Víkurfréttir - 12.03.2015, Blaðsíða 13
13VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 12. mars 2015SAFNAHELGI Á SUÐURNESJUM DAGANA 14. -15. MARS ÓKEYPIS Á ÖLL SÖFN
Savchenko frá Úkraníu, Eduard Belsky frá Úkraníu
og Alexandr Zabavchik frá Hvíta Rússlandi.
Ljósmyndasýning á 2. hæð.
Tinna Hallsdóttir sýnir myndir frá samfélaginu og umhverfinu í Grindavík sem henni
finnst afar heillandi.
Handverksfélagið Greip
Minjagripasýning á ganginum sem
félagið hefur gert fyrir Grindavíkur-
bæ.
Framsóknarhúsið
Opið laugardag kl. 12:00-16:00
og sunnudag kl. 13:00-17:00.
Málverkasýning.
Sænski listamaðurinn Sture Berglund
frá vinabænum Piteå með sýningu
sem enginn ætti að láta fram hjá sér
fara. Hann er einn virkasti og
virtasti listamaður Svíþjóðar og kemur gagngert til Grindavíkur til
að sýna í menningarvikunni.
Bakki
við Garðsveg
Opið laugardag kl. 13:00-15:00
Bakki til sýnis.
Minja- og sögufélag Grindavíkur hefur fest kaup á hinni fornu verbúð Bakka við Garðsveg
og stendur til að koma því í upprunalegt horf.
Grindavíkurkirkja
Laugardag kl. 17:00
Formleg setning Menningarviku í Grindavíkurkirkju.
Tónlistaratriði. Afhending Menningarverðlauna Grindavíkur 2015. Eftir setninguna er
gestum boðið í FJÖLMENNINGARLEGT VEISLUHLAÐBORÐ.
Sunnudagur kl. 20:00.
Léttmessa í Grindavíkurkirkju.
Vox Felix leiðir sönginn. Þetta er hópur ungs fólks af Suðurnesjunum sem syngur fjölbreyti-
lega söngva undir stjórn Arnórs Vilbergssonar stjórnanda og organista í Keflavíkurkirkju.
Salthúsið
Stamphólsvegi 2,
laugardag kl. 21:00.
Fjölmenningar-
hátíð.
Fjölmenningarráð
kynnir Pólland,
gömlu Júgóslavíu og
Serbía, Tæland og
Filippseyjar. Full-
trúar þessar landa
kynna sögu þeirra, menningu og tónlist og í lok hverrar kynn–ingar verða fyrirspurnir.
Íþróttamiðstöðin
Austurvegur 1-3, sunnudag kl. 13:00-15:00.
Ný íþróttamiðstöð opin almenningi til sýnis. Þessi fyrsti áfangi í uppbyggingu
íþróttamiðstöðvar Grindavíkur er í raun miðstöð eða hjarta sem tengir saman íþróttahús,
sundlaug og íþróttasvæði utanhúss, þar er jafnframt ný félagsaðstaða UMFG og Kvenfélags
Grindavíkur. Allir velkomnir.
Flagghúsið
Víkurbraut 2, sunnudag kl. 13:00-16:00.
Sýning; handunnin teppi, prjónuð, hekluð og bútasaumuð.
Hópið,
fjölnota íþróttahús við Austurveg, sunnudag kl. 19:30-20:30.
Stangaveiðifélag Grindavíkur með flugukastnámskeið í fjölnota íþróttahúsinu, Hópinu.
Góðir gestir mæta og leiðbeina. Allir velkomnir.
Ekkert gjald er fyrir námskeiðið og börn og unglingar eru sérstaklega velkomin.
Kaffihúsið Bryggjan
Sunnudag kl. 21:00
Bryggjan. Jazztónleikar með TRIO NOR.
Um er að ræða þekkta djass standarda. TRIO NOR skipa þeir Ómar Einarsson á gítar
Jakob Hagerdorn-Olsen á gítar og Jón Rafnsson á bassa.
Grindavík
Kvikan,
auðlinda- og menningarhús, Hafnargötu 2,
www.grindavik.is/kvikan
Opið laugardag og sunnudag frá kl. 10:17:00.
Ókeypis aðgangur á þrjár áhugaverðar sýningar
um auðlindir í Grindavík;
Guðbergsstofu, Jarðorkusýningu og Saltfisksýningu.
Nýja íþróttamiðstöðin,
félagsaðstaða UMFG og Kvenfélagsins
við Austurveg. Til sýnis fyrir almenning
á sunnudag kl. 13-15.
Málþing um 100 ára kosningarétt kvenna.
Laugardag kl. 11:00 verður glæsileg dagskrá tileinkuð því að 100 ár
eru liðin frá því konur fengu kosningarétt. Fyrirles-
trar og tónlistaratriði.
Bókasafnið í Iðu
Ásabraut 2, www.grindavik.is/bokasafn
Opið laugardag og sunnudag kl. 10:00-16:00
Málverkasýning.
