Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.11.2015, Blaðsíða 24

Víkurfréttir - 12.11.2015, Blaðsíða 24
vf.is -mundi FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER • 44. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR Eru ekki öll kurl komin til grafar? NÝR& BETRI OPNUNARTÍMI VIRKA DAGA 9-20 HELGAR 10-20 NETTÓ REYKJANESBÆ Tilboðin gilda 22. október – 18. nóvember 2015 Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana. M ID I - M AXI - MAXI PLUS - JUNIOR999 kr/pk PA M PER S NEW BABY 499 kr/pk Verð áður = 1.281 kr Verð áður = 1.299 kr Verð áður = 1.299 kr Verð áður = 1.299 kr TILBOÐ í verslun Nettó Rey kjanesbæ Pampers Baby Dry S3 Midi 4-9kg 50 stk. Verð áður: 1281 Pampers Baby Dry S4 Maxi 7-18kg 44 stk. Verð áður: 1299 Pampers Baby Dry S4+ Maxi plus 9-20kg 41 stk. Verð áður: 1299 Pampers Baby Dry S5 Junior 11-25kg 39 stk. Verð áður: 1299 Pampers E-Up Maxi 8-15kg 22 stk. Verð áður: 1229 Pampers E-Up X-Large 16+kg 19 stk. Verð áður: 1229 Pampers Newbaby S1 2-5 kg. 23 stk. Verð áður: 630 Pampers Newbaby S2 3-6 kg. 32 stk. Verð áður: 599 Íbúðalánasjóður selur fleiri eignir til leigufyrirtækja - ÍLS á 498 eignir á Suðurnesjum XXÍbúðalánasjóður tók á dög- unum 44 íbúðir á Suðurnesjum úr sölu og er ætlunin að selja þær saman til íbúðaleigufyrirtækja. Alls tók sjóðurinn 101 íbúð víða um land úr sölu. Meirihluti eign- anna á Suðurnesjum er í Reykja- nesbæ, eða 38. Tvær eignanna eru í Garði, tvær í Grindavík, ein í Vogum og ein í Sandgerði. Að sögn Gunnhildar Gunnars- dóttur, framkvæmdastjóra rekstrar- sviðs Íbúðalánasjóðs, eru þetta íbúðir sem taldar eru hentugar til leigurekstrar. „Íbúðalánasjóði er ekki ætlað að eiga íbúðir til lengri tíma. Nú er tækifæri til að selja og vill sjóðurinn selja þennan hluta í söfnum.“ Fasteignamarkaðurinn á Suður- nesjum hefur tekið vel við sér að undanförnu, að sögn Gunnhildar, og hefur sjóðurinn selt mikið af eignum sínum á svæðinu. „Salan verður því væntanlega áfram góð í stökum eignum. Við finnum einn- ig fyrir því að leigufyrirtæki horfa til framtíðar með leigustarfsemi á Suðurnesjum,“ segir hún. Í dag á Íbúðalánasjóður 498 eignir á Suðurnesjum en þegar mest lét voru þær um 900. Af þessum 498 eignum hafa 300 verið skráðar á faseignasölum til sölu og 194 eru í útleigu. Leigufélagið Klettur ehf., sem er sjálfstætt félag í eigu Íbú- ðalánasjóðs, á 75 eignir til viðbótar á Suðurnesjum og eru þær í útleigu. Síðustu 12 mánuði hefur sala eigna sjóðsins á Suðurnesjum gengið sérstaklega vel. Frá árinu 2008 og til 1. nóvember síðastliðinn hefur sjóðurinn selt 738 eignir og hefur mestur hluti þeirra verið seldur á árunum 2014 og 2015, eða 579 eignir. Af þessum 579 eignum voru 236 seldar í söfnum. Kiddi í Hjálmum fórnaði Costello á framrúðuna – „Geisladiskurinn er ekki dauður“ XX„G eisladiskurinn er ek k i dauður,“ sagði tónlistarmaðurinn Guðmundur Kristinn Jónsson, Kiddi í Hjálmum, nú í vikunni. Hann þurfti eins og svo margir aðrir að skafa einn frostkaldan morgun. Eins og svo margir aðrir á Kiddi ekki rúðusköfu. Hann dó ekki ráðalaus og gat án vand- ræða dregið fram forláta geisla- disk með Costello sem fékk það hlutverk að verða rúðuskafa þann morguninn.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.