Víkurfréttir - 22.01.2015, Qupperneq 8
8 fimmtudagurinn 22. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR
„Ég vil búa hér og mun flytja
hingað. Ég er ánægður þar sem
ég er og get unnið. Ég er búinn að
sjá út hvar ég vil helst vera en ætla
ekkert að tjá mig nánar um það
strax,“ segir Ólafur Helgi kíminn
og bætir við að Reykjanesbær sé
ágætur í heild sinni en stundum
mætti umræðan vera á jákvæðari
nótum. „Mannlegri tilveru fylgja
alltaf vandamál, þau hafa sést af-
skaplega vel í þeim störfum sem
ég hef unnið.“ Ólafur Helgi tók
t.a.m. fyrir 144 skilnaðarmál sem
fulltrúi sýslumanns á sex árum.
Þegar hann var skattstjóri vestur
á fjörðum var hann með nefið
nánast inni á hvers manns heim-
ili. Einnig var hann sýslumaður á
þeim tíma sem snjóflóðin dundu
yfir sem kostuðu Ísafjarðarsýslu
35 mannslíf á 18 mánuðum.
„Menn þurfa alltaf að vera vak-
andi fyrir því sem gerist og hérna
á Suðurnesjum er áherslan á um-
ferðaröryggi en góður árangur
hefur náðst í þeim málum hér.
Þrátt fyrir að umferðin sé orðin
meiri en fyrir nokkrum árum
hafa ekki verið jafn fá banaslys í
umferðinni í áratugi.“
Samstarfsverkefni gegn
heimilisofbeldi heldur áfram
Komið hefur fram að Miðnesheiði
er mannskæðasta heiði á landinu
og Ólafur Helgi segir að því miður
hafi það sýnt sig þennan stutta tíma
sem hann hefur verið í starfi að sú
heiði sé mannskæð og því þurfi
að hafa vakandi auga fyrir þeim
ógnum sem sé að finna í umhverf-
inu. „Það skiptir líka máli að við
séum undir það búin að bregðast
við og ekki síst hvernig hægt er að
minnka áhættuna.“ Ólafur Helgi
hefur haft mikinn áhuga á al-
mannavörnum alla tíð og var t.a.m.
formaður Blóðgjafafélags Íslands
í 10 ár og 12 ár í stjórn þess. „Ég
er sérstaklega hrifinn því hugtaki
að vera fornæmur - að nema það
sem gerist á undan.“ Í því sam-
hengi er Ólafur Helgi spurður um
samstarfsverkefni lögreglu og fé-
lagsmálayfirvalda á Suðurnesjum
um heimilisofbeldi. „Að sjálfsögðu
heldur forvarnaverkefnið áfram
og þessi hugsun er að breiðast út,
eins og fram hefur komið á höfuð-
borgarsvæðinu. Ég á von á því að
fá einhverja af mínum gömlu fé-
lögum hingað í heimsókn fjótlega
til þess að kynna þeim þennan þátt.
Það er alltaf hægt að læra eitthvað
nýtt.“
Ráðin tekin af fórnarlömbum
Í Colorado í Bandaríkjunum, þar
sem Ólafur Helgi heimsótti lög-
regluna í Denver fyrir tveimur ára-
tugum, var löggjöfin svo hörð að
ef lögregla hafði grun um heimil-
isofbeldi þá bar henni leggja fram
kæru óháð því hvort fórnarlambið
hefði hug á að leggja fram kæru.
