Víkurfréttir - 13.02.2014, Síða 12
fimmtudagurinn 13. febrúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR12
Formlegu samstarfi Suður-nesjavaktarinnar er nú lokið
en vaktin var sett á laggirnar í lok
árs 2010 að ósk heimamanna til
þess að að efla og styrkja samstarf
á sviði velferðarmála þvert á öll
sveitarfélögin á svæðinu. Vaktin
var hluti af starfsemi velferðar-
vaktarinnar sem starfar á vegum
velferðarráðuneytisins. Í henni
sátu fulltrúar lykilfólks í vel-
ferðarmálum á svæðinu m.a. allir
félagsmálastjórarnir, fulltrúar frá
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
Vinnumálastofnun, mennta-
stofnunum, kirkjunni, stéttar-
félögum, Sambandi sveitarfélaga
á Suðurnesjum, Sýslumann-
inum í Keflavík, Umboðsmanni
skuldara, Íbúðalánasjóði, Rauða
krossinum og velferðarráðuneyt-
inu. „Þessu samstarfi er nú lokið
en þeir sem komu að verkefninu
eru sammála um að vaktin hafi
reynst mikilvægur vettvangur til
að tengja þá fjölmörgu á Suður-
nesjum sem vinna að velferðar-
málum og tengjast því með
einum eða öðrum hætti. Sam-
starfið hefur einnig aukið þekk-
ingu og vitund þeirra sem vinna á
svæðinu um hvern annan og hver
þeirra verkefni eru,“ segir Lovísa
Lilliendahl, verkefnastjóri Suður-
nesjavaktarinnar.
Frábært starf unnið
gegn heimilisofbeldi
Meðal helstu verkefna Suður-
nesjavaktarinnar yfir starfstíma-
bilið voru áfangaskýrslurnar sem
greindu vel frá stöðunni á svæðinu,
sérstaklega hvað varðar atvinnu-
leysi, fjárhagsaðstoð, fjölda nauð-
ungarsala og fleira. „Árvekniverk-
efnið gegn heimilisofbeldi er annað
verkefni á vegum vaktarinnar sem
hefur skilað góðum árangri. Suður-
nesjavaktin stóð líka fyrir mál-
þingi fyrir fagaðila á svæðinu og
gefinn var út bæklingurinn Býrð
þú við ofbeldi sem dreift var í öll
hús á Suðurnesjum,“ segir Lovísa.
Lögreglan og félagsþjónustur á
svæðinu eigi einnig í mjög góðu
samstarfi sem hefur vakið athygli
víða um land. „Óhætt er að segja að
öllum sem til þekkja til slíkra mála
sé kunnugt um það frábæra starf
sem verið er að vinna að hérna
á Suðurnesjum gegn heimilisof-
beldi.“
Vaktin lifir áfram
í gegnum vefsíðu
Þrátt fyrir að starfi Suðurnesja-
vaktarinnar sé lokið mun vaktin
þó lifa áfram í gegnum nokkur
verkefni en hún hafði úr ákveðnu
fjármagni að spila á sl. ári til þess
að nýta til góðra verka á svæðinu.
„Fulltrúar í Suðurnesjavaktinni,
sem allir þekkja vel til þess hvernig
styðja megi betur við samfélagið,
komu með tillögur að verkefnum
sem farið var yfir og voru nokkur
verkefni valin. Meðal þeirra er
upplýsingavefurinn www.sudur-
nesjavaktin.is en hann á að veita
upplýsingar um þá grunnþjónustu
sem er í boði fyrir íbúa á Suður-
nesjum,“ segir Lovísa. Þar sé að
finna upplýsingar um þjónustu á
vegum sveitarfélaganna, upplýs-
ingar um atvinnumál, framboð á
íþrótta- og frístundastarfi, fjármál,
menntastofnanir, samgöngur og
fleira. Markmiðið með verkefninu
sé að auðvelda íbúum á svæðinu
að finna upplýsingar um allt sem
tengist því að búa á svæðinu.
„Vefurinn á einnig að henta þeim
sem eru nýfluttir á svæðið og vilja
vita hvert leita skuli eftir ákveðinni
þjónustu. Með vefnum er vonast til
þess að íbúar á svæðinu kynni sér
betur þá þjónustu sem er í boði og
verði þannig virkari íbúar í sam-
félaginu. Vefurinn er þó ekki alveg
tæmandi en við lítum á þetta sem
góða byrjun og vonandi er þetta
verkefni sem getur haldið áfram að
þróast,“ segir Lovísa.
Félagsleg einangrun rofin
Þá segir Lovísa að meðal annarra
verkefna sem styðja á við sé kort-
lagning á sérfræðiþekkingu á svæð-
inu í tengslum við foreldrafærni
en það er samstarfsverkefni félags-
þjónusta á svæðinu, fræðsluskrif-
stofa og heilbrigðisstofnunar. „Að
rjúfa félagslega einangrun kvenna
er annað verkefni sem verður í um-
sjá Hjálpræðishersins og lýtur að
því að ná saman konum á svæðinu
sem af einhverjum ástæðum búa
við félagslega einangrun. Þá fá þeir
sem vinna með börnum sem búið
hafa við heimilisofbeldi kennslu í
viðtalsmeðferð fyrir börn sem búa
við heimilisofbeldi sem ætlað er að
draga úr afleiðingum sem heimil-
isofbeldi getur haft á börn. Vina-
verkefni á vegum Fjölbrautaskóla
Suðurnesja er svo enn annað verk-
efni sem ákveðið var að styðja við
ásamt öðrum minni verkefnum.
Það er okkar von að þessi góðu
verkefni komi til með að styðja vel
við samfélagið okkar hér á Suður-
nesjum,“ segir Lovísa að lokum.
-viðtal pósturu olgabjort@vf.is
n Víðtæk áhrif og árangur Suðurnesjavaktarinnar:
SAMSTARFINU LÝKUR
MEÐ OPNUN VEFSÍÐU
Dagur elskenda
Valentínusardagurinn
byrjar í Blómavali
Orkidea
1.990 kr.
ný sending
10
TÚLÍPA
NAR
1.299 kr.
ILMVAT
NS-
PRUFA
FYLGIR
!
meðan
birgðir
endast
Rósabú
nt
1.490 kr.
Súkkula
ðihjarta
með ísl
enskri á
letrun
299 kr.
Ástareldur
999 kr
1.390