Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.03.2015, Qupperneq 2

Víkurfréttir - 12.03.2015, Qupperneq 2
2 fimmtudagurinn 12. mars 2015 • VÍKURFRÉTTIR Reykjanesbær óskar eftir tilboðum í grasslátt og hirðingu á opnum svæðum í bænum. Útboðin eru tvö, annars vegar fyrir grasslátt og hirðingu í Keflavíkurhverfi og hins vegar fyrir grasslátt og hirðingu í Njarðvíkurhverfi og Höfnum. Útboðsgögn fást afhent á tölvutæku formi frá og með fimmtudaginum 12. mars 2015. Áhugasamir hafi samband við Rúnar G. Valdimarsson hjá Mannviti hf. runarv@mannvit.is. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Mannvits í Reykjanesbæ, Hafnargötu 90, 230 Reykjanesbæ fimmtudaginn 26. mars kl. 11:00. Fundurinn verður  haldinn miðvikudaginn 25. mars 2015 kl. 17:00 að Tjarnargötu 12, Reykjanesbæ. Dagskrá skv. 19. gr. laga félagsins. Stjórnin. Í tilefni afmælis leikskólans verður opið hús á Holti kl.14:00-15:00 föstudaginn 13. mars. Bæjarbúar og velunnarar skólans eru velkomnir í skólann og taka þátt í leik og starfi. Myndlistasýning barna á Holti stendur yfir í verslun– inni „Hjá Fjólu“ í tilefni afmælisins. Tvennir Forskóla- tónleikar verða haldnir í Stapa, Hljómahöll, fimmtudaginn 12. mars. Fram koma Forskóli 2 ásamt Lúðrasveit og Strengjasveit skólans. Fyrri tónleikarnir hefjast kl. 17:00 með nemendum úr Akurskóla, Háaleitisskóla og Heiðarskóla. Seinni tónleikarnir hefjast kl. 18 með nemendum úr Holtaskóla, Myllubakkaskóla og Njarðvíkurskóla. TÓNLEIKAR LENGRA KOMINNA NEMENDA Tvennir tónleikar lengra kominna nemenda verða haldnir í Stapa, Hljómahöll, miðvikudaginn 18. mars og í Bergi, Hljómahöll, fimmtudaginn 19. mars. Báðir tónleikarnir hefjast kl.19:30. Fjölbreyttar og spennandi efnisskrár. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Skólastjóri GRASSLÁTTUR OG HIRÐING FASTEIGNIR REYKJA- NESBÆJAR EHF. LEIKSKÓLINN HOLT 30 ÁRA TÓNLEIKAR FORSKÓLA 2 ÚTBOÐ AÐALFUNDUR „Umsvif Isavia á Keflavíkurflug- velli eru í örri þróun með tilheyr- andi endurbótum og hagræðingu í rekstri. Breytingar hafa m.a. verið gerðar á skipulagi flugverndar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar sem miða að því að stytta boðleiðir og auka skilvirkni. Við þessar breyt- ingar lögðust af þrjú störf og bauðst viðkomandi starfsmönnum að gera samkomulag um starfslok. Isavia óskar ekki að fjalla um einstaka starfsmenn á opinberum vett- vangi en forstjóri félagsins hefur greint Ásmundi Friðrikssyni þing- manni frá umræddum skipulags- breytingum,“ segir Friðþór Eydal, fulltrúi yfirstjórnar og talsmaður Isavia, við fyrirspurn Víkurfrétta um uppsögn þriggja starfsmanna í síðustu viku. Um var að ræða fyrr- verandi yfirmenn flugvallagæslu við Keflavíkurflugvöll. Vefmiðillinn Stundin greindi frá því í vikunni að mennirnir þrír telji að um sé að ræða geðþótta- ákvörðun og þeir hafi verið óþægi- legir fyrir yfirstjórnina. Ásmundur Friðriksson sagðist í sömu um- fjöllun ætla að fylgja málinu eftir. Friðþór segir að yfir 700 fastráðnir starfsmenn séu jafnan hjá félaginu auk starfsmanna í dótturfélögum, alls 916 stöðugildi 2014. „Starfsmannavelta Isavia hefur verið að meðaltali 6,7% sl. fjögur ár sem er umtalsvert lægra hlutfall en almennt gildir á vinnumarkaðnum. Reynsla af því að færa starfsmenn neðar í skipulagi fyrirtækisins er ekki góð.“ Ekki góð reynsla af því að færa starfsmenn neðar í skipulagi AÐALFUNDUR Í SAMKAUPUM HF Stjórn Samkaupa hf. boðar hér með til aðalfundar í félaginu fyrir rekstrarárið 2014. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 18. mars kl. 15:00 á skrifstofu félagsins að Krossmóa 4a, Reykjanesbæ. Á dagskrá fundarins eru aðalfundarstörf samkvæmt 14. gr. samþykkta félagsins. Auk þess mun stjórn félagsins leggja til eina breytingu á samþykktum félagsins, um fjölgun á varamönnum í stjórn, úr tveimur í fimm. Þá verður lögð fyrir fundinn tillaga um að félagið megi eignast og eiga allt að 10% hlutafjár í félaginu í 3. ár. Stjórn Samkaupa hf. „Hérna er bara líf mitt komið. Þetta er bara eins og að hitta mig og allt mitt líf í einu grænum hvelli,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson. Einkasafn hans opnar á laugardag í Rokksafni Íslands í Hljómahöll. Við- tal við poppstjörnuna verður meðal efnis í Sjónvarpi Víkurfrétta í kvöld kl. 21:30. PALLALÍF Í HLJÓMAHÖLL Bæjarstjóri í veikindaleyfi – Elísabet og Ólafur Þór taka við verkefnum og skyldum bæjarstjóra Sigrún Árnadóttir, bæjar- stjóri í Sandgerði, er komin í tímabundið veikindaleyfi frá störfum sínum. Meirihluti bæjarráðs Sandgerðis hefur lagt það til við bæjarstjórn að við verkefnum og skyldum bæjarstjóra taki Elísabet Þórar- insdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Ólafur Þór Ólafsson forseti bæjarstjórnar í samræmi við framlagða greinar- gerð. Guðmundur Skúlason fulltrúi B-lista lagði fram eftirfarandi bókun á fundi bæjarstjórnar í vikunni sem leið: „Fulltrúum B-listans er fyrir- munað að skilja þá ákvörðun meirihlutans að ráða tíma- bundið í starf bæjarstjóra Sand- gerðisbæjar á meðan núverandi bæjarstjóri er frá vegna veik- inda. Eðlilegast væri að staðgengill bæjarstjóra með aðstoð ann- arra sviðsstjóra sinni starfinu þennan stutta tíma“. -Yfirmönnum flugvallagæslu sagt upp hjá ISAVIA

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.