Víkurfréttir - 14.09.2006, Blaðsíða 19
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 14. SEPTEMBER 2006 19STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Akademían
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suður-nesjum, lýsir fullum
stuðn ingi við fyr ir hug uð
áform um byggingu álvers
í Helguvík. Í kjölfar stærstu
hópuppsagna í sögu þjóðar-
innar, með ákvörðun Banda-
ríkjamanna um brotthvarf
varnarliðsins, er brýnt að fleiri
sterkar stoðir séu settar undir
atvinnulíf á svæðinu.
Uppbygging álvers er einstakt
tækifæri sem nú býðst til að
auka fram boð vel laun aðra
starfa á svæð inu, sem gætu
hentað sem framtíðarstörf fyrir
fjölmarga sem nú hverfa úr
störfum á vegum Varnarliðsins.
Staðsetning í Helguvík þykir
einstaklega hentug og orkufyr-
irtæki telja sig geta lagt til um-
hverfisvæna orku sem þarf til að
knýja álverið. Að því gefnu að
öllum ytri skilyrðum sé fullnægt
hljóta afskipti stjórnvalda fyrst
og fremst að miða að því að
liðka til fyrir framvindu þessa
verkefnis. Fundurinn ítrekar
að allra umhverfissjónarmiða
sé gætt við tilhögun verkefnis-
ins og að álverið verði til fyrir-
myndar á heimsvísu í slíku til-
liti.
Þessi ályktun var samþykkt með
27 atkvæðum og 1 var á móti.
Námskeið Námskeið
Jóga gegn
streitu
Skráning hafin
Losaðu
þig við
fitupúkann
Skráning hafin
Hefst 23. september – 1 sinni í viku
miðvikudaga eða laugardaga
2-3 klst í senn
Þriðjudagar og fimmtudagar
19. september – 28. september (4 skipti)
kl. 20.00 til 22.00
Skráning á akademian.is
og í síma 420 5500
Nudd-
námskeið
Skráning hafin
Föstudaginn 29. sept kl. 19.00 til 22.00
Laugardaginn 30. sept og sunnudaginn
1. okt kl. 10.00 til 15.00 (3 skipti)
Námskeið
Kenndar verða einfaldar líkamsæfingar
og öndunaræfingar til að takast á við
streitu. Einnig verða kenndar áhrifaríkar
leiðir til að efla jákvætt hugarfar og ná
djúpri slökun. Geisladiskur með leiddri
slökun fylgir námskeiðinu.
Kennari
Guðjón Bergmann
16 vikna námskeið sérstaklega hugsað
fyrir þá einstaklinga og fjölskyldur sem
vilja létta sig og losa sig frá harðstjórn
sykurs og skyndibitafæðis eða bara
ofáti og röngu fæði. Námskeiðið byggist
á mikilli fræðslu og líkamsþjálfun.
Leiðbeinendur:
Þorbjörg Hafsteinsdóttir, Oscar Umahro
og Smári Jósafatsson
Námskeið fyrir byrjendur.
Markmiðið er að þátttakendur öðlist
næga grunnþekkingu til að nudda heilt
nudd af öryggi og geti meðal annars létt
á vöðvaspennu í öxlum og hnakka.
Kennari
Ragnar Sigurðsson
Breiðari og bjartari stofnvegi
Uppbygging álvers
í Helguvík er
einstakt tækifæri
Aðalfundur Tónlistarfélags Reykjanes-bæjar verður haldinn í Bíósal Duus-húsa fimmtudaginn 21. september kl.
20:00. Venjuleg aðalfundarstörf og dagskrá
vetrarins verða aðalatriði fundarins.
Starfsemi félagsins hefur verið með miklum
blóma og hafa bæjarbúar ekki farið varhluta af
því. Aðalfundur félagsins verður haldinn í Bíó-
sal Duushúsa eru allir áhugamenn um tónlist
hvattir til að mæta og taka þátt í starfi vetrar-
ins. Þeir sem hafa áhuga á að vera styrktaraðilar
geta skráð sig hjá menningarfulltrúa Reykjanes-
bæjar á netfangið menningarfulltrui@reykja-
nesbaer.is
Styttist í aðalfund Tónlistarfélagsins