Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.01.2015, Qupperneq 16

Víkurfréttir - 22.01.2015, Qupperneq 16
16 fimmtudagurinn 22. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR -aðsent pósturu vf@vf.is Þótt innan við ár s é s í ðan nýtt hjúkrunar- heimili var tekið í notkun í Reykja- nesbæ eru yfir 50 manns á biðlista eftir plássi sam- k v æ m t m í n u m upplýsingum. Eftir því sem ég best veit fær enginn að fara á biðlista nema vistunarmat gefi tilefni til þess. Einnig er rétt að hafa í huga að á unanförnum árum hefur þröskuldurinn til að komast inn á hjúkrunarheimili hækkað sem þýðir að fólk þarf að vera heilsuveilla en áður til að komast inn. Biðlistinn hefur lengst. Það er samfélagslegur ábygðarhluti að slaka á í þessum efnum því það getur komið illilega í bakið á okkur síðar. Tökum dæmi um hjón þar sem annar aðilinn er í brýnni þörf fyrir hjúkrunarrými en þraukar heima vegna þess að frískari maki sinnir flestum þörfum auk þeirrar heimaþjónustu sem í boði er. Það er raunveruleg hætta á því að hinn frískari missi heilsuna mun fyrr en ella þyrfti sem þýðir að biðlistinn lengist enn frekar og hraðar en annars væri. Öldungaráð hefur ný- lega tekið til starfa á Suðurnesjum. Það er málefnalegur hópur fullur af reynslu og þekkingu á málefnum aldraðra og sveitafélögum til ráð- gjafar. Ég skora á sveitafélögin að gefa þessum málaflokki enn frekari gaum og taka mark á sjónarmiðum þeirra sem best þekkja til í mála- flokknum. Það er tilvalið á fyrri hluta þessa árs að boða til opins fundar um hjúkunarheimilisþjón- ustu á Suðurnesjum, leggja mat á hvað hefur áunnist, leggja mat á hina nýju stefnu sem tekin hefur verið, leggja mat á hver þörfin er og leita leiða til að sjá til lands þannig að unnt verði að útrýma biðlistum. Aldraðir eru hvorki hávær þrýsti- hópur né frekur. Aldraðir fara ekki í verkfall. En við hin yngri eigum að vera þrýstihópur fyrir þeirra hönd. Kjörnir fulltrúar eiga að ganga hreint til verks og þeir hljóta að sjá að málið þolir enga bið. Þetta mál kemur öllum til góða, fyrr eða síðar því flest náum við því að verða öldruð. Sigurður Grétar Sigurðsson, sóknarprestur Útskálaprestakalli Isavia er í 100% eigu íslenska ríkisins. Alþingi kýs stjórn þess. Kjararáð ákvarðar laun forstjórans. Eng in inn k aup nema í gegnum R í k i s k a u p o g fyrirtækið er þess heiðurs aðnjót- andi að færa eiganda sínum 700 milljón króna arð á þessu ári af hagnaði sínum árið 2014. Isavia er skilgreint sem opinbert hlutafélag, ohf. Það var snildarráð einhvers lög- fræðings í þjónustu ríkisins á ofan- verðri síðustu öld að koma ríkis- fyrirtækjum fram hjá starfsmanna- lögum ríkisins með því að skeyta þessu O-i fyrir framan hf-ið Þar með gátu þessi ríkisfyrirtæki eins og Rarik, Matís og Isavia nefnilega skilgreint sig sem fyrirtæki á al- mennum markaði og komist fram hjá því að uppfylla skyldur sínar gagnvart starfsmönnum, sem þó, svona rétt á meðan að þessi um- skipti áttu sér stað, var lofað öllu fögru hvað varðar gömlu réttindin. En það er önnur saga. Isavia er stórfyrirtæki á íslenskan mælikvarða, með yfir 800 starfs- menn sem ýmist starfa hjá móður- fyrirtækinu eða dótturfélögum þess. Lang stærsti hluti starfsem- innar