Víkurfréttir - 22.01.2015, Side 4
4 fimmtudagurinn 22. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-fréttir pósturu vf@vf.is
Hæfingarstöðin í Reykjanesbæ mun flytja í nýtt og rúmgott
húsnæði á Ásbrú með vorinu. Hús-
næðið er að Keilisbraut 755, beint
á móti veitingastaðnum Langbest.
Um er að ræða yfir 1000 fermetra
húsnæði en Hæfingarstöðin mun
nýta um 700 fermetra og hefur for-
leigurétt að öllu húsinu. Leigutími
á húsinu er til 20 ára.
„Á árinu 2013 kom upp grunur
um sýkingu í húsnæði Hæfingar-
stöðvarinnar. Umfangsmiklar að-
gerðir í hreinsun skiluðu ekki ár-
angri, ástand húsnæðisins var orðið
slæmt í ágúst 2014. Fjölskyldu- og
félagsmálaráð Reykjanesbæjar tók
þá ákvörðun að láta notendur og
starfsmenn njóta vafans og skip-
aður var starfshópur í lok ágúst sl.
sem hafði það að markmiði að finna
skammtímalausn og í framhaldi
framtíðarlausn í húsnæðismálum,“
segir Ísak Ernir Kristinsson, for-
maður starfshóps sem var skipaður
um húsnæðismál Hæfingarstöðvar-
innar.
Starfshópinn skipa tveir fulltrúar
fjölskyldu- og félagsmálaráðs
Reykjanesbæjar, Jasmina Crnac
(A), Ísak Ernir Kristinsson (D) for-
maður starfshópsins, Guðlaugur
Helgi Sigurjónsson framkvæmda-
stjóri umhverfis- og skipulagssviðs
og Hrefna Höskuldsdóttir ráð-
gjafaþroskaþjálfi hjá fjölskyldu-
og félagsþjónustunni. Ísak segir
að margir aðrir hafi verið starfs-
hópnum til aðstoðar.
Farið var í umfangsmikla skoðun
á húsnæðiskostum og var skýrsla
starfshópsins lögð fyrir bæjarráð í
desember sl. sem samþykkti tillögu
hópsins um framtíðarhúsnæðið.
Kynning á vinnu hópsins og á nýju
framtíðarhúsnæði við Keilisbraut
755 fór fram í vikunni. Kynninguna
sóttu notendur Hæfingarstöðvar-
innar, aðstandendur þeirra og aðrir
sem eru áhugasamir um starfsem-
ina en um 60 manns sóttu fundinn.
Í samtali við Víkrufréttir sagði Ísak
að þrátt fyrir mikinn niðurskurð
ákváðu bæjaryfirvöld að gera vel í
húsnæðismálum Hæfingarstöðvar-
innar.
„Reykjanesbæjar hefur yfir að ráða
glæsilegum húsakosti fyrir grunn-
skólana, leikskóla, íþróttamann-
virki, tónlistarskóla, söfn o.s.fv.
Núna er komið að því að aðstaða
Hæfingarstöðvarinnar fari í þann
flokk.
Nýja húsnæðið verður um 700
fermetrar eða um 200 fermetrum
stærra en það húsnæði sem áður var
nýtt undir starfsemina. Möguleikar
til stækkunar eru einnig miklir og
þá er gott útisvæði en notendur
þjónustu Hæfingarstöðvarinnar
lögðu m.a. mikla áherslu á útisvæði.
Nýja húsnæðið er í umsjón Þró-
unarfélags Keflavíkurflugvallar,
Kadeco, og segir Ísak að starfs-
hópurinn hafi átt gott samstarf við
Kadeco. Á kynningarfundinum sem
haldinn var í vikunni kom fram að
nú er verið að leggja lokahönd á
teikningar og grunnvinnu en fram-
kvæmdir eru þegar hafnar. Gert er
ráð fyrir að breytingar á húsnæðinu
taki um þrjá mánuði og því gæti
starfsemi Hæfingarstöðvarinnar
hafist á nýjum stað í vor.
■■ Keilisbraut 755 tekin í þjónustu Reykjanesbæjar:
Hæfingarstöðin flytur í rúmgott húsnæði á Ásbrú
Síðhærður Maggi Kjartans í há-
hælaskóm í Keflavíkurkirkju
Laugardaginn 24. Janúar opnar í Listasafni Reykja-
nesbæjar í Duushúsum sýningin
til sjávar og sveita. Sýningin er
samstarfsverkefni Listasafns Ís-
lands, Menningarmiðstöðvar
Hornafjarðar og Listasafns Ár-
nesinga. Markmið samstarfsins
og þriggja sýninga sem söfnin
unnu saman, er að kynna ákveð-
in tímabil og stefnur í íslenskri
myndlist. Á þessari sýningu
eru tekin fyrir verk Gunnlaugs
sem er meðal helstu listamanna
þjóðarinnar og endurspegla
verkin á sýningunni vel þá breyt-
ingu sem varð í íslenskri mynd-
list á millistríðsárunum. Gunn-
laugur tilheyrir þeirri kynslóð
listamanna sem komu fram í lok
fjórða áratugarins. Þjóðernisá-
tök og efnahagskreppa beindu
listamönnum inn á nýjar brautir
þar sem landslagið var ekki
lengur aðalviðfangsefnið heldur
nánasta umhverfi og daglegt líf.
