Víkurfréttir - 11.11.2004, Blaðsíða 8
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Útgefandi:
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamenn:
Auglýsingadeild:
Útlit, umbrot og prentvistun:
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Prentvinnsla:
Dagleg stafræn útgáfa:
Skrifstofa Víkurfrétta:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, Sími 421 0000 Fax 421 0020
Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Jóhannes Kr. Kristjánsson, sími 421 0004, johannes@vf.is
Þorgils Jónsson (íþróttir), sími 421 0003, sport@vf.is
Jófríður Leifsdóttir, sími 421 0008, jofridur@vf.is
Jón Björn Ólafsson, sími 421 0014, jbo@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Kolbrún Jóna Pétursdóttir, s: 421 0005, kolla@vf.is
Anita Hafdís Björnsdóttir, s: 421 0013, anita@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, s: 421 0011, steini@vf.is
Prentsmiðjan Oddi hf.
www.vf.is og vikurfrettir.is
Stefanía Jónsdóttir, sími 421 0012, stebba@vf.is
Guðrún Karitas Garðarsdóttir, sími 421 0009, gudrun@vf.is
Aldís Jónsdóttir, sími 421 1010, aldis@vf.is
8 RITSTJÓRN VÍKURFRÉTTA
Afgreiðsla Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga er opið til kl. 15
Með því að hringja í síma 421 0000 er hægt að velja beint samband
við auglýsingadeild, fréttadeild og hönnunardeild.
Fréttavakt allan sólarhringinn er í síma 898 2222
8 KALLINN Á KASSANUM
8 VIÐHORFSKÖNNUN Á NETINU
MUNDI
8 MUNDI
Verða sett jóla-lög
á kennara?
Spurt var:
Samþykkja kennarar
miðlunartillöguna?
Já sögðu 10%
Nei sögðu 90%
Spurning vikunnar
á vf.is er:
Á að setja lög á kennara-
deiluna?
Farðu inn á vef Víkurfrétta, www.vf.is og taktu þátt í
vikulegri viðhorfskönnun. Niðurstöður verða birtar í
Víkurfréttum vikulega, ásamt næstu spurningu.
BORGARSTJÓRI Reykvíkinga hefur axlað
ábyrgð og sagt af sér sem borgarstjóri. Kallinn
metur boragarstjórann mikils og telur hann
mann að meiri að hafa sagt af sér. Kallinn
vill hinsvegar sjá forstjórana og stjórnar-
menn olíufélaganna axla ábyrgð á gjörðum
sínum. Kallinn óskar einnig upplýsinga um
hve kostnaður sjávarútvegsins á Suðurnesjum
hefur verið mikill vegna samráðsins.
KENNARAR felldu miðlunartillögu sáttasemj-
ara og allt útlit er fyrir að verkfall standi næstu
vikurnar. Nemendurnir virðast vera hættir að
skipta máli og finnst Kallinum það miður. Krafa
foreldra og fólksins í samfélaginu er sú að
deiluaðilar nái samningum. Það þýðir ekki að
vera með kröfur sem ekki er hægt að hvika frá
- þannig ganga samningaviðræður ekki fyrir sig.
ALMA Vestmann kaus að svara Kallinum í
Fréttablaðinu í síðustu viku. Þokkaleg grein hjá
henni þar sem hún kemur fram með sína hlið á
kennaraverkfallinu - hliðina sem snýst um „bág”
kjör kennara. Alma misskilur reyndar Kallinn
varðandi skemmdarverkin í kirkjugarðinum.
Kallinn var ekki að segja að skemmdarverkin hafi
verið unnin vegna kennaraverkfallsins - skemmd-
arverkin eru afleiðing kennaraverkfallsins. Stór
munur þar á! En Kallinn hefur enga samúð með
Ölmu eða öðrum kennurum - samúðin hvarf
þegar Kallinn horfði upp á fulltrúa kennara í
undanþágunefnd koma fram í fjölmiðlum og
Kallinum varð
ljóst að kenn-
arar myndu lítið sem ekkert hvika frá kröfum
sínum eins og venjan er hjá samningsaðilum.
