Víkurfréttir - 25.06.2015, Síða 9
9VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 25. júní 2015
-fréttir pósturu vf@vf.is
Erum búnir að opna Beint úr sjó,
ferskur fiskur, fullt af fiskréttum tilbúnir í ofninn
og öðru meðlæti.
Sushi gert á staðnum alla daga.
Fitjum 2, 230 Reykjanesbær | Sími 421-5900 | www.beintursjo.is | beintursjo@beintursjo.is
EST. 2014
BEINT ÚR SJÓ
Ferskur skur & sushi
NÚTÍMA FISKVERSLUN & SUSHI
Þrettán styrkjum var veitt úr Umhverfissjóði Fríhafnarinnar við hátíðlega athöfn í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar í vikunni. Þorgerður Þráinsdóttir
framkvæmdastjóri og Helga Jónsdóttir, stjórnarfor-
maður Fríhafnarinnar, afhentu styrkina. Þetta er í
þriðja skipti sem styrkir eru veittir úr Umhverfis-
sjóðnum, en hann var stofnaður í maí árið 2012
með það að markmiði að styrkja verkefni á sviði
umhverfisverndar, með áherslu á nærumhverfi Frí-
hafnarinnar. Aðilarnir 13 fengu styrk til fjölbreyttra
verkefna á ólíkum sviðum. Heildarfjárhæð styrkj-
anna var tvær milljónir þrjúhundruð og fimmtíu
þúsund krónur.
Eftirtaldir hlutu styrk: Blái herinn, Barna- og unglinga-
ráð knattspyrnudeildar Keflavíkur, Skógræktarfélag
Grindavíkur, Knattspyrnudeild UMFN hlaut styrk til
gróðursetningar trjáa við keppnis- og æfingasvæði
deildarinnar í Njarðvík, Áhugahópurinn Heiðafélagið
til gróðursetningar trjáa í nágrenni flugstöðvarinnar,
íbúar við Baugholt og Krossholt hlutu styrk til að
byrja að breyta útisvæði þar í grennd í fjölskyldu- og
frístundasvæði, Háaleitisskóli til að efla starfsfólk sitt
í umhverfismálum, Leikskólinn Akur til að koma upp
trjálundi á skólalóðinni, Lionsklúbbur Njarðvíkur til
áframhaldandi gróðursetningar trjáa í Parísarlundi við
Grænásbrekku, Skógfell, skógræktar- og landgræðslu-
félag Vatnsleysustrandarhrepps, til að bæta aðstöðu
við Háabjalla sem og aðgengi frá undirgöngunum á
Vogastapa að svæðinu, Golfklúbbur Suðurnesja til
áframhaldandi vinnu við uppgræðslu og hreinsun
við Leiru, Vogahestar til fegrunar á umhverfi hest-
húsahverfisins við Fákadal, Stóru- Vogaskóli til að
fegra og snyrta umhverfi skólans, hlúa að gróðri á
lóðinni og útbúa matjurtagarð sem nemendur munu
læra að hirða og nýta.
13 styrkir veittir úr Umhverfis-
sjóði Fríhafnarinnar
Þrettán styrkjum var veitt úr Umhverfissjóði Fríhafnarinnar við hátíðlega athöfn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Með blik í auga setur upp sýn-inguna Lög unga fólksins á
Ljósanótt 2015 en sýningar hóps-
ins eru orðnar ómissandi hluti af
dagskrá hátíðarinnar.
Að þessu sinni verður horft til þessa
vinsæla útvarpsþáttar og skoðuð sú
togstreita og þau átök sem urðu
milli þeirra ungu og sem eldri voru.
„Hvar er Tom Jones?“ heyrðist þá
iðulega þegar þau eldri könnuð-
ust ekki við lögin sem spiluð voru.
Flutt verða lög frá 1965 - 1987 og
tímaferðalagið heldur áfram.
Sýningin verður með svipuðum
hætti og áður en þó með eilítið
breyttu sniði, en að þessu sinni
mun Leikfélag Keflavíkur taka þátt
í sýningunni með sketsum á milli
laga.
Haldnar verða þrjár sýningar í
Andrews leikhúsinu á Ásbrú, frum-
sýning miðvikudaginn fyrir Ljósa-
nótt og tvær sýningar á sunnudeg-
inum að venju. Miðasala mun hefj-
ast á midi.is þann 10. ágúst.
Hægt verður að fylgjast með á
Facebook síðu hópsins hér: https://
www.facebook.com/medblikiauga
MEÐ BLIK Í AUGA 2015
LÖG UNGA FÓLKSINS
Á LJÓSANÓTT 2015
ATV INNA
Vatnsnesvegi 12 // 230 Reykjanesbæ // 420 7011
Þjónar óskast til starfa á Kef reaustrant.
Reynsla æskileg. Unnið a vöktum 2, 2, 3.
Vantar einning þjóna á aukalista.
Umsóknir sendist á jenny@kef.is