Í Listasafni Íslands er varðveitt
mikið safn verka Gunnlaugs
Scheving og verkin á sýningunni
koma öll úr safneign safnsins. Á
sýningunni eru nokkur af risa-
stórum verkum Gunnlaugs en
einnig minni verk, frumdrög og
skissur sem gefa gestum tækifæri
á að kynnast myndhugsun lista-
mannsins og vinnuferli. Gunn-
laugur skoðar í þaula hvernig
menn bera sig að vinnu, hvort
sem um ræðir sjómenn eða
bændur, hann skoðar afmarkaða
hluti en einnig hvernig mynd-
byggingin vinnur með og miðlar
hreyfingu og átökum við vinnu,
samspili manns og náttúru.
Verkin á sýningunni sýna þróun
hugmynda, vangaveltur og þrot-
lausa vinnu listamannsins þar sem
samlífi manns og náttúru er um-
fjöllunarefnið og rauði þráðurinn
í verkum Gunnlaugs. Gestum er
gefinn kostur á leik og fræðslu
með verkefnum til þess að glíma
við og hafa gaman af um leið og
töfrar Gunnlaugs Scheving birtast
okkur í myndum hans, stórum
og smáum. Sýningin stendur til
8. mars. Safnið er opið virka daga
kl. 12.00 – 17.00, helgar kl. 13.00
– 17.00. Ókeypis aðgangur. Sýn-
ingarstjóri er Björg Erlingsdóttir.
Við sama tækifæri verða opnaðar
tvær aðrar sýningar í Duushúsum
á vegum Listasafns Reykjanes-
bæjar og munu þær einnig standa
til 8. mars:
Sjálfsagðir hlutir
Sýningin Sjálfsagðir hlutir kemur
frá Hönnunarsafni Íslands og
fjallar um þekkta hluti úr hönn-
unarsögunni. Tilgangur sýningar-
innar er að kynna efni og sögu
þekktra og oft klassískra hluta í
hönnunarsögunni. Nær allt sem
við snertum hefur verið hannað á
einhvern hátt. Á sýningunni eru
sýndir nokkrir af þeim hlutum
sem við lítum á sem sjálfsagða
í daglegu lífi og efnisvali þeirra
gerð skil. Augnlinsur, tann-
stönglar, klósett og bréfaklemmur
eru dæmi um hluti sem gegna allir
á sinn hátt mikilvægu hlutverki og
hafa jafnvel sannað gildi sitt sem
„klassískir“ á þann hátt að endur-
nýjun eða endurhönnun virðist
óþörf þegar við virðum þá fyrir
okkur í dag. Sýningarstjóri er Þóra
Sigurbjörnsdóttir.
15/15 – Konur og myndlist
Sýning á verkum fimmtán ís-
lenskra kvenna úr safneign Lista-
safns Reykjanesbæjar í tilefni þess
að árið 2015 eru liðin 100 ár frá
því að konur fengu kosningarétt.
Á sýningunni má m.a. sjá olíu-
verk, tússteikningar og vatnslita-
myndir og hafa verkin komist í
eigu safnsins á síðustu fimmtán
árum. Sýningarstjóri er Valgerður
Guðmundsdóttir.
■■ Þrjár nýjar sýningar opna í listasafni Reykjanesbæjar:
Gunnlaugur Scheving til sjávar og sveita
– og tvær aðrar sýningar opna á laugardaginn.
Magnús Kjartansson tón-listarmaður fór á kostum
í tali og tónum þegar hann
sagði sögur og söng á fyrsta af-
mæliskvöldi Keflavíkurkirkju sl.
fimmtudag í tilefni aldarafmælis
hennar. Fjöldi bæjarbúa mætti
til að hlýða á kappann sem fór á
kostum í upprifjun á fólki og fjöri
í nágrenni kirkjunnar, en Magnús
ólst upp í götunni sem liggur
bakvið hana, Kirkjuteig. Hann
sagði frá síðu bítlahári og háhæl-
uðum skóm fermingardrengja í
bítlabænum. Sönghópur Suður-
nesja, sem er orðinn alvöru kór,
var Magnúsi til aðstoðar og söng
með honum í lögunum. Magnús
flutti nokkrar af perlum sínum
úr tónlistarsögunni og það kunnu
kirkjugestir vel að meta.
Næst á dagskránni í afmælishaldi
Keflavíkurkirkju er hátíðarmessa
15. febrúar en vegleg dagskrá
verður allt afmælisárið.
Magnús fór á kostum í Keflavíkurkirkju og rifjaði upp sögur frá æsku sinni í
nágrenni kirkjunnar.
Frá kynningarfundi um framtíðaraðsetur
Hæfingarstöðvarinnar í Reykjanesbæ.
Húsnæðið að Keilisbraut 755, þar
sem Hæfingarstöðin verður.
NÝ OG GLÆSILEG
AÐSTAÐA FYRIR
LÍKAMSRÆKT Í GARÐI
Þann 26. janúar 2015 verður opnuð ný og glæsileg aðstaða
til líkamsræktar í Íþróttamiðstöðinni í Garði, með nýjustu
tækjalínu frá TechnoGym sem býður upp á marga nýja og
spennandi möguleika.
Vikan 26. – 31. janúar verður kynningarvika, frítt í alla
hóptíma óháð því hvort viðkomandi á kort eða ekki.
10% afsláttur verður veittur af kortum í líkamsrækt og gildir
það til 31. janúar. Þessi afsláttur gildir ekki með öðrum afslætti
sem í boði er. Boðið er upp á greiðsludreifingu á visa/euro
kortum.
Föstudaginn 23. janúar milli kl. 17:00 og 20:00 verður
opið hús í Íþróttamiðstöðinni, þar sem hin nýja aðstaða til
líkamsræktar verður til sýnis. Garðbúar eru hvattir til þess að
koma í Íþróttamiðstöðina þann dag og kynna sér aðstöðuna
og það sem verður í boði.