Pálmar Örn Guðmundsson kennari og frístunda-
málari með málverkasýningu. Hann dvaldi í nokkrar vikur á Kúbu í haust en þaðan kemur
innblástur hans að þessu sinni.
Verslunarmiðstöðin
Víkurbraut 62. Opið laugardag og sunnudag
kl. 13:00-17:00
Málverkasýning Helgu Kristjánsdóttur og þriggja
útlendra málara, í húsnæði gamla bókasafnsins. Þeir eru; Serhiy
Garður
Allir viðburðir í Garði opnir 13:00-17:00 laugardag og sunnudag.
Byggðasafnið
á Garðskaga.
Skagabraut 100.
Opið verður laugardag og sunnudag.
Leiðsögn verður um safnið. Sýning
á gömlum mannlífsljósmyndum úr
Garðinum, tónlist og listasýning.
Hólmsteinn og vitarnir verða opnir ef
veður leyfir.
Gallery Garðskagi.
Skagabraut 100. Opinð verður
laugardag og sunnudag.
Til sölu handverk og listmunir, tækifæriskort og fleira.
Ævintýragarðurinn.
Opið verðu í Ævintýragarðinn Urðarbraut 4, laugardag og sunnudag.
Til sýnis verða skúlptúrar stórir sem smáir eftir Helga Valdimarsson.
Sjólyst í Garði.
Hús Unu Guðmundsdóttur Gerðavegi 28 a
verður opið á Safnahelgi á Suðurnesjum þann
14. og 15. mars 2015.
Heitt verður á könnunni og meðlæti fyrir
gesti og gangandi.
Stjórnarfólk félags Hollvina Unu verður á staðnum
og segir frá stofnun félagsins, markmiðum þess og
frá lífi og starfi þessarar merku konu.
Gallery ársól.
Kothúsum. Opið verður laugardag og sunnudag
frá 10:00 – 17:00.
Sýning og sala á leðurvörum, skarti
og fallegum hlutum.
Verið öll hjartanlega velkomin í norðurljósabæinn Garð.
SAFNAHELGI Á SUÐURNESJUM DAGANA 14. -15. MARS ÓKEYPIS Á ÖLL SÖFN
Gryfjan: Sjálfsagðir hlutir
Sýningin kemur frá Hönnunarsafni Íslands og er tilgangur hennar að kynna efni og sögu
þekktra og oft klassískra hluta í hönnunarsögunni.
Bíósalur: 15/15 – Konur og myndlist
Sýning á verkum fimmtán íslenskra kvenna úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar í tilefni
þess að árið 2015 eru liðin 100 ár frá því að konur fengu
kosningarétt.
Bátasafn Gríms Karlssonar
Rúmlega 100 bátalíkön og munir tengdir sjávarút-
vegssögu Íslendinga.
Bein útsending frá súluvarpinu í Eldey alla helgina.
Bryggjuhús
Gestastofa Reykjanesjarðvangs
Ný sýning um myndun og mótun Reykjanesskagans, lífríki þar og náttúrufar. Sýningin er
í Bryggjuhúsi Duushúsa og er samstarfsverkefni Reykjanes jarðvangs og Reykjanesbæjar.
Eitt af hlutverkum Reykjanes jarðvangs er að auka þekkingu almennings á jarðminjum,
sögu og menningu svæðisins. Reykjanes jarðvangur er samstarfsverkefni sveitarfélaganna
fimm á Suðurnesjum. Í Gestastofunni verður jafnframt til húsa upplýsingaþjónusta fyrir
ferðamenn.
Þyrping verður að þorpi
Ný grunnsýning Byggðasafns Reykjanesbæjar á miðlofti í Bryggjuhúsi. Á sýningunni er
stiklað á stóru um sögu svæðisins allt frá umfjöllun um níundu aldar skála í Höfnum fram
undir miðja síðustu öld. Fjallað er um torfbyggingar, eldamennsku, verslun og viðskipti,
fiskveiðar og vinnslu, ferðalög og náttúruna. Ólík tímabil flæða saman sem og náttúra og
menning.
Sunnudag kl. 14:00. Leiðsögn sýningarstjóra.
Sigrún Ásta Jónsdóttir forstöðumaður .
Byggðasafns Reykjanesbæjar og höfundur sýningarinnar leiðir gesti í gegnum sýninguna.
Erlingsstofa – Duushús
Sýning á skúlptúrum Erlings Jónssonar.
Bókasafn Reykjanesbæjar,
Ráðhúsinu Tjarnargötu 12, opið laugardag: 11.00-17.00.
Við vekjum athygli á tveimur stórafmælum, 100 ára sögu Keflavíkurkirkju með sýningu á
munum tengdri sögunni og 100 ára sögu þingkosningaréttar íslenskra kvenna með gögnum
í eigu safnsins. Ávaxtakarfan hefur einnig fengið heim-
kynni á safninu sem prýtt er með fígúrum og munum úr
verkinu, m.a. Edduverðlaunum.
