Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.01.2015, Qupperneq 20

Víkurfréttir - 22.01.2015, Qupperneq 20
vf.is -mundi Menn æla og væla á Hafnargötunni... FIMMTUDAGINN 22. JANÚAR • 3. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR VIKAN Á VEFNUM Anna María Sveinsdóttir Skvísurnar á leið á blótið #mafia Anna Lóa Ólafsdóttir Note to self: mundu að það þýðir ekki endilega að þú sért búin að missa vinsældir eða allan kynþokka þrátt fyrir að einu sms-in sem þú færð þessa dagana eru frá N1 og At- landsolíu. Þýðir einfaldlega að olíu-markaðurinn er að taka breytingum og það er svigrúm til lækkana! Einar Skaftason Lokatölur eru 29,1 kg sem eru farinn af karli og er þyngd kappans í dag 102,8 kg og ekki langt í tveggja stafa tölu en gott fólk sú tala kemur mjög fljótlega...... — feeling blissful. Ragnheiður Elín Árnadóttir Veislustjóraselfie dagsins...og við hin! — with Árni Sigfús- son and 3 others. Valdimar Guðmundsson Jæja, varðandi stóra Paddy´s málið. Þessi staður hefur náttúrulega mikið tilfinninga- legt gildi fyrir okkur í bandinu því hann var sá fyrsti sem gaf okkur séns. Svo hefur maður sjálfur farið á ótal marga góða tónleika á þessum stað og það væri leiðinlegt ef svona menn- ingarmiðstöð myndi þurfa að víkja. Það er nú ekki lengra síðan en árið 2010 sem staðurinn fékk menningarverðlaun Reykja- nesbæjar, Súluna, fyrir "eflingu tónlistarlífs í Reykjanesbæ með því að skapa ungu tón- listarfólki tækifæri til flutnings tónlistar", svona stöðum á ekki að loka. Ég vona innilega að tónlistarunnendur eins og Guð- brandur Einarsson og Kjartan Már Kjartansson sjái hag sinn og annarra í Reykjanesbæ í því að leyfa staðnum að vera þarna áfram og rífi ekki niður þetta ómetanlega verðmæti sem Paddy´s er. ÁLAGNINGARSEÐLAR FYRIR ÁRIÐ 2015 Tilkynning til eigenda fasteigna um álagningu ársins 2015 Álagningarseðlar fyrir árið 2015 verða eingöngu birtir rafrænt og ekki sendir út í bréfapósti. Nú geta fasteignaeigendur nálgast álagningarseðilinn á mittreykjanes.is og á upplýsinga- og þjónustuveitunni www.island.is. Reykjanesbær mun þó áfram senda einstaklingum 67 ára og eldri álagningarseðil í pósti. Þeir sem óska eftir að fá álagningarseðilinn sendan í pósti er bent á að senda tölvupóst á netfangið thjonustuver@reykjanesbaer.is Gjalddagar og greiðsla fasteignagjalda Gjalddagar fasteignagjalda eru tíu. Fyrsti gjalddagi er 25. janúar 2015 til og með 25. október 2015. Eindagi fasteignagjalda er þrjátíu dögum eftir gjalddaga og falla öll gjöld ársins í gjalddaga ef vanskil verða. Reynist heildarálögð gjöld 20.000 krónur eða lægri er gjalddagi heildargjaldanna 25. janúar 2015. Athygli er vakin á því að greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda eru sendir út rafrænt og birtast í heimabönkum. Þeir sem vilja fá senda greiðsluseðla er bent á að senda tölvupóst á thjonustuver@reykjanesbaer.is „Bæjarstjóri Reykjanesbæjar var á fundi með okkur í gær [þriðju- dag] þar sem við lögðum fram bréf, stílað á bæjarráð, þar sem við hvöttum til að þess að þessi ákvörðun yrði endurskoðuð. Hann sagði okkur þó að ekki yrði að því - því miður,“ segir Har- aldur Árni Haraldsson, skóla- stjóri Tónlistaskóla Reykjanes- bæjar. Þann 1. mars næstkomandi mun Reykjanesbær ekki lengur endurgreiða kennurum tónlist- arskólans, sem koma frá höfuð- borgarsvæðinu, andvirði rútufar- gjalds til og frá vinnu. Kennarar hafa haft val um hvort endurgreiðslan nýtist í rútufar- gjald eða upp í eldsneyti. 28 af 44 kennurum tónlistarskólans koma til vinnu frá höfuðborgarsvæðinu og Haraldur segist óttast að missa þennan mannskap. Enginn þeirra hafði sagt upp þegar Víkurfréttir náðu tali af Haraldi í gær. „Miðað við viðbrögðin á fundinum óttast ég það þó. Þeim ætti ekki að verða skotaskuld úr því að fá vinnu nær heimilum sínum. Það er vöntun á kennurum í þessum greinum. Ég vona að aðstaðan og fyrirkomu- lagið hér verði til þess að halda þeim hér,“ segir Haraldur. ■■ Tónlistarskólastjóri uggandi yfir ákvörðun Reykjanesbæjar: Taka af ferðastyrki til 28 tónlistarkennara

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.