Víkurfréttir - 22.01.2015, Page 2
2 fimmtudagurinn 22. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-fréttir pósturu vf@vf.is
Börn í Garði fá
farmiðakort á
500 krónur
XuBörn í Garðinum, 16 ára
og yngri, fá farmiðakort í al-
menningssamgöngur fyrir 500
krónur. Hvert farmiðakort eru
20 farmiðar, kostar kr. 2.500,
en börnin borga kr. 500 fyrir
kortið. Mismunurinn er styrkur
frá Sveitarfélaginu Garði. „Við
miðum við að hvert barn fái að
jafnaði eitt kort í mánuði, en
það getur auðvitað verið mis-
munandi allt eftir því hvað hvert
barn þarf að fara oft með strætó,
t.d. á íþróttaæfingar í Sandgerði
eða Reykjanesbæ,“ segir Magnús
Stefánsson, bæjarstjóri í Garði.
Farmiðakortin eru afgreidd í
íþróttahúsinu í Garði. Bæjar-
stjórn Sveitarfélagsins Garðs
samþykkti á dögunum að niður-
greiða almenningssamgöngur
barna og ungmenna um 80% og
var bæjarstjóra falið að útfæra
framkvæmdina.
Yngstu Vogabúum
fækkar
Xu Íbúum í Sveitarfélaginu
Vogum fjölgaði um 22 á síðasta
ári og voru þeir 1127 í árslok
2014 en höfðu verið 1105 árið
áður. Aldurssamsetning hefur
einnig breyst, sú þróun er sér-
staklega áberandi í yngsta ald-
urshópnum þar sem hefur orðið
talsverð fækkun.
Í grunnskólanum, Stóru-Voga-
skóla, eru tæplega 200 nemendur
í 10 árgöngum, svo meðaltal í ár-
gangi er um 20 nemendur. Í ár-
göngum leikskólabarna í Vogum
eru eilítið færri nemendur að
meðaltali í árgangi, eða liðlega 17
börn.
Það sem vekur hins vegar athygli
að börn á fyrsta ári voru einungis
6 talsins samkvæmt gögnum Hag-
stofunnar sem birtar voru seint á
síðasta ári.
Slæmt ástand á
stálþili í Sandgerði
– bryggjan verður ónothæf
innan 2ja til 3ja ára
XuÁstand á stálþili suðurbryggj-
unnar í Sandgerði er slæmt, tær-
ing víða mikil og stór göt. Þetta
er niðurstaða skoðunar Sigurðar
Stefánssonar kafara á þilinu.
Hann kynnti niðurstöðu sína
fyrir hafnarráði Sandgerðis-
hafnar á dögunum.
Sigurður taldi að mögulegt væri
að fara í viðgerðir sem myndu
duga í um 10 ár og ef ekkert yrði
að gert myndi bryggjan verða
ónothæf innan 2ja til 3ja ára.
Hafnarráð Sandgerðis hefur
ákveðið að fá Sigurð Áss Grétars-
son, sérfræðing frá Vegagerðinni,
á næsta fund ásamt Sigurði Stef-
ánssyni til þess að fara betur yfir
leiðir til lagfæringar á bryggjunni.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs hefur samþykkt við-
auka við fjárhagsáætlun síðasta
árs sem gerir ráð fyrir að sveitar-
félagið greiði sinn hluta í upp-
söfnuðum halla Brunavarna
Suðurnesja, BS.
Uppsafnaður halli af rekstri BS
undanfarin allnokkur ár er 132
milljónir króna og stendur sú
fjárhæð sem skuld hjá Sambandi
sveitarfélaga á Suðurnesjum, SSS.
Eigendasveitarfélög Brunavarna
Suðurnesja; Reykjanesbær, Vogar
og Garður, samþykktu að gera
skuldina við SSS upp fyrir síðustu
áramót, með sérstöku skammtíma-
láni. Hlutdeild Garðs er kr. 10,8
milljónir króna og fyrir liggur sam-
þykki bæjarstjórnar fyrir uppgjöri á
þeirri fjárhæð.
Stjórn Sambands sveitar-félaga á Suðurnesjum lýsir
áhyggjum sínum yfir því að í fjár-
lagafrumvarpi fyrir árið 2015 er
gert ráð fyrir því að Isavia greiði
700 milljónir króna arðgreiðslu
inn í ríkissjóð. Þetta segir í bókun
stjórnar SSS vegna tillagna í fjár-
lagafrumvarpi 2015.
Þá segir: Vaxandi straumur er-
lendra ferðamanna til Íslands hefur
ekki farið fram hjá neinum og sam-
kvæmt spám á sá straumur enn
eftir að vaxa á næstu árum. Hliðið
inn í Ísland er í gegnum Keflavíkur-
flugvöll enda fara rúmlega 95% af
öllum erlendum gestum í gegnum
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Isavia
verður að hafa getu til að geta
staðið að nauðsynlegri uppbygg-
ingu til að Íslendingar geti tekið á
móti þeim aukna fjölda erlendra
gesta sem eru forsenda þess vaxtar
sem er fyrirséður í íslenskri ferða-
þjónustu um allt land. Ekki má
draga úr getu Isavia til að standa
að eðlilegri fjárfestingu á á flug-
vallarsvæðinu á Suðurnesjum.
