Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.11.2015, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 12.11.2015, Blaðsíða 1
vf.is Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015 • 44. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR Nýr& betri opnunartími Virka daga 9-20 Helgar 10-20 Nettó reykjaNesbæ ATH! NÝR OG BETRI OPNUNARTÍMI KASKO • IÐAVÖLLUM 14 • REYKJANESBÆ Virka daga Helgar 10:00 – 19:00 10:00 – 18:00 - alltaf eitthvað nýtt í hverri viku! SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA VIKULEGUR MAGASÍNÞÁTTUR ALLA FIMMTUDAGA KL. 21:30 Á ÍNN OG VF.IS Níu ára í úrslitum jólastjörnu Björgvins Fá afleiðingar umferðarslyss beint í æð Í KVÖLD KL. 21:30 Á ÍNN OG VF.IS Hvernig verður listsýning til? Yfir hundrað þættir frá upphafi! Á sparkvöllum við Akur-skóla í Reykjanesbæ, við Grunnskólann í Sandgerði og við Grunnskólann í Garði er dekkjakurl, af þeirri teg- und sem Læknafélag Íslands ályktaði árið 2010 að geti verið heilsuspillandi. Fram kom í ályktun félagsins að full ástæða sé til að hafa sérstakar áhyggjur af leik barna á slíku undirlagi. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjanesbæ hefur verið ákveð- ið að leggja til við gerð fjár- hagsáætlunar Reykjanesbæjar árið 2016 að gúmmíkurlinu á sparkvelli við Akurskóla verði skipt út í næstu viðhaldsfram- kvæmdum. Að sögn Jóns Ben Einarssonar, sviðsstjóra um- hverfis-, skipulags- og bygg- ingamála í Sandgerði og Garði er verið að skoða málið hjá sveitarfélögunum. Ekki liggur fyrir hvað verði gert en að vel sé fylgst með umræðunni. Silja Dögg Gunnarsdóttir þing- maður Framsóknarflokks í Suðurkjördæmi er meðal flutn- ingsmanna tillögu á alþingi um að notkun gúmmíkurls úr dekkjum verði bönnuð á leik- og íþróttavöllum. Hún segir mikilvægt að Reykjanesbær bregðist skjótt við og fjarlægi dekkjakurlið við Akurskóla. „Mér finnst að bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ ættu að sýna ábyrgð í verki og skipta eitraða kurlinu út strax við Akurskóla og ekki bíða eftir afgreiðslu rík- isvaldsins. Börnin eiga alltaf að njóta vafans,“ segir hún. Á vef Reykjanesbæjar kemur fram að málið haf i verið skoðað. Viðræður við Heil- brigðiseftirlit Suðurnesja hafi leitt í ljós að ekki sé ástæða til að aðhafast meira í málinu að svo stöddu. Þá kemur fram að álit Heilbrigðiseftirlits Suður- nesja byggi á rannsóknarskýrslu Mengunar varnastof nunar danska umhverfisráðuneytisins frá árinu 2008 þar sem meðal annars kemur fram að gúmmí- kurl úr bíldekkjum valdi hvorki skaða við innöndun rykagna úr kurlinu, nema fyrir fólk sem er viðkvæmt í öndunarfærum, né verulegum skaða fyrir um- hverfið, svo sem mengunar grunnvatns. Í skýrslunni er vísað til svissneskrar, franskrar og þýskrar rannsóknar sem sýna sambærilegar niðurstöður sem að mati Reykjanesbæjar þykir ekki ástæða til að rengja. „Við höfum ekkert annað í höndunum en þessa skýrslu og samkvæmt henni er ekki talin sérstök ógn af þessu gúmmí- kurli. Hins vegar er gert ráð fyrir að þessu sé skipt út þegar þar að kemur og þar spila ekki síður inn í umhverfisáhrif,“ segir Magnús H. Guðjónsson framkvæmdastjóri Heilbrigðis- eftirlits Suðurnesja. Þórarinn Guðnason hjarta- læknir bar upp ályktun um dekkjakurl á aðalfundi Lækna- félags Íslands árið 2010. Í ályktuninni kemur meðal ann- ars fram að í dekkjakurli séu krabbameinsvaldandi efni og önnur eiturefni sem geti verið hættuleg fyrir börn og aðra iðkendur íþrótta á gervigras- völlum. Skoða að skipta út dekkjakurli á sparkvöllum Reykjanesbær bendir á gögn sem segja að kurlið sé ekki hættulegt. Læknar eru ósammála. Þingmaður segir að bærinn eigi að skipta kurlinu strax út. Ungir knattspyrnukappar við leik á vellinum við Akurskóla.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.