fer fram á Keflavíkurflugvelli. Um 320 starfsmenn Isavia eru fé- lagsmenn í Félagi flugmálastarfs- manna ríkisins. FFR, sem er nærri 70 ára gamalt stéttarfélag og hefur enn ekki talið þörf á að uppfæra heiti sitt. Kennir sig enn við ríkið. Félagið var stofnað í tengslum við flugvallarstarfsemi ríkisins á sínum tíma og enn rekur ríkið flugvelli landsins þrátt fyrir nafnabreytingar og kennitöluflakk síðustu áratuga. FFR ásamt SFR - Stéttarfélagi í al- mannaþjónustu og Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutninga- manna stóð í hörðum deilum um kaup og kjör félagsmanna sinna sem starfa hjá Isavia fyrri hluta árs 2014. Samningar tókust eftir þrjár verkfallslotur í apríl s.l. Skrifað var undir kjarasamning 29. apríl 2014 til þriggja ára. Sá kjarasamningur tekur til allra al- mennra starfa á flugvöllum lands- ins s.s. viðbragðs- og slökkviþjón- ustu, öryggisgæslu, flugstjórnar- miðstöðinni, viðhald húsnæðis og flugbrauta, almennra skrifstofu- starfa o.fl. Frá upphafi þess að farið var að aka með flugfarþega í rútum frá flugstöð að flugvélum hafa fé- lagsmenn ofangreindra stéttar- félgafélaga starfað við það samhliða öðrum störfum á flugvellinum. Hafa félögin og Isavia ohf. samið sérstaklega um laun fyrir þessa starfsemi. Nú bregður svo við að ríkisfyri- tækið Isavia hyggur á breytingar á rútuakstri á Keflavíkurflugvelli og nú á að stofna sérstaka deild utan um þann rekstur. Ráða á sér- staka starfsmenn í rútubíladeildina en samhliða akstri rútubíla eiga starfsmenn að sinna garðslætti og almennum þrifum kringum Flug- stöðina. Fjölgun starfa á Suðurnesjum er ætíð gleðiefni, sérstaklega fjölgun starfa á meðal þeirra sem best eru launuð á flugvellinum. Er sú launa- hækkun ávöxtur elju starfsmanna og stéttarfélaga þeirra við að gæta hagsmuna sinna félagsmanna. Mér þætti ótrúlegt ef einhver nú- verandi starfsmanna Isavia eða fé- lagsmaður í áðurnefndum stéttar- félögum sækti um í þessari nýju deild eftir að ríkishlutafélagið hefur ákveðið að lækka laun fyrir þau störf frá því sem nú er. Til að komast hjá því að greiða væntanlegum starfsmönnum eftir nýgerðum kjarasamningi FFR/ SFR og LSS við Samtök atvinnulífs- ins grefur Isavia ofan í glatkistur gamalla kjarasamninga og finnur samning sem einhvern tíma var gerður á milli SA og ASÍ og tekur til rútuaksturs einhvers staðar og gefur ríkisfyrirtækinu færi á að greiða umtalsvert lægri laun fyrir sömu vinnu og unnin hefur verið um árabil. Undraorðið er að stofna nýja deild um rútuakstur, ráða nýtt fólk inn á nýjum samningi. Tilgangurinn: Að græða nokkrar krónur. Skítt með starfsmannaveltuna! Manni koma í hug ljóðlínur Hannesar Hafsteins í þessu samhengi: „Alltaf má fá annað skip og annað föruneyti”. Vafalaust löglegt en í hæsta máta siðlaust, svo ekki sé meira sagt, smekklaust af ríkinu að fara fram með þessum hætti við að efla at- vinnustarfsemi á landsvæði sem þolað hefur mátt samdrátt í at- vinnu í áraraðir. Það, að ganga fram hjá starfs- mönnum og stéttarfélögum þeirra í von um sparnað upp á nokkrar krónur er ekki nokkru fyrirtæki sæmandi. Ég geri þá kröfu til alþingismanna sem kjósa þessu ríkisfyrirtæki stjórn, svo ekki sé talað um hand- hafa eina