Skessan í hellinum.
Svarti hellir við smábátahöfnina í Gróf, opið laugardag og
sunnudag kl. 10:00 – 17:00. Skessa Herdísar Egilsdóttur er
flutt til Reykjanesbæjar og býður gestum og gangandi að
heimsækja sig í hellinn. Sjá skessan.is.
Rokkheimur
Rúnars Júlíussonar,
Skólavegi 12, opið laugardag og sunnudag 14:00
– 17:00. Sjá runarjul.is.
Slökkviliðssafn Íslands,
Seylubraut 1, Innri-Njarðvík
(Safnamiðstöðin Rammi).
Opið laugardag og sunnudag 13.00-17.00.
Sýning þar sem aldarlöng saga slökkviliða á Íslandi er rakin eins og hún birtist í bílum og
tækjabúnaði auk fjölda ljósmynda frá þessari sögu.
Íbúð kanans,
lífið á vellinum, Life on a Nato base, Grænásbraut 607, West Avenue á Ásbrú.
Opið laugardag og sunnudag 13.00-17.00.
Sýning um hversdagslíf bandarískra hermanna á varnarstöðinni í Keflavík.
Handverk og hönnun
Jöklaljós, Grófinni 2,
opið laugardag 13:00 – 17:00. Ævintýraland kertanna. Gallerí – vinnustofa.
Sjá joklaljos.is.
Gallerí Svarta pakkhús, Hafnargötu 2, opið laugardag og sunnudag 13:00 – 17:00.
Gler, leir, prjón, fatnaður, skrautmunir, skartgripir o.fl.
Gallerí 8, Hafnargötu 21, opið laugardag
kl 11:00 – 16:00 og sunnudag 13:00 - 16:00.
Íslensk hönnun, fatnaður, leðurvörur, skart, myndlist, gler o.fl.
Opnar vinnustofur á Vatnsnesi, Vatnsnesvegi 8, opið laugardag 13:00 – 18:00 og sunnudag
13:00 – 17:00. Bjarnveig Björnsdóttir og Halla Harðardóttir bjóða upp á myndlist, lifandi
tónlist og léttar veitingar. Ljósop, félag áhugaljósmyndara, verður með myndir sínar til sýnis
og einnig verður hægt að láta taka mynd af sér í stúdiói félagsins.
Reykjanesbær
Söfn og setur
Rokksafn Íslands
Hljómahöll, Hjallavegi 2.
Opið laugardag og sunnudag kl. 11:00 - 18:00. Sjá rokksafn.is
Rokksafn Íslands í Reykjanesbæ opnar sína fyrstu sérsýningu laugardaginn 14. mars
kl. 15:00. Listamaðurinn sem tekinn verður fyrir er stórsöngvarinn Páll Óskar Hjálmtýsson.
Sýningin ber heitið „Páll Óskar - Einkasafn poppstjörnu“ en Páll Óskar fagnar einmitt
45 ára afmæli sínu þann 16. mars.
Víkingaheimar
Víkingabraut 1. Opið laugardag og sunnudag
kl. 12:00 - 17:00. Sjá vikingaheimar.is
Fimm sýningar í húsinu.
Víkingaskipið Íslendingur er helsta að-
dráttarafl Víkingaheima. Smíðað af Gunnari
Marel Eggertssyni sem sigldi því til New York árið
2000 til að minnast ferðar Leifs Eiríkssonar til
Vesturheims þúsund árum fyrr.
Víkingar Norður-Atlantshafsins, sýning um
siglingar og landnám norrænna manna sem
unnin var í samstarfi við Smithsonian stofnunina
í Bandaríkjunum.
Landnám á Íslandi, merkar fornleifar af
Suðurnesjum. Á sýningunni má m.a. sjá gripi
úr Hafurbjarnarkumlinu og nýjustu forn-
leifarannsókninni í Vogi í Höfnum.
Örlög guðanna, sýning um norræna goðafræði.
Heimsmynd víkinganna er þarna sett fram á listi-
legan máta þar sem frásögn, myndlist og tónlist
fléttast saman á nýstárlegan hátt.
Söguslóðir. Kynning á helstu söguslóðum á
Íslandi unnin í samstarfi við Samtök um
sögutengda ferðaþjónustu.
Duushús,
menningar- og listamiðstöð
Duusgötu 2-8. Opið laugardag og sunnudag kl. 13:00 - 17:00.
6 sýningar í húsunum.
Listasafn Reykjanesbæjar
Listasalur: Til sjávar og sveita – Gunnlaugur Scheving
Samstarfsverkefni Listasafns Íslands, Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Listasafns
Árnesinga. Á þessari sýningu eru tekin fyrir verk Gunnlaugs, sem er meðal helstu
listamanna þjóðarinnar, og endurspegla verkin á sýningunni vel þá breytingu sem varð í
íslenskri myndlist á millistríðsárunum.