Víkurfréttir - 11.11.2004, Page 25
VÍKURFRÉTTIR I 46. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 11. NÓVEMBER 2004 I 25
Keflvíska söngkonan Elíza Geirsdóttir Newman sem búsett hefur verið í London
undanfarin ár hefur nýverið gefið
út geisladisk með hljómsveit sinni
Skandinavia. Elíza var á ferð á
Íslandi fyrir skömmu og kom
m.a. fram í þætti Gísla Marteins í
Ríkissjónvarpinu og í morgunsjón-
varpi Stöðvar 2. Um þessar mundir
spilar sveitin víða í Bretlandi og hefur
henni hvarvetna verið vel tekið.
Fær góða dóma erlendis
Platan kom út í Bretlandi í lok sept-
ember og hefur henni verið
vel tekið af tónlistarpress-
unni þar ytra. Tónlistin á
plötunni er epískt rokk og
ról sem vísar til uppruna
Elízu og áhuga hennar á
norrænum fræðum. Platan
hefur hlotið mjög góða dóma,
m.a. hlaut hún 4 K í Kerrang!
og einkunnina 9 í Powerplay
Magazine. Gagnrýnendur
hafa m.a. líkt sveitinni við Led
Zeppelin og Evanescence og
Elízu við Kate Bush, P.J. Harvey
og Anastacia svo eitthvað sé nefnt.
Gagnrýnendur eru þó allir sam-
mála um það að þarna sé eitthvað
einstakt á ferð og ótrúleg rödd Elízu í
bland við rífandi rokk, með fiðluleik
í kaupbæti sé séríslensk uppfinning
sem rokkarar ættu að kynna sér. Þetta
er hreinræktuð rokkplata sem ætti að
höfða til þeirra sem kunna að meta
þétta rokktónlist með frábærum og
kraftmiklum söng. Platan inniheldur
10 lög og hafa tvö þeirra áður verið
gefin út á smáskífum, “Dark Days” og
“Never too late”, auk þess sem gerð
hafa verið myndbönd við þau
lög. Myndbandið við
„Never too
late” var einmitt tekið upp í Höfnunum
og eiga Suðurnesjamenn sinn þátt í
gerð þess, en leikstjóri og framleiðandi
er Karl Óttar, bróðir Elízu og með
aðalhlutverkið í myndbandinu fer
keflvíski leikarinn Sigurður Eyberg.
Lærir klassík í bland
við rokkið
Elíza hefur starfað við tónlist sína frá
því hún settist að í London, fyrst með
hljómsveitinni Bellatrix, sem áður hét
Kolrassa krókríðandi, og svo núna
með Skandinavia. Samhliða rokkinu
hefur hún lagt stund á framhaldsnám
í óperusöng hjá hinni þekktu söng-
konu Sigríði Ellu Magnúsdóttur sem
býr í London. Elíza segir klassíkina
blandast ágætlega við rokkið, enda hafi
hún náð mun betri tökum á röddinni
og tæknin nýtist henni jafnt í óperu-
söngnum sem rokkinu. „Sigríður
Ella hefur hvatt mig til dáða og hún
styður mig í því sem ég tek mér fyrir
hendur, þó áherslurnar í rokkinu séu
ólíkar óperunni. Ég á henni mikið
að þakka og hún hefur reynst mér
góður bakhjarl í Bretlandi.” Elíza
segist gjarna vilja koma með sveit
sína til frekara tónleikahalds á
Íslandi, en það sé þó dýrt að flytja
inn heila hljómsveit með öllu
tilheyrandi. „Við fengum þó stuðning
frá Iceland Express í september sl. til
að koma heim og spila á minningart-
ónleikum um Fróða Finnson í Iðnó.
Það var mjög gaman og við myndum
gjarna vilja spila meira fyrir rokk-
þyrsta Íslendinga. Vonandi verður af
því, en það ræðst að sjálf- sögðu af
dagskrá sveitarinnar á næstunni og
hvernig gengur að kynna plötuna.”
Semur öll lögin sjálf
Elíza semur öll lög og texta á plötunni
sjálf og stýrir auk þess upptökum í
samvinnu við John Fryer. Elízu til halds
og traust eru reyndir breskir tónlistar-
menn, þeir Martin Maddaford á bassa
og Dave Collinder á trommur og á gítar
hin fingrafima Claire Wakeman. Platan
hefur einnig verið gefin út á Íslandi og
sér Skífan um dreifingu, en platan fæst
í öllum betri hljómplötuverslunum.
Suðurnesjarokkarar eru hvattir til að
kynna sér málið og næla í samnefnda
skífu Skandinavia í næstu búð. Þeir
sem vilja kynna sér hljómsveitina frek-
ar geta kíkt á heimasíðu sveitarinnar
www.skandinavia.tk þar sem hægt er
að sjá ýmsar upplýsingar um sveitina,
spila myndbönd og lagabúta, auk þess
að lesa fjölda plötu- og tónleikadóma.
Skandinavískt
Suðurnesjarokk