hluthafabréfisins, fjár- málaráðherra, að krefjast þess af stjórn Isavia ohf. að láta af slíkum græðgishugsjónum sem bitna ein- ungis á starfsmönnum og afkomu þeirra. Hér mætti rifja upp ummæli fyrr- verandi forsætisráðherra og for- manns Sjálfstæðisflokksins, sem sagði við annað tækifæri „Svona gera menn ekki”! Reyndar er full ástæða fyrir al- þingismenn að endurskoða laga- klausu um opinber hlutafélög og spyrja: Er einhver almennilegur til- gangur með OHF annar en að geta farið sínu fram gagnvart starfs- mönnum? Kristján Jóhannsson Formaður Félags flugmála- starfsmanna ríkisins ■■ Sigurður Grétar Sigurðsson, sóknarprestur Útskálaprestakalli skrifar: Hjúkrunarrýmum þarf að fjölga ■■ Kristján Jóhannsson, formaður Félags flugmálastarfsmanna ríkisins: Isavia býr til ný láglaunastörf á Suðurnesjum! Samkvæmt 40. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynnt eftirfarandi deiliskipulagsverkefni. 1. Lýsing deiliskipulags á Reykjanesi og nágrenni Lögð fram til kynningar lýsing skipulagsverkefnis vegna deiliskipulags Reykjaness og nágrennis á svæði sem í gildandi aðalskipulagi er merkt opið svæði til sérnota (E og Z). Helstu markmið deiliskipulagsins er að bæta aðstöðu fyrir ferðamenn og bjóða upp á þjónustu innan svæðisins. 2. Breyting á deiliskipulagi Grófin-Berg Breyting felst í sameiningu lóðanna Bakkavegur 17 og 19 og stækkun Hótels Bergs inn á lóð nr. 19. Tillögur deiliskipulags Grófin-Berg ásamt fylgigögnum verða til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 frá og með 22. janúar til 5. mars 2015, en lýsing deiliskipulags á Reykjanesi til 11. febrúar. Tillögurnar eru einnig aðgengilegar á heimasíðu Reykjanesbæjar,www.reykjanesbaer.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 5. mars 2015. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrif- stofu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanes- bæ. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni. Reykjanesbæ, 21. janúar 2015 Skipulagsfulltrúi AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Í REYKJANESBÆ Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001 Víkurfréttir koma næst út miðvikudaginn 28. maí. Síðasta blað fyrir sveitarstjórnarkosningar. Ágústa Þórey Haraldsdóttir, Rakel K. Svanholt Níelsdóttir, Þorvaldur Kristleifsson, Helga Níelsdóttir, Valborg F. Svanholt Níelsdóttir, börn og barnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Níels Pétur Bergþór Svanholt Björgvinsson, Frá Krossavík í Þistilfirði, Brekkustíg 16, Sandgerði, lést á hjúkrunarheimilinu Nesvöllum Reykjanesbæ, miðvikudaginn 15. janúar. Útför Níelsar fer fram í safnaðarheimilinu í Sandgerði, mánudaginn 26. janúar, kl. 13:00. Edith María Óladóttir, Anna María Pétursdóttir, Sámal Jákup, Jón Pétursson, Guðbjörg Pétursdóttir, Guðlaugur Helgi Guðlaugsson, Pétur Óli Pétursson, Lilja Valþórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður, faðir, tendafaðir, afi og langafi,   Pétur Guðbjörn Sæmundsson, Vallarbraut 6, Reykjanesbæ,   Lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðjudaginn 20. janúar.  Útför hans fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 29. janúar, kl. 13:00.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.