Víkurfréttir - 10.12.2015, Blaðsíða 30
30 fimmtudagur 10. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Áhugasamir sæki um starfið á heimasíðu fyrirtækisins,
www.airportassociates.com.
Nánari upplýsingar veitir Telma Guðlaugsdóttir,
telma@airportassociates.com.
Umsóknarfrestur er til 17. desember 2015.
Laust starf launafulltrúa
Airport Associates leitar eftir starfsmanni í fullt starf launafulltrúa á
starfsmannasviði fyrirtækisins á Keflavíkurflugvelli. Við leitum að
jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur opinn hug til að
takast á við fjölbreytt verkefni. Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst.
Starfssvið:
• Vinnsla launabókhalds
• Upplýsingagjöf til stjórnenda og starfsmanna
• Samskipti við starfsmenn, lífeyrissjóði, stéttarfélög og opinbera aðila
• Ýmis önnur störf í tengslum við kjaramál starfsmanna
• Önnur tilfallandi störf á starfsmannasviði
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun
• Góð reynsla af launabókhaldi er nauðsynleg
• Þekking á H-launum og Mytimeplan tímastjórnunarkerfi er kostur
• Góð kunnátta og færni í Excel
• Metnaður, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Þjónustulund, jákvæðni og góðir samskiptahæfileikar
-jólatónar pósturu vf@vf.is
Grindvíkingurinn Agnar Steinarsson
er aðdáandi góðrar jólatónlistar. Gunnar
Þórðarson, eða Suðurnesja-Mozart eins og
Agnar kýs að kalla hann, kemur alltaf með
jólaandann á heimili Agnars. Svo kemur sér-
stakur jólasveinn í heimsókn árlega sem fáir
hafa heyrt af, en sá heitir Stebbastaur.
SUÐURNESJA-
MOZART VEKUR
UPP JÓLAANDANN
Af því – Stefán Hilmarsson
Stebbastaur
er fyrsti jóla-
sveinninn á
mínu heimili
þ v í k o n a n
m í n h ú n
Mat t h i l du r
byrjar alltaf aðventuna á því að
hlusta í jóladiskana með idolinu
sínu. Þetta er einfaldlega frábært
lag og snilldarlega sungið hjá Stef-
áni.
Don´t save it all for
Christmas day – Celine Dion
É g v e r ð a ð
viðurkenna að
ég hækka alltaf
í botn þegar
ég heyri þetta
lag með Celine
Dion og þegar
maður skoðar Youtube-mynd-
bandið með Jóhönnu Guðrúnu og
Svölu Björgvins þá fær maður bæði
gæsa- og appelsínuhúð.
Driving home for christmas
– Chris Rea
Þegar maður heyrir þetta lag úti
í umferðinni
þ á h æ k k a r
m a ð u r v e l
í tækinu og
verður allur
svo meyr inni
í sér. Brosir
til hinna bíl-
s t j ó r a n n a
o g g e f u r
e f t i r b e s tu
bí l as t æ ðin .
Hugsar til ástvinanna og svei mér
ef það læðast ekki jólatár út í augn-
krókana.
Jól – Gunnar Þórðarson
Þetta lag með
okkar eigin
Suðurnesja-
Mozart vekur
alltaf upp í
mér jólaand-
ann og allt í
einu er ég orðinn 12 ára að baka
smákökur með mömmu. Sest síðan
við gluggann með nokkrar ylvolgar
og tel jólaljósin á blokkunum í
Torfufellinu.
Ef ég nenni – Helgi Björns
Þessi texti eftir
R aufarhafnar-
hirðskáldið Jónas
Friðrik er ein-
hve r n ve g i n n
algjör snilld og
svo syngur Helgi
þetta frábærlega.
Hægt verður að nálgast jólatóna Víkurfrétta á vefsíðu okkar www.vf.is en þar
má meðal annars hlusta á öll lögin á Spotify tónlistarveitunni.
Auglýsingasími Víkurfrétta
er 421 0001
„Þetta gat ekki verið yndislegra á
leið minni hingað, nýfallinn snjór
og jólaljós þegar ég keyrði inn í
bæinn. Það var líka skemmtilegt
að ég var að lesa í fyrsta skipti út
bókinni sem kom út fyrr á árinu,“
sagði Eydís eins og hún er kölluð
af flestum.
