Víkurfréttir - 25.06.2015, Síða 13
13VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 25. júní 2015
fólkið er að stilla sér upp og veit
ekki að ég er að taka myndir af því
á meðan. Mér finnst óendanlega
gaman að taka portrait-myndir af
fólki og mig langar að einbeita mér
að því verkefni á næstu misserum.“
Tíu myndir á sýningu í Leirunni
Mest gefandi við ljósmyndun yfir-
leitt segir Mási vera að fanga augna-
blik og stemningu sem oftar en
ekki eru jafnfljótt að hverfa og þau
birtast. „Þá er um að gera að vera
snöggur til og að sjálfsögðu leyfa
ímyndunaraflinu að taka völdin.
Ég hef ekki verið nógu duglegur
að mynda undanfarið og stundum
liggur myndavélin óhreyfð svo vik-
um skiptir í töskunni minni.“ Um
þessar mundir stendur yfir sýning
á ljósmyndum eftir hann í golfskál-
anum í Leirunni sem verður fram á
haust. „Fyrr í vetur kom að máli við
mig formaður klúbbsins og spurði
hvort hann mætti velja tíu myndir
eftir mig til að setja upp í klúbbhús-
inu. Ég tók að sjálfsögðu vel í það.“
Trommur, gítar og tónsmíðar
Mási þykir afar listrænn og auk
ljósmyndunar hefur tónlist alltaf
skipað stóran sess í lífi hans. Hann
var barnungur þegar hann áttaði
sig á því að hann væri taktviss og
móðir hans gaf honum trommusett
þegar hann var 12 ára gamall. „Ég
hef notið þess að spila á tromm-
ur undanfarin ár með hinum og
þessum og hef ég fengið skemmti-
leg verkefni í hendurnar af þeim
sökum. Svo sjálfmenntaði ég mig
á gítar og finnst afar gama að taka
í hann. Einnig hef ég verið að fikta
við að semja tónlist sjálfur og stefni
á að einbeita mér frekar að því á
næstu misserum,“ segir Mási en
einhvern veginn eins og margt
annað virðist það liggja ágætlega
fyrir honum. „Ég hef alla tíð haft
áhuga á söng og raulaði mest fyrir
sjálfan mig og móður mína á ung-
lingsárum.“
-ljósmyndun pósturu vf@vf.is
Söngnám og
Brúðkaup Fígarós
Eiginkona Mása, flugfreyjan Sonja
Kristín Sverrisdóttir, gaf honum í
jólagjöf fyrir nokkrum árum einka-
tíma hjá Jóhanni Smára Sævarssyni,
óperusöngvara og söngkennara.
Það var svo í desember 2013 sem
Mási ákvað að nýta sér tímann (4-5
árum síðar) og þá var ekki aftur
snúið. „Jóhann Smári hvatti mig til
að hefja söngnám í Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar sem ég og gerði.
Þar hef ég svo verið við nám í eitt og
hálft ár og hefur lokið grunnprófi í
söng. Ég stefni á að halda áfram og
klára námið. Ég verð að viðurkenna
að þetta er eitt það skemmtilegasta
sem ég hef tekið mér fyrir hendur
og er nú af mörgu að taka. Ég var
svo lánsamur, fyrir tilstilli Jóhanns
Smára, að fá að taka þátt í uppfær-
slu á Brúðkaupi Fígarós eftir Wolf-
gang Amadeus Mozart. Ég fór þar
með hlutverk tónlistarkennarans
Basilio. Fyrir mig sjálfan var þetta
gríðarleg áskorun,“ segir Mási,
sem hingað til hafði getað falið sig
bakvið trommurnar. „Þarna tók ég
þátt í terzett og svo söng ég aríu og
þurfti að hafa mig allan við þar sem
ég þarf að leika og syngja á sama
tíma. Þetta er talsvert hlutverk fyrir
söngnemanda á 1. ári,“ segir Mási
að lokum en alltaf til í ný ævintýri
og áskoranir.
Kristín Sveinbjörnsdóttir
móðir Mása. Vetrarstemmning á Vatnsnesi í Keflavík.
Golfskálinn í
Leiru flottur í
norðurljósum.
Mási í golfi.
Með foreldrum sínum við
skírn sonar síns.
Með eiginkonunni Sonju og
dótturinni Laufeyju Kristínu.
Í hátíðarklæðum á 17. júní.