Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.09.2006, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 14.09.2006, Blaðsíða 18
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 37. TÖLUBLAÐ I 27. ÁRGANGUR Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum: Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suður-nesjum, sem haldinn var í Vogum á laugardag, telur afar brýnt að í framhaldi af niðurstöðu viðræðna Íslands og Bandaríkjanna um varnar- mál á Miðnesheiði, sé haft fullt samráð við heimamenn um ráðstöfun húsnæðis og þróun atvinnumála á svæðinu. Minnt er á að fyrir aðeins 5 mán- uðum stóðu 900 starfsmenn frammi fyrir tilkynningu um uppsagnir starfa hjá Varnarlið- inu og stærstur hluti þeirra voru fjölskyldufólk af Suðurnesjum. Sveitarfélögin hafa lagt sig fram um gott samráð við ríkisstjórn- ina til að leysa erfið atvinnumál þessa stóra hóps og þótt enn sé því verkefni ekki lokið, er ljóst að stærsti hluti starfsmanna hefur þegar gengið til annarra starfa hér á svæðinu. Aðalfundurinn lýsir yfir stuðn- ingi við framkomnar kröfur, um að leitað verði allra leiða til þess að koma til móts við þá starfs- menn varnarliðsins sem eru að nálgast eftirlaunaaldurinn og eiga erfitt með að komast inn á almennan vinnumarkað. Næstu skref snúa að tilhögun á nýtingu mannvirkja sem eftir kunna að standa, hreins un mengaðra svæða, ráðstöfun lands og sköpun nýrra atvinnu- tækifæra. Mikilvægt er að í því breyting- arferli sem framundan er verði allir þættir flugvallarstarfsem- innar skoðaðir í samhengi og litið á svæðið sem eina heild. Það er grundvallaratriði að sveit- arfélögin séu áhrifavaldar um þá framtíð sem hér er mótuð. Þessi ályktun var samþykkt sam- hljóða af fundinum. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) lýsir ánægju með að loks skuli hilla undir lok framkvæmda við 3ju hæð D-álmu við HSS. Endurnýjun skurðstofa og aukið rými mun án efa gefa HSS aukin sóknarfæri og auka þjónustu við íbúa Suðurnesja frá því sem verið hefur. Mikil- vægt er að tryggja að framlög á fjárlögum sem standi undir aukinni starfsemi og tryggi fulla þjónustu á skurðstofum allan sólarhringinn allt árið. Hlutverk D-álmu hefur breyst frá því að vera hjúkrunardeild fyrir aldraða við sjúkrahúsið, í það að efla almenna sjúkrahús- þjónustu við íbúana og því er mikilvægt að nú þegar verði gefið framkvæmda og rekstrar- leyfi fyrir byggingu og rekstri nýs hjúkrunarheimilis í Reykja- nesbæ. Jafnframt verði rekstur Víðihlíðar og annarra hjúkr- unarheimila á Suðurnesjum tryggður. Framboð hjúkrun- arrýma er í algjöru lágmarki Suðurnesjum í samanburði við önnur svæði. Mikilvægt er að samkomulag sem sveitarstjórnir á Suður- nesjum gerðu við fyrrverandi heilbrigðisráðherra sé í fullu gildi þrátt fyrir að nýir einstak- lingar taki við starfi ráðherra heilbrigðismála. Um nokkuð skeið hafa verið í gildi samningar milli ríkisins og reynslusveitarfélaga um rekstur heilsugæslu s.s. á Höfn í Horn- arfirði og á Akureyri. Telur aðal- fundurinn að nú liggi fyrir nægj- anleg reynsla til þess að heimila öðrum sveitarfélögum, sem þess óska, að yfirtaka rekstur heilsu- gæslu með samningi milli ríkis- ins og viðkomandi sveitarfélags. Skorar fundurinn á ríkisvaldið að verða við slíkum óskum. Þetta kemur fram í samþykkt að- alfundar SSS frá síðustu helgi. Tryggja skal fulla þjónustu á skurðstofum HSS -allan sólarhringinn allt árið Haft sé fullt samráð við heimamenn -um ráðstöfun húsnæðis og þróun atvinnumála Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suð-ur nesj um, ít rek ar við Alþingi að lokið verði við gerð Suðurstandavegar sem allra fyrst. Vegurinn er mikilvæg vegtenging innan hins nýja Suðurkjördæmis og nauðsynleg tenging á milli at- vinnusvæða. Aðalfundurinn telur mikilvægt að ljúka gerð Ósabotnavegar þegar á næsta ári með bundnu slitlagi. Einnig skorar SSS á Alþingi að láta lýsa upp og breikka stofnvegi á Reykjanesi s.s. Grindavíkurveg, Sandgerðis- veg, Garðskagaveg og Garð- veg. Mikil aukning umferðar á þessum vegum kallar á lausn hið fyrsta. Fund ur inn legg ur einnig áherslu á samræmingu veg- merkja á Suðurnesjum. Þá legg ur að al fund ur inn áherslu á tvöföldun Reykjanes- brautar frá Hvassahrauni til Hafnarfjarðar og frá Fitjum að Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Fundurinn telur brýnt að mis- læg gatna mót verði byggð samhliða framkvæmdum nú við væntanlegt Hæðahverfi í Reykjanesbæ og ráðstafanir gerðar vegna reiðvega og um- ferðar hjólreiðafólks. Fundurinn skorar á yfirvöld að tryggja almenningssamgöngur á milli bæja á Suðurnesjum og til höfuðborgarsvæðisins sérstaklega í ljósi breytinga á reglugerð hvað varðar leigu- bílaakstur sem þegar hefur komið niður á þjónustu við íbúa svæðisins. Aðalfundurinn minnir ráð- herra, þingmenn og Vegagerð- ina á að kynna sér forgangsröð verkefna í samgöngumálum á Reykjanesi sem kynnt er í áfanga skýrslu Sam göngu- nefndar SSS og lögð er fram sem sameiginleg niðurstaða sveitarstjórna á Suðurnesjum á síðasta ári. Aðalfundurinn fagnar árangri í samgöngumálum á Reykja- nesi. Sérstaklega er ástæða til að fagna fækkun slysa á Reykjanesbrautinni eftir að fyrsti hluti hennar var tvö- faldaður en mikilvægt er að framkvæmdir tengdar umferð- aröryggismálum hafi forgang í hverju kjördæmi fyrir sig. Breiðari og bjartari stofnvegi SSS skorar á Alþingi: Brotthvarf Varnarliðsins:

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.