Víkurfréttir - 10.12.2015, Blaðsíða 16
16 fimmtudagur 10. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-mannlíf pósturu vf@vf.is
Góð þátttaka og mikil gleði var á jólaballi fólks með
fötlun sem Björn Vífill Þorleifs-
son veitingamaður á Ránni og
Kjartan Már Kjartansson bæjar-
stjóri Reykjanesbæjar buðu til á
Ránni í síðustu viku.
Guðbrandur Einarsson for-
seti bæjarstjórnar og tónlistar-
maður hélt uppi stuðinu í fé-
lagi við Kjartan Má sem greip í
fiðluna á milli dansa. Sungið var
og dansað kringum jólatréð og
þegar veitingar voru bornar fram
komu góðir gestir til að skemmta,
Rauðhetta og úlfurinn frá Leik-
félagi Keflavíkur en sýningum á
Rauðhettu lauk nýverið og Sissa,
Sesselja Ósk Stefánsdóttir 9 ára
stúlka úr Reykjanesbæ sem mun
syngja á jólatónleikum Björgvins
Halldórssonar nk. laugardag.
Heimsókn jólasveina vekur alltaf
lukku og sú var einnig raunin í
gær. Þeir voru reyndar svolítið
blautir á bak við eyrun blessaðir
og það þurfti að kenna þeim
ýmislegt áður en þeir gátu tekið
þátt í dansinum kringum jóla-
tréð, en þeim var fyrirgefið, sér-
staklegar þegar gestir sáu hvað
leyndist í pokanum þeirra.
Mikil gleði á jólaballi
fólks með fötlun á Ránni
XuForeldrum bar boðið í piparkökur og kaffi á leikskólann Gimli í vikunni. Krakkarnir eru alltaf ánægð að
fá mömmu og pabba í heimsókn og það er líka gagnkvæmt hjá foreldrunum. Þessar myndir voru teknar í
jólastemmningu á Gimli.
Piparkökur fyrir
mömmu og pabba á Gimli
www.vf.is
83% LESTUR
+
JÓLABINGÓ
Á NESVÖLLUM
Félag eldri borgara mun halda jólabingó
sunnudaginn 13. desember kl. 13:30. Húsið opnar kl. 12:30.
Veglegir vinningar í boði
Spjaldið er á kr. 300
Heitt verður á könnunni og auðvitað eitthvað gott með því.
Hittumst hress og kát.