Fórnarlamb gat heldur ekki dregið
kæru sína til baka. „Þar eru ráðin
einfaldlega tekin af fórnarlömbum
og kerfi byggt upp í kring með sam-
virkni félagsþjónustu, heilbrigðis-
þjónustu og lögreglu og síðan er
reynt að virkja almenning til að
benda á ef eitthvað fer úrskeiðis,“
segir Ólafur Helgi, því stundum viti
fólk um miklu fleiri tilvik en hægt
sé að taka á. „Menn skulu ekki eiga
von á að þetta breytist hér, starfinu
verður fylgt áfram. Það ber minna
á því þegar karlmenn vilja sinna
þessum málaflokki heldur en kon-
ur og það er alltaf sorgarsaga að
baki hverju máli, sérstaklega varð-
andi börn. Heimilisofbeldismál er
þessu földu afbrot í samfélaginu en
það þarf hugarfarsbreytingu, ekki
bara hjá þeim sem vinna að þessum
málum, heldur almenningi.“
Væri þægilegra í einu húsnæði
Varðandi einhverjar áherslubreyt-
ingar í starfi segist Ólafur Helgi
leggja fyrst og fremst leggja áherslu
á að liðið sé ein heild og starfi vel
saman. „Mér sýnist það vera ein-
faldlega þannig þó að alltaf sé hægt
að gera eitthvað til góðs. „Það væri
þægilegra ef við gætum verið í einu
húsnæði en það er líklega langur
vegur í það. Samvinna allra skiptir
líka miklu máli í þessu starfi og það
tekur tíma að venjast nýju fólki, líka
í brúnni.“ Spurður um hvaða eigin-
leika góðir yfirmenn þurfi að bera
segir Ólafur Helgi þá þurfa að geta
tekið ákvarðanir, leyst úr ágrein-
ingsmálum og laðað menn til sam-
starfs. Þegar blaðamaður mætti á
skrifstofu embættis lögreglustjóra
höfðu margir samstarfsmenn hans
orð á því hversu þægilegur og
skemmtilegur yfirmaður Ólafur
Helgi væri. Hann segir að honum
þyki vænt um að heyra það og að
hafa einnig heyrt slíka um sögn frá
fyrri vinnustöðum. „Ég vil ná sem
mestum krafti úr þeim mannafla
sem við höfum og úr því fé sem
við höfum til ráðstöfunar. Í svona
störfum verja menn oft lengri tíma
með samstarfsfólki en fjölskyldu og
þess vegna skiptir svo miklu máli
að vera almennileg hvert við annað
og geta skipst á skoðunum. Gagn-
rýni er ekki útásetningur,“ segir
Ólafur Helgi og leggur áherslu á
að samstarfsfólk sem hann hefur
hitt hafi verið afskaplega elskulegt,
þægilegt og umburðarlynt í sinn
garð.
Tók forystuna sem barn
Ólafur Helgi fæddist í Reykjavík
árið 1953 og segist hafa notið full-
komins frelsins sem barn, bæði hjá
foreldrum og afa og ömmu. „Ég
lærði að fást við ýmsar aðstæður
í umhverfinu sem ég ætti erfitt
með að horfa upp á afkomendur
mína gera eða börn í dag. Ég lærði
einfaldlega að koma mér út úr
þeim með þessu brölti. Sennilega
hef ég verið sá sem tók forystuna
í hópnum sem strákur.“ Spurður
segir hann aldrei hafa hvarflað að
sér sem barni að enda í þessu starfi.
„Ég hafði áhuga á því að verða
prestur. Sennilega vegna þess að
þegar maður fór í messu var það
presturinn sem stýrði og hafði eitt-
hvað til málanna að leggja og lagði
út af einu og öðru. Ég var þannig
gerður að ef ég vildi ná einhverju
vildi ég fá aðra með mér til þess.“
Hefur gift 300 manns
Á Selfossi var Ólafur Helgi þriðji
sýslumaðurinn á 77 árum, í tæp
þrettán ár, fyrir utan að hafa starfað
hjá báðum fyrirrennurum sín-
um. Spurður um muninn á fyrri
störfum og starfi lögreglustjóra
segir Ólafur Helgi hann m.a. liggja
í því að hann komi úr starfi þar
sem hann var bæði sýslumaður og
fór með lögreglustjórn. „Þar var
ég með alls kyns stjórnsýsluverk-
efni eins og nauðungarsölur og
skilnaðarmál og einnig hef ég gift
300 manns um ævina. Það er eitt
af því ljúfasta sem ég geri í starfi
mínu. Þá eru allir svo ánægðir
þegar þar gerist og forréttindi að fá
að taka þátt í slíku hjá fólki.“ Þegar
best lét var Ólafur Helgi mest með
51 starfsmann á Selfossi, þar af 28 í
lögreglunni. „Hér eru starfsmenn-
irnir yfir 100 og umdæmið minna í
ferkílómetrum talið. En það er líka
miklu stærra er varðar umsvifin.
