Víkurfréttir - 29.12.2004, Blaðsíða 23
VÍKURFRÉTTIR I 53. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 29. DESEMBER 2004 I 23
í Hvalsneskirkju
Sundbrúðkaup
frá byrjun til enda og ég held
að langflestir hafi skemmt sér
konunglega.”
B r ú ð h j ó n i n h é l d u e k k i í
eiginlega brúðkaupsferð heldur
ákváðu þau að njóta þess góða
félagsskapar sem þau höfðu á
Íslandi og ferðast um landið.
„Dagana eft ir brúðkaupið
fórum við með gestina okkar
í dagsferðir um Snæfellsnes,
Þingvelli, Gullfoss og Geysi.
Þessar ferðir vöktu mikla lukku
og gjörbreyttu hugmyndum
f lestra um náttúrufegurð.
Eftir að gestirnir okkar voru
farnir heim héldum við áfram
að ferðast um landið með
fjölskyldunni minni, fórum
á lundaveiðar, í stangveiði og
í göngur. Við eyddum líka
góðum tíma í sumarbústað
fjölskyldunnar við Fellsströnd.”
Nú hefur hið daglega líf aftur
tekið við hjá þeim Eydísi og
Matt sem búa í Ástralíu. Þar
heldur Eydís áfram læknanámi
sínu í janúar en vinnur um
þessar mundir að rannsóknum.
Ma t t l a u k m a s te r s n á m i í
viðskiptafræði fyrr á árinu
o g v i n n u r í þ r ó u n a r- o g
fjármáladeild byggingaverk
takafyrirtækis í Sydney. Líkar
honum það vel að sögn Eydísar
sem er ánægð með lífið og
t i lver una h inum meg in á
hnettinum. „Magnús bróðir,
Sædís konan hans og Bryndís
Ásta, litla frænka mín komu
svo til Ástralíu í byrjun október
og voru hjá okkur í nokkrar
vikur. Það var alveg frábært að
fá þau í heimsókn og geta sýnt
þeim allt hérna úti.” Sumarið
er gengið í garð í Ástralíu og
hjónin ungu eru nýbúin að
koma sér fyrir í nýju húsnæði.
„ Við erum nýbúin að koma
okkur fyrir í nýju húsnæði og
vorum að klára að taka upp úr
síðustu kössunum frá Íslandi.
Við erum svo heppin að búa
nálægt ströndinni svo við getum
oft tekið okkur smá sundsprett
fyrir vinnu!
Texti: Þorgils Jónsson - Myndir: Héðinn Eiríksson og úr einkasafni.
Brúðhjónin ásamt foreldrum sínum
eftir athöfnina.
Hvalsneskirkja
skartaði sínu
fegursta á
brúðkaupsdaginn
og sól skein í
heiði
Konráð Lúðvíksson leiðir dóttur sína
að Hvalsneskirkju. Blómastúlkurnar
Guðrún Mjöll og Lovísa Íris fylgja
með.
Eydís ásamt nöfnum sínum
fjórum. Eydísi Eyjólfsdóttur,
Eydísi Lúðvíksdóttur, Eydísi
Hákonardóttur og Eydísi
Emblu Lúðvíksdóttur