Víkurfréttir - 11.11.2004, Page 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
����������������������
�����������������������
�������������������
����������������
�� ������������������
��������������������
�������������� ����
���������� �������
��������������
�������� ��������������������
��������������
���������������� ����������
�����������������������
Það er f r u msý n i nga r-kvöld, klukkan er hálf-átta. Andrúmsloftið í
leikhúsinu er magnþrungið,
blandað angan af andlitsfarða,
hárlakki og ryki. Leikararnir
standa á sviðinu og eru að hita
sig upp fyrir sýninguna. Eftir
nokkrar vel valdar líkams-
æfingar tökum við höndum
saman og lokum augunum.
Við einbeitum okkur að sýn-
ingunni. Allt er kyrrt. Svið
er myrkvað og ekkert heyrist
nema andardráttur ok kar.
Þarna, á þessu aug nabli k i
erum við eitt. Þetta er okkar
s ý n i ng og br át t mu n fól k
st re y ma í sa l i n n, he y r u m
skvaldrið í þeim sem þegar
eru komnir fram í anddyri.
Frumsýningarf iðringurinn
lætur á sér kræla, við ætlum
að leggjast á eitt um að fremja
í kvöld svo góða leik list að
fólk muni ganga í burtu með
bros á vör og góðar minningar.
Við tökum saman höndum og
öskrum: ENJOY!!! Það eru 20
mínútur í sýningu. Við för-
um inn í búningsherbergi og
bíðum. Leikstjórinn Bergur
Þór Ingólfsson kemur inn og
óskar okkur góðs gengis. Nú er
ekki eftir neinu að bíða. Ljósin
koma upp, tónlistin hækkar
og við erum farin af stað inn í
töfraheim leikhússins.
Nú, er svo komið að 3 sýningar
eru búnar og aðsóknin afpyrnu
dræm svo ekki sé meira sagt.
Hvar eru bæjarbúar? Afhverju
eru þeir ekki að skila sér á
sýningar? Við hér í Kef lavík
eigum eitt glæsilegast áhuga-
mannleikhús á landinu og þótt
víðar væri leitað. Innan veggja
félagsins búa stórkostlegir hæf-
ileikar sem springa út sem aldr-
ei fyrr í Eftirlitsmanninum sem
er á fjölunum hjá okkur um
þessar mundir. Leikritið fjall-
ar um gerspillt bæjarfélag þar
sem embættismennirnir eru
rotnir af spillingu. Dag einn
fær póstmeistari bréf þess efnis
að von sé á eftirlitsmanni sem
kanna eigi allan embættisrekst-
ur bæjarins. Það verður uppi
fótur og fit og þegar glaum-
gosi einn að nafni Ivan kem-
ur í bæinn þá er hann tekinn
í misgripum fyrir hinn rétta
eftirlitsmann. Atburðarásin
einkennist af endalausum mis-
skilningi sem verður bráðfynd-
inn í höndum leikara LK. Þetta
er bráðskemmtilegur farsi sem
er staðfærður á skemmtilegan
hátt af leikstjóranum honum
Bergi Þór, sem hefur staðið
eins og stytta við bak leikar-
anna allt æfingaferlið og á mi-
kið hrós skilið fyrir góða vinnu
og fagmannleg vinnubrögð.
Leikararnir standa sig eins og
hetjur og fara margir á kostum
í hlutverkum sínum.
Nú er svo komið að ákveðið
hefur verið að lokasýning ver-
ði næsta sunnudag kl.20:00.
Sý nt er í Fr u m le i k húsi nu
í Kef lav ík, Vesturbraut 17.
Vona ég að Suðurnesjamenn
finni hjá sér leikhúsþorstann
og skelli sér á þessa frábæru
sýningu sem svíkur engann.
Suðurnesjamenn hafa yfirleitt
mætt vel á þær sýningar sem
leikfélagið hefur verið með
og vona ég að ég sjái sem allra
f lesta á sunnudaginn. Nú fer
hver að verða síðastur. Fyrstir
koma fyrstir fá. Miðapantanir
eru í síma 421-2540 e.k l.18
á sunnudaginn. Hvet a l la
Suðurnesjamenn til að koma,
sjá og sannfærast.
Rakel Brynjólfsdóttir
Félagi í LK.
8 Leikfélag Keflavíkur:
Að fremja leiklist!
Aðventan
og jólin 2
004
Auglýsingasíminn er 421 0000