umsjón: María
Hauksdóttir. Styrktaraðilar eru
VSFK, Verslunarmannafélagið
og Iðnsveinafélagið ásamt Kefla-
víkurkirkju. - Allir velkomnir.
Sunnudagur 16. maí: 5. sunnu-
dagur eftir páska. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. A:Jer. 29.11-
14a, 1. Tím. 2.1-6, Jóh. 16.23b-
30. Öll fimm ára börn í Keflavík
eru boðin til kirkju ásamt foreldr-
um. Sr. Helga Helena og starfs-
fólk sunnudagaskólans afhenda
þeim bókina KATA OG ÓLI
FARA Í KIRKJU. Meðhjálpari:;
Leifur A.. Ísaksson. Léttur
hádegisverður í Kirkjulundi eftir
barnaguðsþjónustuna og aðal-
safnaðarfundur Keflavíkursóknar
hefst kl. 13.
Þriðjudagur 18. maí: Alfahópur
kemur saman í Kirkjulundi kl.
12-15 í síðasta sinn að þessu
sinni. Léttur málsverður, sam-
félag og fræðsla um kristna trú.
Ólafur Oddur Jónsson mun fjalla
um áhrif atvinnuleysis á sam-
félög og einstaklinga. Umsjón:
María Hauksdóttir VAFK,
Verslunarmannafélagið og
Iðnsveinafélagið ásamt Kefla-
víkurkirkju. - Allir velkomnir.
YTRI-
NJARÐVÍKURKIRKJA.
Tónlistarguðsþjónusta 9. maí kl.
20. Kór Ytri-Njarðvíkurkirkju
flytur fjölbreytt og skemmtileg
tónverk eftir íslenska og erlenda
höfunda. Kórstjóri og organisti er
Natalia Chow Hewlett. Allir hjar-
tanlega velkomnir.
Baldur Rafn Sigurðsson
HVALSNESKIRKJA
Sunnudagurinn 9. maí Hvalsnes-
kirkja 4. sd. eftir páska
Guðsþjónusta kl. 11. Kór
Hvalsneskirkju syngur.
Organisti Steinar Guðmundsson.
ÚTSKÁLAKIRKJA
Sunnudagurinn 9. maí.
4. sd. eftir páska Guðsþjónusta
kl. 14 Kór Útskálakirkju syngur.
Organisti Steinar Guðmundsson.
GARÐVANGUR
Helgistund kl. 15:30.
Sóknarprestur,
Björn Sveinn Björnsson.
KÁLFATJARNARKIRKJA
í Vatnsleysustrandarhreppi
Messa sunnudaginn 9. maí kl.
14.00. 111 ára afmæli Kálfatjarn-
arkirkju. Prestur sr. Kristín Þór-
unn Tómasdóttir, ræðumaður
Þráinn Bertelsson. Kirkjukór
Kálfatjarnarkirkju syngur undir
stjórn Frank Herlufsen. Kaffisala
kvenfélagsins Fjólunnar í félags-
heimilinu Glaðheimar í Vogum
eftir messu.
HVITASUNNUKIRKJAN
KEFLAVÍK.
Sunnudagar kl. 11:00
Lofgjörðarsamkoma
Þriðjudaga kl. 19.00
Bænasamkoma
Fimmtudaga kl. 20:00
Vakningarsamkoma
www.gospel.is
BAPTISTA KIRKJAN Á
SUÐURNESJUM
Sunnudagar:
Sunnudagaskóli: kennsla úr
Biblíunni, leikir, söngur, nesti.
Börn 10 ára og eldri: kl. 12.00-
13.30. Börn 9 ára og yngri: kl.
14.30-16.00. Fimmtudagar:
Fræðsla f. fullorðna kl. 19.00-
20.00. Allir velkomnir. Líttu inn!
Patrick Weimer- prestur/prédikari
Iðavöllum 9 e.h., Keflavík (fyrir
ofan Dósasel)
Sími: 847 1756.
