Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.11.2015, Blaðsíða 23

Víkurfréttir - 12.11.2015, Blaðsíða 23
23VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 1. október 2015 Eyþór Sæmundsson // pósturu eythor@vf.is Jónas Guðni hugsanlega á heimaslóðir XuKeflvíkingar hafa átt í viðræðum við miðjumann- inn Jónas Guðna Sævarsson sem lék með Keflvík- ingum upp alla yngri flokka og á árunum 2002-2007 með meistaraflokki. Hann hefur síðan leikið með KR og sem atvinnumaður í Svíþjóð. Yngsti bróðir Jónasar, Fannar Orri, leikur með Keflavík en hann er 18 ára og þykir mikið efni. „Það væri gaman að spila með litla bróður. Það kemur í ljós í framtíðinni en ég á eitt ár eftir af samningi mínum við KR.“ Þannig að þú lokar ekkert hurðinni á endurkomu á heima- slóðir? „Maður gerir það aldrei, það er ekki hægt að gera það,“ sagði Jónas í samtali við VF í fyrra. Jónas er samningslaus og samkvæmt frétt Vísis eru Keflvíkingar búnir að ræða við hann á meðan hann hefur gefið öðrum liðum afsvar. Már með nýtt Íslandsmet Frábær árangur NES á Íslandsmótinu í sundi Xu S u n d l i ð NES átti frábærum árangri að fagna þegar Íslandsmót ÍF í sundi fór fram í 25 metra laug um helgina. Már Gunn- arsson úr NES gerði sér lítið fyrir og setti nýtt Íslandsmet í 400 metra skriðsundi þar sem hann synti á 4.58. mínútum. Flestir keppendur frá NES nældu sér í medalíu á mótinu og voru að bæta tímana sína. S annarl ega glæsilegur árangur. Gunnar er kominn heim XuMiðjumaðurinn Gunnar Þorsteinsson skrifaði undir þriggja ára samning við uppeldisfélag sitt Grindavík eftir að hafa leikið með ÍBV síðustu þrjú tímabil í Pepsi-deildinni. Gunnar er 21 árs miðjumaður sem hefur leikið 56 leiki í Pepsi-deild og 11 bikarleiki og skorað 2 mörk. Gunn- ar lék með Grindavík í yngri flokkum en var í tvö ár í unglingaliði Ipswich Town áður en hann fór í ÍBV. Sigur í fyrsta bikarmóti vetrarins XuTaekwondolið Keflavíkur sigraði í heildarstiga- keppninni á fyrsta bikarmóti vetrarins sem haldið var í Sandgerði um helgina. Ármenningar voru í öðru sæti aðeins hársbreidd frá sigrinum og því greinilegt að það verður hörkubaráttu um bikarmeistaratitilinn. Samanlagður árangur þriggja móta gildir til titilsins. Svanur Þór Mikaelsson úr Keflavík var valinn kepp- andi mótsins í karlaflokki. Arnór, Elías og Ingvar í A-landsliðið XuÞeir Arnór Ingvi Traustason, Ingvar Jónsson og Elías Már Ómarsson eru meðal leikmanna sem taka þátt í æfingaleikjum A-landsliðsins í knattspyrnu á næstunni. Hópurinn mun leika gegn Pólverjum og Slóvökum í nóvember. Ingvar og Elías hafa fengið tækifæri í æfingaleikjum landsliðsins áður en Arnór er að fá sitt fyrsta tækifæri eftir frábært tímabil í Svíþjóð þar sem hann var lykilmaður í meistaraliði Norrköping. Hann hafði verið valinn áður en gat ekki leikið sökum meiðsla. Keflvíkingar eignuðust Ís- landsmeistara í stökkfimi XuFimleikadeild Keflavíkur eignaðist tvo Ís- landsmeistara í stök kfimi um liðna helgi. Í A-flokki 12-13 ára varð Lovísa Andrésdóttir Íslands- meistari á dýnu og Thelma Rún Eðvaldsdóttir hlaut annað sætið, ásamt því að ná öðru sætinu í saman- lögðum árangri. Í sama flokki varð Andrea Dögg Hallsdóttir í öðru sæti á trampolíni. Í B-flokki 14-15 ára varð Tanja Ýr Ásgeirsdóttir í þriðja sæti á dýnu. Í A-flokki 14-15 ára hlaut Alma Rún Jensdóttir Íslands- meistaratitil á trampolíni og í samanlögðum árangri ásamt því að ná öðru sætinu á dýnu. Í opnum flokki 16 ára og eldri hlaut Kolbrún Júlía Guðfinnsdóttir Newman annað sæti á dýnu, trampolíni og í saman- lögðum árangri. - alltaf eitthvað nýtt í hverri viku! SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA VIKULEGUR MAGASÍNÞÁTTUR FIMMTUDAGA KL. 21:30 Á ÍNN OG VF.IS Níu ára í úrslitum jólastjörnu Björgvins Fá afleiðingar umferðarslyss beint í æð KL. 21:30 Á ÍNN OG VF.IS HORFÐU í KVÖLD Hvernig verður listsýning til? Yfir hundrað þættir frá upphafi! ATVINNA TG RAF Í GRINDAVÍK ÓSKAR EFTIR RAFVIRKJA TIL STARFA JÁKVÆÐNI - ELDMÓÐUR - TRAUST - FRAMSÆKNI - FAGMENNSKA TG raf er framsækið fyrirtæki í örum vexti og leggur metnað í að vera leiðandi í þjónustu við sjávarútveginn. Lögð er mikil áhersla á vönduð vinnubrögð og að skila verkum sem starfsmenn TG raf geta verið stoltir af. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi í fjölbreytt starf í skiparafmagni og þjónustu við höfn, fiskvinnslur og verksmiðjur. Hæfniskröfur: - Menntun á sviði rafvirkjunar. -Reynsla í rafvirkjun. - Reynsla í skiparafmagni er kostur. - Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð. - Sveigjanleiki og áreiðanleiki. - Jákvætt viðhorf og lipurð í samskiptum. Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda á tgraf@tgraf.is fyrir 23. nóvember 2015. Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001 www.vf.is/ithrottir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.