MIKIÐ ÓSKÖP var fallegt útsýni af Keili þegar
Kallinn skellti sér á toppinn. Kallinn leit í átt
til Grindavíkur, þaðan út til Reykjanesbæjar
og svo runnu augun í átt að Garði með útsýni
yfir Voga. Roskinn öldungur segja sumir, öld-
ungur með hugsjón segir Kallinn. Hugsjón
eða draum, draum um sameiningu. Margir
myndu kalla þennan draum martröð en sam-
einingin er draumur Kallsins. Draumur um
kraftmikið og stórt sveitarfélag sem hefur
bassarödd í kór íslenskra sveitarfélaga.
NOKKUÐ HEFUR borið á því að fólk sé að
valsa um bæinn og valda spjöllum á eign-
um annarra, sérstaklega bílum. Bleyðurnar
eru vinsamlegast beðnar um að svala
skemmdarfíkn sinni heima hjá sér.
KALLINN SÁ Freyju Sigurðardóttur frá Sandgerði
setja Íslandsmet í armbeygjum kvenna.
Kallinn óskar henni til hamingju og biður hana
áfram um að gera Suðurnesjamenn stolta.
FRIÐÞÓR NEIDAL hefur ekki enn svarað kalli
landsmanna um hvað sé í raun og veru að
gerast á vellinum. Ætli hann viti það sjálfur?
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum útskrifaði föstudaginn 5. nóvember 12 stuðnings-fulltrúa á Suðurnesjum. Námið er ætlað þeim sem starfa sem aðstoðarmenn kennara í kennslustofum. Nemendurnir hafa stundað námið s.l. tvö ár og voru þær mjög ánægðar
með árangurinn. Áætlað er að hefja stuðningsfulltrúanámið að nýju í janúar 2005.
Upplýsingar um námið er hjá MSS í síma 421 7500 eða á www.mss.is
Stuðningsfulltrúar
útskrifaðir
Kæru Suðurnesjamenn!
Senn eru að koma jól og samkvæmt venju förum við
Lionessur á stað með árlega handavinnu okkar sem felst í því
að við hnýtum sælgæti á kransa og setjum líka í fallega vasa.
Skrautlegar og fallegar gjafir fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Ágóðinn á síðasta ári sem var kr.1.431.034.00 var öllum varið
til líknarmála.
Ágóðanum var skipt þannig:
Hjálparstarf Keflavíkurkirkju kr.200.000-
Syrkur til Auðar Guðjóns kr.100.000-
Heilbrigðisst.Suðurnesja tæki með L.K Æsu kr.356.184-
Jóhann Kristjánsson V/Olympíuleika fatlaða kr 50.000-
Þroskahjálp á Suðurnesjum kr.100.000-
Tölva í sérdeild Njarvíkurskóla með LK kr.100.000-
Styrkur til Vilinius í Lettlandi kr. 10.000-
Björgunarsveitin á Suðurnesjum vegna afmælis kr. 50.000-
Sjálfsbjörg á Suðurnesjum kr.150.000-
Listam.happdr. til styrktar Mána Sigurbjörnssyni kr.175.000-
Litabækur kr. 14.450-
Ýmsar gjafir kr.125.400-
Með von um góðar undirtektir eins og endranær.
Hægt er að panta kransa í síma 421-4143 á vinnutíma.
Þá megið þið eiga von á heimsókn okkar Lionessa á næstu
dögum.
Með fyrirfram þakklæti.
Fyrir hönd fjáröflunarnefndar
Þorbjörg Pálsdóttir og Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Lionessur bjóða
sælgætiskransa
fyrir jólin
Bassarödd í kór íslenskra sveitarfélaga