Víkurfréttir - 11.11.2004, Blaðsíða 16
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Anastasía Sirenko var valin Qmen stúlkan 2004 síðastliðið laugar-
dagskvöld á skemmtistaðnum
Traffic í Reykjanesbæ. Keppnin
var haldin í annað skiptið
en átta glæsilegar stúlkur
tóku þátt. Eins og lesendur
Víkurfrétta ættu að vita þá
hefur keppnin verið í gangi
síðan í sumar og hafa þær
birst á síðum Víkurfrétta og á
netinu.
Stúlkurnar höfðu verið á
æfingum í u.þ.b. tvær vikur
fyrir keppnina og voru að
vonum spenntar þegar keppn-
ina hófst um kvöldið. Þær
voru allar stórglæsilegar hvað
varðar hár og förðun en það
kom í hlut Art hússins að sjá
um það. Að sögn aðstandenda
keppninnar höfðu stelpurnar
allar tekið miklum fram-
förum í framkomu á sviði og í
göngulagi frá því þær byrjuðu
að æfa til lokakvöldsins.
Húsfyllir var á skemmti-
staðnum þegar kvöldið hófst
og var það enginn annar en
Idol stjarnan Kalli Bjarni
sem hóf keppnina með stuð-
laginu „Hush” til að hita gesti
upp. Stúlkurnar komu fram
í fötum frá Mangó og ein-
nig með skart sem Rakel í
Mangó hafði hannað. Að sögn
dómnefndar var mjög erfitt
að skera úr um sigurvegara
kvöldsins vegna þess hve
glæsilegar stúlkurnar voru.
Anastasía Sirenko, Qmen
stúlkan 2004, fékk fjöldann
allan af vinningum í kjölfar
titilsins en þar má helst nefna 1
árs módelsamning við model.
is, úr frá Georg V. Hannah,
matur fyrir tvo frá veitinga-
staðnum Jia Jia, árskort í lík-
amsræktarstöðinni Perlunni,
20 þúsund króna úttekt í
tískufataversluninni Mangó,
6 þúsund króna úttekt á veit-
ingastaðnum Cafe Duus og
Clinique gjafakörfu frá Lyf og
Heilsu að verðmæti 25.000 kr.-
Netverjar Víkurfrétta tóku
þátt í valinu á Qmen stúlkunni
2004 ásamt dómnefnd kvölds-
ins sem skipuð var starfs-
mönnum Model.is, Rakeli í
Mangó, Atla Má Gylfasyni
ljósmyndara og Kalla Lú
dagskrárgerðarmanni.
Qmen stúlkan 2004 var einn
vinsælasti liðurinn á vefs-
íðu Víkurfrétta og voru
tugir þúsunda netverja
sem skoðuðu myndirnar
af stelpunum. Vegna mik-
illa vinsælda keppninnar
þykir ljóst að keppnin verði
haldin aftur næsta sumar.
Anastasía Sirenko
Qmen-stúlkan 2004
Húsfyllir á Qmen-kvöldi á veitingahúsinu Traffic:
Stúlkurnar voru allar stórglæsilegar hvað varðar hár og förðun
en það kom í hlut Art hússins að sjá um það.