Víkurfréttir - 22.01.2015, Page 13
13VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 22. janúar 2015
-mannlíf pósturu vf@vf.is
Um sexhundruð og fimmtíu manns þjófstörtuðu þorra þegar Keflvíkingar efnu til mikils blóts í TM-höllinni, Íþróttahúsi Keflavíkur sl. laugardag. Þorrablótið heppnaðist vel enda vegleg dagskrá með
stórstjörnum úr heimi söngvara og hljómsveita. Keflavíkurannáll var frumsýndur á risaskjám og fengu þar
ýmsir á baukinn.
Ingó og veðurguðirnir léku fyrir dansi og kappinn stjórnaði „brekkusöng“ við góðar undirtektir gesta. Með-
fylgjandi myndir voru teknar á þorrablótinu. Á vef okkar, vf.is, er að finna annálinn, yfir 200 ljósmyndir og svo
verður helmingur sjónvarpsþáttar okkar með efni frá þorrablótinu.
Skemmtilegt þjófstart
Keflvíkinga á þorra