Víkurfréttir - 13.02.2014, Side 1
vf.is
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
FIMMTUDAGURINN 13. FEBRÚAR 2014 • 6. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR
Hringbraut 99 - 577 1150
Félagar í FEB fá 12% afslátt
af öllum vörum og góð kjör
á lyfseðilsskyldum lyfjum
Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ
Nico
tinel
l fru
it 2 m
g 98
stk.
20%
afsl
áttu
rTI
LBO
Ð
VIKU
NNA
R
af lyfjum utan greiðsluþátttöku
af lausasölulyfjum og öðrum vörum
Frábært
vöruúrval
og þjónusta
í Reykjanesbæ
16% afsláttur
12% afsláttur
Lyfja Reykjanesbæ
Krossmóa 4
Sími 421 6565
www.lyfja.is
Afgreiðslutími:
mán.–fös. 9–19
laugard. 10–16
sunnud. 12–16
Betri kjör fyrir heldri borgara
Félagar í Félagi eldri borgara
á Suðurnesjum njóta sérkjara
í Lyfju Reykjanesbæ.
Við stefnum að vellíðan.
Veglegt afmælisblað
í tilefni 40 ára kaupstað-
arafmælis Grindavíkur
Í tilefni 40 ára kaupstaðarafmælis Grinda-víkurbæjar verður gefið út veglegt afmælis-
blað í lok maí í. Blaðið mun verða tileinkað
samfélaginu í bænum, atvinnu- og mannlíf-
inu í allri sinni fjölbreyttustu mynd í veglegri
útgáfu. Afmælisblaðið er samstarfsverkefni
Grindavíkurbæjar og Víkurfrétta.
Það mun koma út 23. maí eða viku fyrir Sjóarann
síkáta sem mun fá veglega kynningu í blaðinu.
Því verður dreift í 25 þúsund eintökum inn á öll
heimili á Suðurnesjum, í Hafnarfirði,á Suður-
landi, á helstu ferðamannamiðstöðvum og víðar.
Ábendingar um gott efni í afmælisblaðið eru vel
þegnar á netfangið thorsteinng@grindavik.is eða
olgabjort@vf.is.
Víkurfréttir munu jafnframt sjá um auglýsinga-
sölu í afmælis- og kynningarblaðið.
Sjónvarp Víkurfrétta hefur göngu sína íkvöld. Um er að ræða fréttatengdan mann-
lífsþátt frá Suðurnesjum sem sýndur er á sjón-
varpsstöðinni ÍNN. Sjónvarp Víkurfrétta mun á
næstu vikum fara víða í efnisöflun og lætur sér
fátt óviðkomandi í fréttum, mannlífi og menn-
ingu á Suðurnesjum.
Fjögur innslög frá Suðurnesjum verða í fyrsta
þætti Sjónvarps Víkurfrétta.
Flugþjónustudeild Keflavíkurflugvallar hefur
meðal annars það hlutverk að halda flugbrautum
Keflavíkurflugvallar hreinum og í því ástandi að
þar sé öruggt að lenda flugvélum og taka á loft.
Víkurfréttir stóðu vaktina á Keflavíkurflugvelli á
dögunum þegar allt ætlaði að fenna í kaf.
Guðmundur Rúnar Lúðvíksson er sannkallaður
fjöllistamaður. Hann er kunnur fyrir tónlist sína
en hann er einnig lunkinn með pensilinn. Þá
er hann með stórar hugmyndir um listaverk á
Suðurnesjum. Ein þeirra er um norðurljósaturna í
Reykjanesbæ. Við kíkjum á vinnustofuna til Guð-
mundar á Ásbrú í þættinum í kvöld.
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar var fyrir löngu
búinn að sprengja utan af sér gamalt og óhent-
ugt húsnæði á tveimur stöðum í Reykjanesbæ.
Nú hefur verið innréttað glæsilegt húsnæði fyrir
skólann í Hljómahöllinni. Við tókum hús á tón-
listarskólastjóranum Haraldi Árna Haraldssyni og
ræðum við hann í þætti kvöldsins.
Mörghundruð nemendur í 9. og 10. bekk grunn-
skóla á Suðurnesjum kynntu sér fjölbreytt störf
sem unnin eru á Suðurnesjum. Flestir nemendur
spurðu um laun og vinnutíma. Víkurfréttir voru á
staðnum og tóku púlsinn á hressum grunnskóla-
nemum í atvinnuhugleiðingum.
Sjónvarp Víkurfrétta er á ÍNN í kvöld, fimmtu-
dagskvöld kl. 21:30. Þátturinn er svo endursýndur
á tveggja tíma fresti og lokasýning er því kl. 19:30
á föstudagskvöld. Þátturinn verður einnig að-
gengilegur í „HD“ á vef Víkurfrétta, vf.is.
Sjónvarp Víkurfrétta í loftið
Mögnuð norðurljós
Er bæði
nálægt lífi
og dauða
Njarðvíkingurinn Þórarinn Ingi
Ingason, Tóti, er flugstjóri á
þyrlum Landhelgisgæslunnar.
Hann er í viðtali við VF í dag.
- hálftíma þáttur frá Suðurnesjum á ÍNN í kvöld kl. 21:30
VÍKURFRÉTTAMYND: HILMAR BRAGI BÁRÐARSON