Víkurfréttir - 22.01.2015, Qupperneq 19
19VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 22. janúar 2015
■ Umsóknir óskast fylltar út á
www.icelandair.is/umsokn eigi síðar en 30. janúar 2015.t
■ Umsækjendur þurfa að geta hað störf í maí og geta sótt 8 daga námskeið áður en þeir hea störf.
SUMARSTÖRF VIÐ ÖRYGGISVÖRSLU
Í TÆKNIDEILD ICELANDAIR
Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI
HELSTU VERKEFNI:
■ Í starnu felst meðal annars
vopna- og öryggisleit, eftirlit
og önnur verkefni
HÆFNISKRÖFUR:
■ Aldurstakmark 20 ár
■ Hafa gott vald á íslenskri
og enskri tungu.
■ Almenn tölvukunnátta
Nánari upplýsingar veita:
Sævar Þorkell, netfang saevarj@its.is
Steinunn Una, netfang: unasig@icelandair.is
Við leitum að þjónustulunduðum, glaðlyndum, snyrtilegum og reyklausum
einstaklingum sem hafa góða samskiptahæleika og þægilega framkomu.
Óskað er eftir starfsfólki í vaktavinnu, annars vegar dag-
og næturvaktir og hins vegar eingöngu næturvaktir á vaktaker 5-5-4.
KOMDU TIL LIÐS
VIÐ OKKUR
Elías átti frábæra innkomu gegn Kanada
XX Íslendingar gerðu 1-1 jafntefli við Kanada í vináttuleik í knattspyrnu
sem fram fór á Flórída. Þar lék Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson
með liðinu í seinni hálfleik. Elías átti lipra spretti á hægri kantinum og
var einn af líflegri leikmönnum liðsins. Hinn 19 ára gamli sóknarmaður
lék í ferðinni sína fyrstu tvo leiki með A-landsliði Íslands og stóð sig
með mikilli prýði í þeim báðum. „Þetta var ótrúlega góð og skemmtileg
reynsla sem hefur gefið mér aukið sjálfstraust,“ sagði Elías. Hann fékk
góð viðbrögð frá þjálfurum liðsins sem hann bar góða söguna.
Nýtt Íslandsmet hjá Sindra
Arnar Helgi í þriðja sæti á Íslandsmótinu í bekkpressu
XXKraftlyftingamaðurinn Sindri Freyr Arnarson frá Njarðvík, bætti
enn einu Íslandsmetinu í safn sitt um helgina þegar Íslandsmótið í
bekkpressu fór fram. Sindri, sem er 22 ára, keppir í -74 kg flokki fyrir
Massa, en hann gerði sér lítið fyrir og lyfti 170 kg í bekknum og landaði
Íslandsmeistaratitli.
Annar Massa-maður, Keflvíkingurinn Arnar Helgi Lárusson, náði einn-
ig góðum árangri á Íslandsmótinu sem haldið var samhliða Reykjavík
International Games. Arnar náði sínum besta árangri þegar hann lyfti 140
kg sem dugðu honum í þriðja sæti í sama flokki og Sindri. Arnar er aug-
ljóslega fjölhæfur íþróttamaður, en hann er betur þekktur fyrir afrek sín í
hjólastólaralli, þar hefur hann m.a. nælt sér í bronsverðlaun á Evrópumóti.
Ástrós og Ágúst best á Reykjavík
International Games
XXÞau Ástrós Brynjarsdóttir og Ágúst Kristinn Eðvarðsson, bæði úr
Keflavík, voru valin bestu kven- og karlkeppandi á Reykjavík Internatio-
nal Games um helgina og Ágúst Kristinn var einnig valinn besti kepp-
andi mótsins í heild. Þau eru bæði tvöfaldir Norðurlandameistarar og
stefna á að verja titilinn á Norðurlandamótinu sem verður í Þrándheimi
í Noregi eftir tvær vikur.
Suðurnesjaslagur í bikarúrslitum?
XX Í vikunni var dregið í undanúrslit Powerade-bikars karla og kvenna
í körfubolta. Möguleiki er á hreinum Suðurnesjaúrslitaleik í kvenna-
flokki, en þrjú lið af svæðinu voru í pottinum. Topplið Domino's
deildarinnar, Keflavík og Sæfell, leika í öðrum leiknum, en Grindavík
og Njarðvík í hinum. Keflvíkingar leika á heimavelli gegn toppliðinu á
meðan Grindvíkingar taka á móti 1. deildar liði Njarðvíkur í Röstinni.
Leikið verður dagana 1. og 2. febrúar.
Ray mun líklega leika á Filippseyjum
XXGrindvíkingurinn Ray Anthony Jónsson hefur undanfarið æft með
liði Global FC í Filippseyjum og eru allar líkur eru á að hann geri
sex mánaða samning við félagið á næstu dögum. Global hefur orðið
meistari á Filippseyjum undanfarin tvö ár en liðið mun þar af leiðandi
taka þátt í Asíukeppni félagsliða í sumar.
„Eigandi klúbbsins hafði samband um hvort ég væri til í að koma hingað og
prófa í nokkra mánuði fyrst ég væri orðinn samningslaus. Ég var reyndar
búinn að lofa honum að prófa að spila hérna úti einhvern tímann fyrir
nokkrum árum síðan,“ sagði Ray í samtali við Fótbolta.net.
Ray, sem er 35 ára, á 31 landsleik að baki með landsliði Filippseyja frá árinu
2010, en móðir hans er þaðan. Undanfarin tvö ár hefur Ray leikið með Kefl-
víkingum en áður lék hann með Grindvíkingum.
Samkvæmt lögum er hunda-
eigendum skylt að láta hreinsa hunda
sína af bandormum einu sinni á ári.
Ormahreinsunin skal framkvæmd af
dýralækni og skal staðfesting þess efnis
send til Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.
Frekari upplýsingar veitir Stefán B.
Ólafsson (stefan@hes.is) eftirlitsmaður
hjá HES
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja
ORÐSENDING TIL HUNDAEIGENDA
Á SUÐURNESJUM
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja // Skógarbraut 945 // 235 Reykjanesbæ // Sími 420 3288
SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA á ÍNN fimmtudagskvöld kl. 21:30
Lífið á Suðurnesjum í dag!
Viltu auglýsa í Sjónvarpi Víkurfrétta? Nánari upplýsingar gefur Páll Ketilsson á pket@vf.is
Háskólabrú Keilis, þorrablót Keflavíkur og tónlist í Keflavíkurkirkju