Jafnframt væri slík ákvörðun köld
kveðja til Suðurnesjamanna sem
hafa á undanförnum árum tekist á
við erfiða stöðu á vinnumarkaði og
þurfa nauðsynlega á atvinnuupp-
bygginu að halda.
Stjórn Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum telur því rétt að aðrar
leiðir verði farnar til að afla um-
ræddra 700 milljóna í ríkissjóð.
Lögreglan á Suðurnesjum hafði í vikunni sem leið afskipti af þremur einstaklingum sem
voru með fíkniefni í fórum sínum. Einn þeirra,
karlmaður um tvítugt, var að púa jónu í Nettó
þegar fregnir bárust af honum. Er lögregla mætti
á staðinn var hann kominn yfir í anddyri Lands-
bankans, ennþá að reykja jónuna. Hann var hand-
tekinn og færður á lögreglustöð. Hann var, auk
reykinganna, með kannabispoka á sér.
Þá tilkynntu tollverðir um kannabisfund á flugfar-
þega í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Magnið reyndist
vera innan við eitt gramm og var hann því sektaður
um 30 þúsund krónur fyrir fíkniefnavörslu.
Loks fannst kannabis í íbúðarhúsnæði í Njarðvík. Þar
var kannabis á borði og í skúffu í skáp sem sá er þar
dvelur framvísaði. Hann var handtekinn og færður á
lögreglustöð til skýrslutöku.
Púaði jónu í Krossmóanum
Til sjávar og sveita. Sýning á verkum Gunnlaugs Schev-
ing, í eigu Listasafns Íslands, opnar í sal Listasafnsins.
Sjálfsagðir hlutir. Sýning frá Hönnunarsafni Íslands
sem fjallar um þekkta hluti úr hönnunarsögunni, opnar
í Gryfjunni.
15/15 - Konur og myndlist. Sýning á verkum 15 kvenna
úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar, í tilefni 100 ára
afmælis kosningaréttar kvenna, opnar í Bíósal.
Allir velkomnir
Fjölskyldu- og félagssvið Reykjanesbæjar (FFR)
óskar eftir að ráða í eftirtalin störf:
1. Félagsráðgjafa til að vinna í teymi sem hefur það
verkefni og meginmarkmið að efla virkni notenda sem
eru á fjárhagsaðstoð, ásamt því að veita ráðgjöf og
stuðning við fólk sem leitar til FFR. Tímabundin ráðning
í 1 ár.
2. Félagsráðgjafa til að hafa umsjón með marghát-
tuðum stuðningsúrræðum við einstaklinga og fjölsky-
ldur ásamt annarri ráðgjöf og stuðningi við fólk sem
leitar til FFR .
Umsóknum skal skilað rafænt á vef Reykjanesbæjar,
www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf þar sem
einnig er að finna upplýsingar um hæfniskröfur.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Daníelsdóttir
forstöðumaður Ráðgjafardeildar FFR
í síma 421-6700 eða á netfangið
sigridur.danielsdottir@reykjanesbaer.is
Leitast fyrirtækið sem þú vinnur hjá við að gera
starfsmönnum sínum kleift að samræma sem best
fjölskyldu- og atvinnulíf?
Hafa starfsmenn fyrirtækisins áhuga á að tilnefna sinn
vinnustað fyrir jákvætt viðmót til fjölskyldunnar og
stuðla að því að fyrirtækið fái viðurkenningu
Reykjanesbæjar sem fjölskylduvænt fyrirtæki?
Tilnefningar er hægt að senda á
fjolskyldan@reykjanesbaer.is fyrir 1. febrúar 2015
Tónleikar og mótssetning verða
föstudaginn 23. janúar kl. 21.30
í Stapa, Hljómahöll.
Fram koma Lúðrasveit Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar,
Skólahljómsveit Austurbæjar-Reykjavík
og Skólahljómsveit Kópavogs.
Lokatónleikar landsmótsins verða sunnudaginn
25. janúar kl. 14.00 í Stapa, Hljómahöll.
Fram koma fjölbreyttir samspilshópar úr þeim
12 lúðrasveitum sem taka þátt í mótinu.
Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir
á báða tónleikana.
Skólastjóri
DUUSHÚS
OPNUN NÝRRA SÝNINGA
24. JANÚAR KL. 14:00
ATVINNA
FJÖLSKYLDU- OG FÉLAGSSVIÐ
REYKJANESBÆJAR (FFR)
FJÖLSKYLDUVÆNN
VINNUSTAÐUR
VINNUR ÞÚ Á FJÖLSKYLDUVÆNUM
VINNUSTAÐ?
TÓNLISTARSKÓLI
REYKJANESBÆJAR
LANDSMÓT SAMTAKA ÍSLENSKRA SKÓLALÚÐRA-
SVEITA - ELSTU SVEITIR - REYKJANESBÆ 23. – 25. JANÚAR
Lýsir áhyggjum af arð-
greiðslum Isavia í Ríkissjóð
Greiða 10,8 milljónir
vegna skuldahalla BS