➤ Púlsinn, Sandgerði: ➤ Njarðvíkurbraut 51-55
R eykjanesbær tapar 32milljónum króna vegnabæjarábyrgðar sem veitt
var Hauki Guðmundssyni árið
1996. Ábyrgðin var veitt fyrir
15 milljóna króna skuldabréfi
sem Haukur Guðmundsson
var útgefandi að. Vegna van-
goldinna fasteignagjalda upp á
rúmar 14 milljónir króna
keypti Reykjanesbær húsnæði
Íshúsfélags Njarðvíkur að
Njarðvíkurbraut 51-55 á loka-
uppboði þann 12. nóvember sl.
fyrir 24 milljónir króna.
Nokkur átök urðu um málið í
bæjarráði og bæjarstjórn Reykja-
nesbæjar. Á fundi bæjarráðs 16.
október 1996 féllu atkvæði jöfn
við afgreiðslu málsins. Á fundi
bæjarstjórnar þann 5. nóvember
sama ár var bæjarábyrgðin sam-
þykkt með 5 atkvæðum þeirra
Jóhanns Geirdals, Kristjáns
Gunnarssonar, Steindórs Sig-
urðssonar, Björns H. Guðbjörns-
sonar og Sólveigar Þórðardóttur.
Á móti voru Jónína Sanders,
Björk Guðjónsdóttir og Þorsteinn
Erlingsson. Ellert Eiríksson,
Drífa Sigfúsdóttir og Anna Mar-
grét Guðmundsdóttir sátu hjá við
afgreiðslu málsins.
Nauðsynlegt að kaupa húsnæðið
Að sögn Árna Sigfússonar, bæj-
arstjóra Reykjanesbæjar, er nú í
skoðun að leigja húsnæðið til
Hauks Guðmundssonar en hann
er sá sami og fékk ábyrgðina á
sínum tíma. Árni segir að nauð-
synlegt hafi verið að kaupa hús-
næðið þar sem að bærinn hefði
ekki fengið fasteignagjöldin end-
urgreidd og einnig vegna þess að
ábyrgðaskuldin stóð. Þess vegna
hafi verið vert að skoða mögu-
leika Reykjanesbæjar á útleigu á
þessu húsnæði. Telur Árni að það
muni skýrast á allra næstu vikum
hvort að Hauki Guðmundssyni
takist að skapa atvinnu í húsinu.
En það er ekki á dagskrá bæjar-
ins að leggja fjármuni í þá starf-
semi.
Eðlilegt að veita bæjarábyrgð á þess-
um tíma
Jóhann Geirdal, bæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar, vill taka það
skýrt fram að á þeim tíma sem
tillagan var flutt fram þá hafi ver-
ið hópur á bakvið hana en hann
mælti með henni. Jóhann segir
að á þessum tíma, þ.e.a.s. árið
1996, voru fyrirtæki sem þessi
varla reist án svona ábyrgðar.
Segir hann að bæjarstjórnin hafi
gert þetta í fleiri tilvikum og að
sumar ábyrgðir hafi þeir fengið í
hausinn en sumar ekki. Tvívegis
var beiðni Hauks Magnússonar
tekin fyrir en í síðara skiptið var
hún samþykkt. Um það vill Jó-
hann segja að einhver klofningur
hafi verið innan meirihlutans því
hópurinn sem mælti með tillög-
unni hafi verið í minnihluta.
-hörð átök í bæjarstjórn vegna málsins fyrir 8 árum.
Reykjanesbær
tapar tugum
milljóna á
bæjarábyrgð
Þórunn Maggý
með skilaboð
að handan
Þ órunn Maggý Guð-mundsdóttir miðillmun starfa hjá Sálar-
rannsóknafélagi Suðurnesja
fimmtudaginn 13. maí nk.
Tímapantanir eru í síma fé-
lagsins, 421 3348.
KIRKJUSTARF
UPPBOÐ
19. tbl. 2004 umbrot 5.5.2004 15:05 Page 24