Hér búa fleiri en í Árnessýslu en
þar eru 7000 sumarbústaðir og Ár-
nessýsla því stærsta „borgin“ um
helgar og á sumrin, utan Reykja-
víkur.“ Þá sé áherslan hér mikið til
á landamæragæslu og flugvöllinn.
„Farþegar sem komu til landsins
í fyrra í gegnum flugstöðina voru
um 970 þúsund. Reyndar má segja
að flestir ferðamenn sem koma hér
í gegn og inn í landið endi í Ár-
nessýslu sem hluta af gullna þrí-
hyrningnum. Það má því segja að
ég sé kominn nær upprunanum,“
segir Ólafur Helgi.
Rolling Stones og Útsvar
Það er ekki hægt að sleppa Ólafi
Helga nema spyrja hann út í tvennt
sem hann er hvað þekktastur fyrir;
að hafa, sem líklega mesti aðdáandi
hljómsveitarinnar Rolling Stones á
Íslandi, hitt söngvarann Mick Jag-
ger og vera keppandi í spurninga-
þættinum Útsvari. Ólafur Helgi
segir það hafa verið ótrúlega upp-
lifun að hitta goðið fyrir algjöra
tilviljun á Ísafirði. Sá dagur hefði
verið einn sá allra minnistæðasti í
sínu lífi. Spurður segist hann svo
ekki hafa verið beðinn um að vera
í Útsvars-liði á Suðurnesjum. „Það
voru eiginlega einu fyrirmælin
sem ég fékk frá framkvæmdastjóra
sveitarfélagsins Árborgar þegar ég
fór hingað: Þú ferð ekki í Útsvars-
liðið! Svo er aldrei að vita hvað mér
dettur í hug,“ segir Ólafur Helgi
og hlær.
-viðtal pósturu olgabjort@vf.is
■■ Lögreglustjórinn á Suðurnesjum og kann vel við sig á nýjum stað:
„Þú ferð ekki í Útsvars-liðið“
Samvinna
allra skiptir
líka miklu máli í þessu
starfi og það tekur
tíma að venjast nýju
fólki, líka í brúnni
Ólafur Helgi Kjartansson tók við embætti lögreglustjóra á Suður-
nesjum síðastliðið haust. Áður starfaði hann sem sýslumaður á Sel-
fossi, einn þriggja á 77 árum. Ólafur Helgi kann mjög vel við sig á Suður-
nesjum og vill flytja til Reykjanesbæjar en bíður eftir því að geta selt
hús sitt á Selfossi. Blaðamaður Víkurfrétta hitti Ólaf Helga og spurði út í
áherslur í starfinu, samstarfsfólkið og hvaða eiginleika góður yfirmaður
þarf að búa yfir.
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
4
48
93
svooogott™
WWW.KFC.IS
Blazin’ Boxmaster,
3 Hot Wings, franskar
gos og Lakkrísdúndur
Zinger kjúklingabringa,
brakandi beikon, ostur, kál,
kartöfluskífa, bragðmikið
salsa, toppað með sjóð-
heitri chipotle-sósu.
Fáðu þér
boxmáltíð:
1.849kr.
Blazin’ Boxmaster:
1.079kr.
Mættur
aftur!
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
4
47
71