Hún hefur á sínum vettvangi
kennslu og fræða hvatt fólk til að
fara út úr sínum þægindahring,
það geti gefið fólki mikið og nú
var hún á þeim tímamótum. „Mér
fannst þetta spennandi tækifæri
en þó ég hafi gefið út bækur þá hef
ég ekki gefið út skáldsögu. Kann
það ekki og er því alger byrjandi
í þeim flokki. En ég er svolítið að
ögra sjálfri mér og var satt að segja
alveg skíthrædd þegar bókin kom
út. Var hissa á því sjálf hvað ég var
stressuð út af útgáfu bókarinnar.“
Bókin fjallar um lögfræðinginn
Höllu Bryndísi sem fær í hend-
urnar ranga ferðatösku þegar hún
lendir í London og mikilvægir
fundir framundan. Hún situr uppi
með allt annan fataskáp en sinn
eigin og samhliða því sem fylgst er
með Höllu Bryndísi leita út fyrir
þægindaramma sinn með ófyrir-
sjáanlegum afleiðingum.
Eydís segir að bókin hafi verið
nokkurn tíma að fæðast en hún sé
skorpukona og vinni þannig. „Ég
fór í burtu og lokaði mig af því það
er erill í kringum mig, stór fjöl-
skylda og fjör en þetta gekk. Ég er
samt þannig gerð að ég vil láta lesa
yfir aftur og aftur auk þes sem ég
er ekki mjög nákvæm. Þarf því að-
stoð í því og helst sem mesta. Ég
var með frábæran ritstjóra og lærði
mikið af því.“
Eydís fékk góðar viðtökur við upp-
lesturinn í bókasafninu en aðspurð
segir hún heimahagana sér mjög
kæra. „Ég er í daglegu sambandi
við Keflavík enda búa foreldarar
mínir þar. Ég fór á 35 ára ferm-
ingarafmæli í vor og þá fann ég að
þegar maður verður eldri finnst
manni vænna um heimabæinn og
vera hluti af því samfélagi.
En verður þetta fyrsta
skáldsagan af fleirum?
„Já, líklega. Það er að fæðast hug-
mynd að þeirri næstu og ég bíð
eftir að komast í það verkefni. Mér
finnst þetta gaman. Svolítið frí frá
fræðikonunni,“ sagði Árelía Eydís.
Sjónvarp Víkurfrétta ræddi við
Árelíu og það er sýnt í þætti vik-
unnar á ÍNN og á vf.is.
Keflavíkurmærin Árelía Eydís las úr skáldsögu sinni:
Finnst vænna um
heimabæinn þegar ég eldist
Árelía Eydís Guðmundsdóttir er brottflutt Keflavíkurmær, fræði-
kona, fyrirlesari og kennari sem hefur látið til sín taka á þeim vettvangi.
Hún mætti til gamla heimabæjarins nýlega og las upp úr fyrstu skáld-
sögu sinni, Tapað fundið, á bókakonfekti í Bókasafni Reykjanesbæjar.
Kv e n n a k ór Su ð u r n e s j a heldur aðventutónleika í
Keflavíkurkirkju miðvikudag-
inn 16. desember kl. 20:00.
Yfirskrift tónleikanna er „Ave
Maria“ sem er lýsandi fyrir efnis-
skrá tónleikanna en hún er til-
einkuð Maríu mey.
Ótal lög hafa verið samin við
bænina Ave Maria og mun kór-
inn flytja nokkur þeirra. Þar má
nefna tvö íslensk lög eftir Eyþór
Stefánsson og Sigvalda Kaldalóns,
Ave Mariu eftir Franz Schubert
og aðra eftir J.S. Bach og Charles
Gounod sem eru tvær af þekkt-
ustu „Ave Maríum“ heims, auk
fleiri laga við þessa bæn. Önnur
lög tengd Maríu mey eru einnig
á efnisskránni. Það má segja að
það sé vel við hæfi í lok þessa árs
þar sem haldið hefur verið upp
á 100 ára afmæli kosningaréttar
kvenna, að konur syngi um heil-
aga Guðsmóður, tákn kvenleika
og móðurímyndar.
Þegar líður að jólum er fátt betra
en að taka sér hlé frá erli jóla-
undirbúningsins og upplifa há-
tíðlega og fallega stund.
Stjórnandi kórsins er Dagný
Þórunn Jónsdóttir, Geirþrúður
Fanney Bogadóttir leikur á píanó
og Birna Rúnarsdóttir á þver-
flautu. Einsöngvarar eru Birta
Rós Arnórsdóttir og Guðbjörg
Guðmundsdóttir.
Aðgangseyrir 2.500 kr. Miðasala
við innganginn.
Ave Maria
– aðventutónleikar Kvennakórs Suðurnesja