Víkurfréttir - 08.09.2005, Blaðsíða 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Frelsum Vatnsmýrina og færum landsmenn nær alþjóðaflugvelli:
Nýlega var opnuð heima-síða Menningarseturs-ins að Útskálum. Þar
er m.a. rakin saga þess og hug-
myndir um framtíðaruppbygg-
ingu, en í setrinu verður sögu
og menningarhlutverki prest-
setranna á Íslandi í gegnum
aldirnar gerð skil. Þar verður
einnig aðstaða fyrir fræðimenn
sem eru í rannsóknartengdu
framhaldsnámi og aðstöðu
fyrir ráðstefnu-og námskeiða-
hald sem verður snar þáttur í
starfsemi Menningasetursins.
Auk sóknarnefndar kemur Sveit-
arfélagið Garður að uppbygging-
unni ásamt Sparisjóðnum í Kefla-
vík. Það er hugbúnaðarhúsið
daCoda í Keflavík sem setti upp
vefinn.
Breið samstaða er á Suð-urnesjum um að flytja innanlandsflugið frá
Reykjavík til Keflavíkurflug-
vallar og hafa formenn þeirra
stjórn mála flokka sem eiga
kjörna fulltrúa í bæjarstjórn
Reykjanesbæjar ákveðið að
gangast fyrir stofnun samtaka
sem berjist fyrir flutningi inn-
anlandsflugs til Keflavíkurflug-
vallar og gerð samgöngumann-
virkis milli Straumsvíkur og
Vatnsmýrarinnar. Þetta eru
þeir Eysteinn Eyjólfsson, for-
maður Samfylkingarinnar í
Reykjanesbæ, Eysteinn Jóns-
son, formaður Fulltrúaráðs
Framsóknarfélaganna í Reykja-
nesbæ og Viktor Borgar Kjart-
ansson, formaður Fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna í Reykja-
nesbæ. Þá var óháður aðili feng-
inn til að fara með formennsku
í undirbúningsstjórninni en
það er Páll Ketilsson, ritstjóri
Víkurfrétta.
Í samtali við Víkurfréttir sögðu
formennirnir samtökin verða
þverpólitísk og bjóða alla vel-
komna sem vilja sýna málefninu
stuðning. Hagfræðileg úttekt á
þeim hugmyndum sem fram
hafa komið verður meðal fyrstu
verkefna samtakanna og í fram-
haldi af því verður haldið opið
málþing þar sem fulltrúum allra
sjónarmiða verði boðið til skrafs
og ráðagerða. Hægt er að gerast
stofnfélagi með því að skrá sig
í samtökin á heimasíðu samtak-
anna www.flugkef.is en þátttöku-
gjald er 1500 kr. Stofnfundur
verður auglýstur fljótlega.
Mikið hefur verið rætt um flutn-
ing Reykjavíkurflugvallar úr
Vatnsmýrinni að undanförnu og
sitt sýnist hverjum um nýja stað-
setningu innanlandsflugsins.
Hagsmunir Suðurnesja eru aug-
ljósir í þessum efnum og hefur
það lengi verið skoðun flestra
Suðurnesjamanna að það sé ein-
ungis spurning um hvenær en
ekki hvort innanlandsflugið flytj-
ist til Keflavíkurflugvallar. Hags-
munir höfuðborgarinnar eru
einnig augljósir þegar horft er
til þeirra tækifæra sem skapast
í skipulagsmálum Reykjavíkur
við niðurlagningu flugvallarins í
Vatnsmýrinni.
„Við gerum okkur grein fyrir
því að það eru hagsmunir lands-
byggðarinnar að hafa greiðan
aðgang að þeirri þjónustu sem
nauðsyn legt er að sækja til
höfuðborgarinnar og eru því
greiðar samgöngur milli Kefla-
víkurflugvallar og miðborgar
Reykjavíkur nauðsynlegar,”
sögðu formennirnir í samtali
við blaðið.
Þjóðarsátt um flutning
innanlandsflugsins til
Keflavíkurflugvallar
Flutningur innanlandsflugsins
til Keflavíkurflugvallar mun
hafa áhrif á samgöngur milli
höfuðborgarinnar og lands-
byggðar enda vekja hugmyndir
um flutning innanlandsflugsins
einatt upp háværar gagnrýnis-
raddir landsbyggðarfólks. Helst
er því haldið fram að flutningur-
inn verði til þess að innanlands-
flugið leggist af sökum þess að
fólk muni velja frekar að aka
til Reykjavíkur í stað þess að
fljúga, vegna þess viðbótartíma
sem bætist við ferðalagið, þ.e.
frá Keflavíkurflugvelli til Reykja-
víkur.
Formennirnir, sem standa að
stofnun samtakanna, telja hins
vegar að rödd skynseminnar
eigi að ráða og auðveldlega sé
hægt að leysa þau vandkvæði
sem fylgja flutningi starfssem-
innar.
„Við fullyrðum að með bættum
samgöngum sé hægt að ná ferða-
tíma frá Keflavíkurflugvelli til
Reykjavíkur niður í 25-30 mín-
útur. Flöskuhálsinn á leiðinni
milli Keflavíkurflugvallar og
miðbæjar Reykjavíkur er ekki
kaflinn frá Reykjanesbæ til Hafn-
arfjarðar heldur liggur vandinn
í samgönguhnútum innan höf-
uðborgarinnar.
Margar leiðir eru til að bæta
úr þessum flöskuhálsum. Við
höfum til dæmis velt því fyrir
okkur hvort ekki sé hægt að
gera beina samgöngutengingu
frá Straumsvík í Vatnsmýrina
sem mætti leysa með gerð brúar
og/eða jarðgangna. Allar líkur
benda til þess að slík samgöngu-
tenging borgi sig og komi til
með að stytta ferðatímann veru-
lega. Með þessari lausn ætti að
vera hægt að skapa þjóðarsátt
um málið, Reykvíkingar fá dýr-
mætt landsvæði til afnota og að-
gengi landsbyggðarfólks að höf-
uðborginni breytist lítt,” sögðu
þeir Eysteinn Jónsson, Viktor B
Kjartansson og Eysteinn Eyjólfs-
son í samtali við Víkurfréttir.
Stofna samtök um flutn-
ing innanlandsflugs til
Keflavíkurflugvallar
Ný heimasíða Menningar-
setursins að Útskálum Eysteinn Eyjólfsson, formaður Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ, Eysteinn Jónsson, formaður Fulltrúa-ráðs Framsóknarfélaganna í Reykjanesbæ, Viktor Borgar Kjartansson, formaður Fulltrúaráðs Sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjanesbæ og Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta.